Vikan - 18.11.1976, Síða 32
Greta
Garbo
í 35 ár hefur Greta Garbo forðast
blaðamenn og ljósmyndara, og hún
hefur borgað stórfé fyrir að láta
óbirtar myndir, sem náðst hafa af
henni. Meðfylgjandi myndir eru úr
einkasafni Kerstinar Bemadotte, en
þær Greta hafa árum saman verið
bestu vinkonur. Þær eru það þó ekki
lengur. Greta fyrirgefur Kerstin
naumast trúnaðárbrot hennar í bráð.
Einu sinni var fræg og fögur
filmstjarna, kannski jafnvel sú
frægasta og fegursta af þeim öllum.
Þegar hún hins vegar sá, að frægðin
og fegurðin mundu innan tíðar taka
að blikna, flúði hún á vit einmana-
leikans.
Árið 1941 dró Greta Garbo sig í
hlé og yfirgaf kvikmyndaheiminn.
Hún var þá aðeins 36 ára að aldri og
á hátindi frægðar sinnar. Upp frá
þeim degi hefur hún forðast blaða-
menn og ljósmyndara eins og
pestina. Ef ljósmyndari kemst í
tæri við hana, gripur hún höndum
fyrir andlitið, og ef þeim tekst að
ná myndum, borgar hún himinháar
upphæðir fyrir að láta þær óbirtar.
Greta Garbo á aðeins fáa útvalda
vini. Meðal þeirra eru sænsku
greifahjónin Kerstin og Carl Johan
Bernadotte, en hann er frændi svia-
konungs. Sumarið '75 var Greta
gestur þeirra í villunni, sem þau
eiga í sænska baðstrandarbænum
Basted i suður Sviþjóð. Sumarið
'76 kom hún hins vegar ekki til
þeirra. Kerstin Bernadotte er ekki
lengur besta vinkona hennar, því
hún virti að vettugi hin óskráðu lög,
sem gilt hafa meðal vina Gretu
Garbo, nefnilega að tala aldrei opin-
berlega um einkalíf Gretu. Eftir-
farandi frásögn Kerstinar olli vin
slitum þeirra:
„Fyrir um það bil 25 árum
hittum við Carl Johan Gretu Garbo
i fyrsta skipti. Við hlökkuðum eins
og börn til þess fundar. Hvernig
skyldi hún vera? Hvað mundi hún
segja? Og væri hún eins fögur og
hún virtist á myndum?
Greta fór fram úr öllum okkar
vonum. Fegurð hennar var draumi
líkust, rödd hennar var djúp og hlý.
Og okkur hafði ekki dreymt um, að
hún væri svona elskuleg. Hún
stafaði ljóma í kringum sig.
Við sátum í hálfrökkri úti á
verönd, drukkum vodka og spjöll-
uðum um heima og geima. Þá sagði
hún allt í einu: — Mér skilst, að þér
séuð innanhússarkitekt.
Ég vissi ekki, hvað ég átti til
bragðs að taka. Átti ég að ljóstra
því upp, að ég væri blaðamaður og
eiga það á hættu, að hún vildi ekki
meira við mig tala? Ég ákvað að
láta slag standa og sagði henni sem
var. — 0, en hræðilegt, svaraði hún
glaðlega.
Mér kom ekki til hugar, að við
myndum nokkurn tíma hitta Gretu
aftur. En það fór á annan veg. Við
urðum bestu vinir. Við hittumst í
Frakklandi og Svíþjóð, en oftast þó
í New York, þar sem hún býr.
Henni líður vel í New York, þar
hverfur hún í fjöldann, þar getur
hún stundað sínar gönguferðir og
skoðað forngripi og söfn, án þess
að vekja sífellt athygli.
Greta fer gjarna á veitingahús, en
það verður að vera snemma kvölds,
þvi hún fer snemma að sofa og
snemma á fætur. Aðeins einu sinni
tókst mér að draga hana með
Hin guðdómlega
árið 4932 i hlutverki sínu sem
rús.sneska dansmærin Grusinska\-».
Níu árum siðar lék hún í siðustu
niynd binni, „Knnun með andlitin
tvö”, en upp frá þvi faldi hún andlit
sitt vandlega fyrir umhciininum.
Gretu féil vel við Carl Johan eigin-
mijnn Kerstinar, og honum tókst
alllaf að koma henni í gott skap.
32 VIKAN 47. TBL.