Vikan - 30.03.1978, Blaðsíða 14
PÓSTIRIW
Lögreglunám
Kæri Póstur!
Ég veit ekki, hvort þú getur
svarað þessum sþurningum, en
ég vona, aðþú sért svo klárí
kollinum að geta svarað þeim...
Héma koma sþurningamar:
1. Hvað þarf maður að vera
búinn að læra mikið til þess að
ganga í lögregluna? 2. Hvað
þarf maður að vera gamall til
að ganga í lögregluna? 3■ Þarf
maður að ganga í einhvem sér-
stakan skóla til þess að verða
lögregla? 4. Ef svo er, hvað
kostar þáþað nám? 5. Hver er
haþþalitur, haþþadagur, haþþa-
steinn og haþþatala þeirra, sem
eru fæddir 2. júní? Og svo
kemur önnur sþurning varðandi
lögreglunám: Hvað þarf maður
að vera stór til þess að ganga í
lögregluna? Svo koma gömlu,
góðu sþumingamar: Hvað
heldurðu, að ég sé gömul? Og
hvað eru margar stafsetningar-
villur í bréfinu???
Ein héðan.
Eftirtalin skilyrði þarftu að
uppfylla til þess að geta hafið
nám í Lögregluskóla ríkisins:
Þú þarft að vera ráðinn
(starfandi) lögregluþjónn, vera
á aldrinum 20-30 ára og líkam-
lega hraust og heilbrigð. Þú
þarft að hafa hreint saka-
vottorð og auk þess
gagnfræðapróf eða hliðstæöa
menntun, þ.e. einhverja fram-
haldsmenntun. Þú byrjar á að
sækja um starf sem lögreglu-
þjónn, og þegar þú ert ráðin,
ferðu sjálfkrafa inn í Lögreglu-
skóla ríkisins. Skólinn byrjar
yfirleitt í október á haustin, og
er þá í sex vikur. Eftir það er
eins árs starfsþjálfun og síðan
18 vikur á skólaþekk. Frekari
upplýsingar færöu á skrifstofu
lögreglustjóra, s. 10200.
Happatölur þeirra, sem fæddir
eru 2. júní, eru 2 og 5,
happadagur er miðvikudagur,
happalitur er silfurgrátt, og um
steininn veit ég ekki. Þú ert 14
ára, og það var ein villa í
bréfinu.
Eskifjörður
og aftur
Eskifjörður
Elsku Póstur!
Eg hef einu sinni skrifað þér
áður, og þú birtir það bréf. Eg
er þér þakklát fyrir það og
vona, að þú birtir þetta líka.
Þannig er mál með vexti, að
það eru tvær stelþur í mínum
bekk, sem tala ekki um annað
en Eskifjörð og aftur Eskifjörð.
Þær eru nefnilega svo ferlega
skotnar í einhverjum strákum
þar, og það virðist vera eitthvað
ferlegt STUD, þú skilur. Þessa
dellu þolir enginn ískólanum.
Ég er mjög mikið með annarri
stelþunni, og stundum talar hún
ekki um annað en Eskifjörð, en
stundum er hún skemmtileg.
Hvemig á égaðfá þær til að
hætta þessari dellu, slá þær
utanundir eða hvað? Elsku
Póstur, hjálþaðu mér. Með
fyrirfram þakklætifyrirbirt-
inguna.
Gunna.
P. S. Hvað lestu úr skriftinni, og
hvað heldur þú, að ég sé
gömul? Afsakaðu villumar.
Þú ættir bara hreinlega að
benda þeim á, að það sé
enginn, sem nennir aö hlusta
á þetta Eskifjarðartal, og þær
komi bara til með að missa
vini sína þarna, ef þær haldi
þessu áfram, svo annaðhvort
verði þær aö hætta þessu tali,
eða flytja til Eskifjarðar. Ef
þær láta sér ekki segjast,
skaltu kaupa nokkra bómullar-
pakka og bjóða öllum bómull i
eyrun, þegar þær byrja á
þessu tali sínu. Skriftin ber
vott um mikla fljótfærni, og ég
held þú sért 14-15 ára.
Ekur eins og óður maður
Kæri Póstur.
Eg veit, að maður á ekki alltaf áð vera aðfárast yfir >■
smámunum. en nú er svo komið, að ég þoli ekki meira.
Þannig er mál með vexti, að þegar maðurinn minn verður
reiður, eða þegar eitthvað hvílir þungt á honum, þá öskrar
hann ekki eins og aðnr eiginmenn, heldur hleyþur út í bíl
og keynr eins og brjálæðingur um allan bæ. Fyrst eftir að við
giftum okkur, þá kunni ég mjög vel að meta, að hann
skyldi þó ekki skeyta skaþi sínu á mér, en núna þegar við
höfum eignast börn og ábyrgðin er orðin meiri, þá er mér
alls ekki fanð að standa á sama, því slysin eru jú alltaf að
ske. Og t þessum ham er hann beinlínis stórhættulegur
umhverfi sínu. Hann heldur þvífram, að það finnist ekki
betri ökumaður en hann á öl/u Islandi, og ég er sammála
honum íþví, — þegar hann er ekki í brjáluðu skaþi, þvíþá
liggur hann bara á flautunni og bölvar öllum ,, hálfvit-
unum" í umferðinni, sem eru aðflækjastfyrir honum. Elsku
Póstur, hvað á ég að gera? Ekki get ég sigað lögreglunni á
minn eigin mann. Ha? Mér þykir svo vænt um hann, og ég
vil gríþa til einhverra róttækra aðgerða, ÁÐUR en eitthvað
kemur fyrir, því annars myndi ég alltaf ásaka mig fyrir að
hafa ekki gert eitthvað. Með kærri þökk fyrir birtinguna og
öll þau góðu og notadrjúgu ráð, sem Pósturinn hefur gefið í
gegnum árin.
Astfangin eiginkona í vanda•
' Ég held, að eina ráðið, sem þú getur beitt,sem einfaldlega
að tala alvarlega um þetta við hann, einhvern tíma þegar
hann er í sérstaklega góðu skapi, eða þá yfir
,,rómantískum" kvöldverði, þar sem þið eruð einungis tvö
ein. Þú verður að benda honum á það, að hann sé að gera
nákvæmlega það sama og þegar drykkjumenn flýja á náðir
flöskunnar, að það þlessist aldrei að skeyta skapi sínu á
hlutum eða fólki, þegar manni líður eitthvað illa. Það er að
flýja raunveruleikann. Nei, þá er miklu betra að nota hið
þjóðkunna húsráð að taka sér góða bók í hönd, og verið þið
viss, eftir nokkrar blaðsíður eruð þið búin að gleyma þessum
augnaþliksæsingi, sem þið voruð í.
Nú, ef þetta virðist ekki ætla að nægja til þess að sýna
honum fram á, að bíllinn er aðeins samgöngutæki, gætir þú
reynt að grípa til þess ráðs að lesa upphátt fyrir hann allar
þær slysafréttir, sem birtast í blöðunum í þeirri von að hann
geri sér grein fyrir því, að með gáleysislegum akstri ógnar
hann lífi allra þeirra saklausu borgara, sem hann ekur fram hjá
og sem ekkert hafa til saka unnið.
Þokka-
bótarplata
Kæri Póstur.
Eyrirgefðu ónæðið.
Ég veit, hvað ég ergömul, í
hvaða merki ég er og hver minn
ástkæri er. Ein sþurning: Hvar er
hægt að ná í fystu þlötu þeirra
Þokkabótarmanna? Mig minnir,
að hún heiti Uþþgjörið. Þakka
allt gamalt og gott.
14VIKAN 13. TBL.