Vikan


Vikan - 30.03.1978, Side 20

Vikan - 30.03.1978, Side 20
• Sérstök stilling fyrir straufri efni — auöveldari notkun. • BlO-kerfi — lengir þvottatimann fyrir óhreinan þvott. • Ryöfritt stál í tromlu og vatnsbelg — lengri endingartimi. • 3falt öryggi á hurö — örugg fyrir börn. • 3 höft fyrir þvottaefni og mýkingarefni. • Lósigti að framan — auövelt aö hreinsa — útilokar bilanir. • Vinduhraði 520 snún/mín — auöveld eftirmeöferö þvottar. • Vökvademparar — mjúkur, hljóölaus gangur. • 60cm breiö, 55 cm djúp, 85cm há. • Islenskur leiöarvísir fylgir hverri vél. Vörumarkaðurinn hf. Armúla ÍA slmi 86117 Electrolux þvottavélin ér til á lager á þessum útsölustööum: AKRANES: Þóröur Hjálmarsson, BORGARNES: Kf. Borgfiröinga, PATREKSFJORÐUR: Baldvin Kristjdnsson ÍSAFJORÐUR: Straumur hf., BOLUNGARVIK: Jún Fr. Einarsson, BLONDUOS: Kf. Húnvetninga, 'SIGLUFJÖRÐUR: Gestur Fanndal, OLAFSFJORÐUR: Raftækjavinnustofan sf., AKUREYRI: Akurvik hf., HOSAVIK: Grimur og Arni, VOPNAFJORÐUR: Kf. Vopnfiröinga, EGILSSTAÐIR: Kf. Héraösbúa, ESKIFJORÐUR: Pöntunarfélag Eskfiröinga HOFN: KASK, ÞYKKVIBÆR: Friörik Friöriksson, VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf., KEFLAVIK: Stapafell hf. i ‘fuírí t enginn rati.. ELECTROLUX WH SS ERUESTSELM EWTTIÍÉLIX ÍSrÍÞJÓH 1 árs ábyrgð Electrolux þjónusta Hagstæð greiðslukjör Electrolux Layonee, sem var útlendingur, vissi auðvitað ekki neitt heldur.” ,,En þó þú hafir ekki vitað það,” sagði Giles, , .geturðu kannski giskað á það? Það gerir þá ekkert til, þar sem svo langt er um liðið, þótt ágiskun þín sé ekki rétt. Þú hlýtur að minnsta kosti að hafa haft einhvern grun um, hver það gæti verið.” ,,Ja, við höfðum okkar grun- semdir, — en það var heldur ekkert meira en það. Og hvað mér viðkemur, þá varð ég aldrei vör við neitt. En Lily sem, eins og ég sagði ykkur, var ansi snaggaraleg stúlka, hún hafði sinar skoðanir — og hafði haft þær lengi. ,.Takið þið bara mark á því, sem ég segi” — var hún vön að segja. Þessi náungi er hrifinn af henni. Sjáið þið ekki hvernig hann horfir á hana, þegar hún hellir í bollann hans. Og takið þið bara eftir augnaráðinu á konunni hans.” ,,Ég skil. Og hver var þessi maður?” ,,Ég er hrædd um, að ég muni ekki hvað hann hét. Ekki eftir öll þessi ár. Esdale — nei, ekki var það það, — Emery — nei. Mér finnst einhvern veginn, að það hafi byrjað á E. Eða kannski það hafi verið H. Frekar óvenjulegt nafn. En ég hef bara ekkert hugsað um þetta í ein sextán ár. Hann og konan hans bjuggu á Royal Clarence-hótelinu.” „Sumargestir?” ,,Já, en ég held að hann, — eða kannski þau bæði — hafi þekkt frú Halliday áður. Þau komu oft í heimsókn. Að minnsta kosti sagði Lily, að hann væri hrifinn af frú Halliday.” ,,Og konunni hans var ekkert um það gefið.” „Nei... ég trúði því nú aldrei, að það væri eitthvað athugavert við samband þeirra. Og ég veit svei mér þá ekki enn, hvað ég á að halda.” „Bjuggu þau ennþá á Royal Clarence hótelinu, þegar — þegar — stjúpmóðir mín fór héðan?” spurði Gwenda. „Að því er mig minnir, fóru þau um svipað leyti, daginn áður eða daginn eftir, — það var að minnsta kosti um það líkt leyti, að það vakti umtal. En ég heyrði aldrei neitt ákveðið um það. Ef eitthvað hefur verið satt í því, þá var það að minnsta kosti þaggað niður. Furðu- legt, að frú Halliday skyldi fara svona snögglega. En sumir sögðu, að hún hefði alltaf verið laus í rásinni, — ég varð aldrei vör við neitt slíkt. Ef ég hefði haldið það, þá hefði ég aldrei samþykkt að fara með þeim til Norfolk.” Eitt augnablik störðu þau öll undrandi á hana. .Norfolk?” sagði 20VIKAN 13. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.