Vikan - 18.11.1976, Page 40
UNDARLEG JARÐARFÖR.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi, að ég væri komin
á jarðarför og veriö væri að jarða
einhvern góðkunningja minn (ég
sá líkið ekki skýrt). Líkið lá ekki í
kistu heldur á opnum börum, sem
voru rétt innan við útgöngudyrn-
ar. Sætaskipan í kirkjunni var
þannig, að fólk sneri andlitum
saman í staðlnn fyrir að horfa í
hnakkann á næsta manni, sem er
venjan. Ég sat þannig, að ég sneri
baki í altarið og blasti líkið við mér.
Mér fannst framkoma fólksins
alveg furðuleg. T.d. sat maður
hinum megin í kirkjunni og
klappaði hann að loknum sálma-
söngnum. Einnig fannst mér fólk
sífellt vera að streyma inn og út úr
kirkjunni. Allt í einu fannst mér að
gamall kennari minn væri kominn
við hliðina á mér og spurði hann
mig, hvern væri verið að jarða. í
því hvarf allt í móðu og ég
vaknaði.
Þessi draumur leggst illa í mig,
og þætti mér vænt um, ef þú
gætir lesið eitthvað úr honum fyrir
mig.
Með fyrirfram þökk og virðingu,
Guðný H.
Ef þú ert ógift boöar þessi
draumur þér giftingu þina innan
skamms. Sért þú hins vegar gift,
er hann fyrir óvæntum umskiptum
í lífi þínu. Ennfremur boöar
draumurinn mótiæti og sorg og
eftir því sem best veröur séö
dauösfall kennarans eöa einhvers,
sem er honum nákominn.
EIGNAÐIST BARN.
Kæri draumráðandi!
Þann draum dreymdi mig, að
mér fannst ég vera barnshafandi
Eignaðist ég síðan barnið og var
það alveg sársaukalaus fæðing,
fremur þægileg. Ég man að ég var
að segja mömmu og vinkonum
mínum að barnið, sem var svein-
barn, hefði ekkert grátið heldur
brosað til mín og ég brosað á
móti. Einnig sagöi ég, að ekki
hefði þurft að hvolfa honum (?).
Strákurinn var ekki eins umkomu-
laus og venjuleg börn og líktist
hann fremur nokkurra mánaða
gömlu barni. Mér þótti undur
vænt um hann, en ekki kom neitt
fram, hver faðirinn var. Fannst
mér sem ég færi með barnið í
skólann með mér (þar sem ég
stunda nám) og hafði ég hann
þar, en samt ekki í tímum. Ég
skildi hann eftir í skólanum þegar
Míg
dreymdi
ég fór heim og gaf honum pela
með mjólk í áður en ég fór. Ég
hafði áhyggjur af því að skilja
hann eftir í skólanum yfir nóttina,
en mér fannst ekki annað koma til
greina. Um morguninn þegar ég
kom í skólann fannst mér eins og
engir væru þar. Heyrði ég þá
sáran grát og hljóp til þess aö
hugga barnið og gefa því pela. Ég
var eitthvað leiö vegna þess að
það var súrlykt af pelanum, en
barnið lét það ekkert á sig fá og
virtist ánægt. Ég spurði mömmu,
hvort ekki mætti gefa honum
eitthvað annað en mjólk, en hún
sagði að barnið væri of ungt. Mér
fannst það samt ekkert lítiö.
Mamma spurði hvort ég ætlaði
ekki að leggja það á brjóst, og
kvað hún það nauðsynlegt fyrir
barnið. Ég ætlaði þá að leggja það
á brjóst, þótt mér væri ekki vel
við það og fannst líka óþægilegt
að gera það þarna í skólanum og
láta alla sjá. Þó held ég, að enginn
hafi verið þar nema ég, barnið og
mamma. En barnið vildi ekki
sjúga, enda fannst mér engin
mjólk vera í brjóstunum. Mér
fannst það samt allt í lagi, vegna
þess að mér fannst það alls ekki
nauðsynlegt fyrir barnið.
Endaði draumurinn svo. Með
von um birtingu.
L.J.
Þessi draumur er fyrir erfiöleik-
um í ástamálum. önnur áform
munu heppnast meö ágætum og
veita þér mikla g/eöi. Þó máttu
búast við einhverjum slæmum
fréttum á næstunni.
RÁÐNING.
Kæri draumráðandi!
I 40. tbl. birtir þú draum undir
nafninu „Brennandi strætis-
vagn." í því bréfi sagðist ég ætla
að skrifa þér og segja þér frá
atviki, sem ég held að draumurinn
hafi boðað.
Þessi vinur minn, sem stökk út í
tjörnina, fótbrotnaði illa í umferð-
arslysi nokkru eftir að mig dreymdi
drauminn og þurfti að liggja á
FORSETI OG FRÚ.
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða
fyrir mig draum, sem mig dreymdi
síðastliðna nótt.
Mér fannst að einhverjar kosn-
ingar væru nýafstaðnar og úrslit
þeirra sýndu, að maðurinn minn
væri líklegur til að veröa næsti
forseti. Mín viðbrögð við þessu í
draumnum voru þau, að mér
fannst þetta sprenghlægiiegt, og
sá sjálfa mig fyrir mér sem
virðulega forsetafrú. Svo fannst
mér við hjónin vera að búa okkur
eitthvað að heiman. Ég ætlaði að
vera fín, en fann þá enga sokka,
nema götótta og fannst það ekki
viðeigandi. Ég loitaði síðan að
sokkum þartil ég vaknaði og varð
ég þá fegin.
Ég vona að þú getir ráði þetta
fyrir mig.
Sveitakona.
Draumurinn gæti veriö eins
konar aövörun í sambandi við
fjármáiin. Það gæti fariö svo að
þiö hjónin þyrftuö að taka mikiis-
veröar ákvaröanir á þeim vett-
vangi. Götóttu sokkarnir eru tákn
einhvers tjóns eða veikinda og eru
því i samræmi við annaö í
draumnum.
GULLHRINGAR FRÁ PABBA.
Kæri þáttur!
Mig langar til þess að biðja þig
að ráða eftirfarandi draum, ef
hann táknar eitthvað.
Ég lá í rúminu mínu og fyrir
framan mig sat pabbi. Mér fannst
hann vera að gefa mér tvo
gullhringa, sem ég hafði á baug-
fingri. Annar var með Ijósbláum
steini, en hinn var alveg eins og
túlofunarhringur, sléttur og
breiður.
Ég var eitthvað að tala um að
mér þætti þeir ekki fara vel þarna á
sama fingrinum, en þá sá ég að
hringurinn með steininum var
farinn, og í stað hans var kominn
mjór gullhringur með litlum skær-
bleikum steinum. Dáðist ég mjög
að hringunum og fannst þeir
sérstaklega fallegir á hendinni á
mér.
Draumurinn var ekki lengri.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðn-
inguna.
N.N.
Þessi draumur bendir ótvírætt
tii þess að þú munir giftast innan
skamms. Þú munt verða sérstak-
lega hamingjusöm í hjónabandinu
og aiit mun leika í lyndi.
EIN Á VÍÐAVANGI.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til þess að biðja þig
að ráða þennan draum tyrir mig.
Mig dreymdi hann fyrir skömmu
og var hann mjög skýr.
Mér fannst ég vera stödd á
stórum akri og enginn maður var
nálægt mér. Ég leit allt í kringum
mig eins og til þess að athuga
hvort ég sæi nokkuð athyglisvert
og kom þá auga á vindmyllu í
nokkurri fjarlægð. Ég tók á rás og
hljóp í áttina þangað, en heyrði þá
mikinn þyt yfir höfði mér. Þegar
ég leit upp sá ég stóran hóp af
smáfuglum sem virtust vera að
elta mig. Það greip mig einkenni-
leg hræðsla og ég hljóp eins og
fætur toguðu til myllunnar. Þegar
ég kom þangað og ætlaði inn
hrundi myllan skyndilega til
grunna, en fyrir framan mig stóð
kona með andlitsblæju og rétti
hún mér lítinn spegil. Í sömu
svipan vaknaði ég og varð draum-
urinn því ekki lengri.
Ég vona að þú birtir þetta. Með
fyrirfram þökk.
B(b(.
Þú munt eiga fyrir höndum.
erfitt starf, sem þó mun færa þér
ríku/ega uppskeru. Þú verður
hamingjusöm I ástum, en ættir
samt aö vara þig á fóiki, sem viii
notfæra sér góösemi þina. Þú átt
fyrir höndum feröaiag tii framandi
ianda, iikiega tii þess aö mennta
þig og þú getur lagt óhrædd út i
hvaö sem verkast viii. Hamingjan
mun aiitaf reynast þér hliðholl.
40 VIKAN 47. TBL.