Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 33
mér í leikhús á Broadway — og það
var fyrri hluta dags.
Ég fór til New York að minnsta
kosti einu sinni á ári bara til þess að
heimsækja Gretu Garbo. Þá höfð-
um við símasamband á hverjum
morgni og skipulögðum daginn.
Stundum fórum við í búðir, og þá
var eins gott að vera á undan að
taka upp budduna, því Greta er
fram úr hófi örlát við vini sína og
hefur náð undraverðum hraða i að
töfra fram peningaveskið áður en
við verður litið. Og þegar henni
tekst að verða á undan, ljómar hún
af gleði, eins og barn, sem fær
langþráða gjöf.
Stundum þrömmuðum við úr
einum málverkasalnum í annan til
þess að leita að málverki, en það gat
orðið erfið leit, þvi að uppáhaldslit-
ur Gretu, sem er bleikur, varð að
sjást einhvers staðar í því.
Svo reikuðum við um götumar
fram til kl. sex, settumst þá inn á
einhverja litla krá og fengum okkur
drykk og kex með osti. Eftir það fór
Greta heim og bjó til sinn eigin
kvöldverð. Oftast borðar hún kjöt
og ögn af grænmeti og ost sem eftir-
rétt. Reyndar er hún ekki síður
hi-ifin af venjulegum sænskum mat,
baunum, fleski og pvlsum.
Greta Garbo er jafn óútreiknan-
leg og aprilveðrið. Henni getur
dottið allt i einu i hug, að nú verði
hún að fara út og „taka þátt í líf-
inu”. Einu sinni fékk hún þessa
flugu i kollinn, en þá var tvistæðið
í hápunkti. Við bmgðum okkur á
„Peppermint Lounge” til að sjá
dýrðina, og einmitt þegar fjörið var
að ná hámarki, brá Greta sér
skyndilega út á gólfið og tvistaði af
hjartans lyst.
Greta er alltaf miðpunkturinn,
hvar sem er og hvenær sem er. Ég
man sérstaklega eftir einu kvöldi.
Við vorúm þá gestir Ari Onassis á
lystisnekkju hans. Konumar
kepptu í glæsileik og létu ekki duga
minna en módelkjóla frá Givenchy
.. .eða á bak við handtösku.
og Dior. Skyndilega gekk Greta
Garbo í salinn, og það varð hljótt
eins og í kirkju. Hún var klædd
látlausum grænum satínkjól og
lághæla sandölum, og hún bar ekki
aðra skartgripi en einfaldan gull-
hring. Hún hafði ekki einu sinni
haft fyrir því að láta leggja á sér
hárið. Þrátt fyrir það bar hún af
öllum konunum.
Árið 1965 heimsótti Greta okkur
hjónin til Svíþjóðar í fyrsta sinn,
og siðastliðið sumar dvaldist hún
lengi hjá okkur. Hún virtist njóta
þess ákaflega vel, hún fór í langar
gönguferðir, og á hverjum morgni
viðraði hún hundana okkar þrjá.
Ivar Nilsson bóndinn á bænum og
Greta urðu bestu vinir. Einn daginn
varð hún vitni að því, þegar fæddist
lítill kálfur. Þann dag kom Greta
ekki í síðdegiskaffi, hún var hjá
nýfædda kálfinum allt fram á
kvöld.
Einn daginn fómm við til Vaderö,
sem er friðlýst eyja út af Hallandi.
— Maður ætti aldrei að heimsækja
svona staði, þetta er of fullkomið,
sagði Greta döpur i bragði eftir
heimsóknina.
Gretu langaði mikið til að hitta
Ingmar Bergman. Hún hafði séð
margar af myndum hans og hrifist
af mörgum þeirra. Við heimsóttum
hann í stúdióið, þar sem hann var
við vinnu, og ég lét þau ein drykk-
langa stund. Þegar ég kom aftur,
gat ég varla grillt þau gegnum reyk-
inn. Ingmar Bergman keðjureykir,
og Greta gefur honum ekkert eftir í
þeim efnum.
Okkur var oft boðið í fámenn
samkvæmi, meðan Greta dvaldist
hjá okkur, og oftast kom hún með.
Eitt sinn sagði hún: — Þið þurfið
ekki að hafa mig alltaf með, það
getur ekki verið gaman fyrir ykkur
að hafa mig alltaf í eftirdragi. Þegar
ég reyndi að segja henni, að okkur
væri yfirleitt ekki boðið svona oft
út, og gaf í skyn, að vinsældirnar
stöfuðu einmitt af návist hennar, þá
skildi hún ekki, hvað ég var að
fara.”
Hér ljúkum við frásögn Kerstinar
Berndotte, frásögn sem dró dilk á
eftir sér og spillti áralangri vináttu
kvennanna tveggja. Hver er svo
þessi kona, sem brugðist hefur
trúnaði Gretu eftir öll þessi ár?
Kerstin Bernadotte er dóttir
þekkts sænsks uppeldisfræðings,
dr. Henning Wijkmark að nafni.
Hún starfaði lengi við blaða-
mennsku og giftist árið 1935 iðn-
jöfrinum Axel Johnson. Hún skildi
við Axel, þegar hún kynntist Johan
Bernadotte greifa og giftist þeim
siðarnefnda 1946. Hún hefur tekið
mikinn þátt í samkvæmislifi og er
virt og vinsæl í heimalandi sínu.
En frægasta vinkona hennar á
vafalaust bágt með að fyrirgefa
henni nokkurn tima trúnaðarbrotið.
^ ^
47. TBL. VIKAN 33