Vikan - 30.03.1978, Qupperneq 22
Míg
dreymdi
ÞRÍR DRAUMAR
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir
mig drauma, sem mig hefur nýlega
dreymt. 1. Mér fannst ég vera niðri við
sjó með pabba og mömmu. Varð mér
litið út á sjóinn og sá þá kött í
öldunum, og var hann alveg að
drukkna. Við horfðum á hann í svolitla
stund, og þá ætlaði pabbi að bjarga
kettinum. Hann stakk sér út í (þetta
var nokkurs konar strönd), og þá sá ég
hund úti 1 sjónum lxka, og var hann
beint á móti kettinum. Svo fannst mér
hundurinn ætla að drekkja pabba, og
fannst mér honum takast það. Ég grét
og grét og fannst allt í einu, að
mamma væri dáin líka (þau em bæði á
lxfi). Síðan fannst mér ég setjast á bekk,
og sat mamma á honum. Ég var ennþá
grátandi og sagði við hana: , ,Og ert
þú ekki líka dáin?” Þá svaraði hún:
,,Ekki alveg.” og fannst mér sem hún
meinti, að það væri stutt í það. I
draumnum fannst mér hún vera
svolítið gul í framan, og var hún í
brúnum sparikjól.
2. I morgun dreymdi mig, að ég
væri heima hjá fyrrverandi vinkonu
minni, sem við skulum kalla X. Við
vomm i sólbaði, og fannst mér við vera
að tala eitthvað um flugurnar. Við
fómm inn í húsið, og fannst mér
mamma hennar, Y, vera að koma inn
úr dyrunum með þvott. Fannst mér
hún hafa verið að taka hann af
snúmnum. Við, X. og ég, ætluðum að
fara þar út, en þá sagði Y. okkur að
passa okkur á einni stórri flugu, sem
væri úti á húsveggnum, því hún væri
stórhættuleg og gæti stungið fólk til
bana. Við löbbuðum út og sáum alveg
heljarstóra broddflugu á veggnum,
stutt frá snúmnum. Ég varð alveg
dauðhrædd, fannst sem hún gæti
drepið okkur, og flýttum við okkur
inn, svo hún gæti ekki séð okkur.
Flugan var svört með mjög stóran
brodd framan á sér, svipaðan og nál.
3. Mér fannst ég vera að greiða mér.
Var ég að flétta á mig tvær fléttur, sem
náðu niður fyrir mitti. Var ég mjög
hissa á, að hárið á mér væri orðið svona
sítt, eins og það var einu sinni. Fannst
mér maður að nafni X. vera þarna, og
var ég að hugsa, hvað ég væri orðin
hávaxin miðað við hann (hann er
miklu hærri en ég í rauninni, þar sem
ég er frekar lítil). Draumurinn varð
ekki lengri. Með fyrirfram þakklæti.
Ein berdreymin.
Allir þessir draumar eru þér fyrir góðu.
Fyrsti draumurinn boðar þér mikla
gleði, sem þú átt i vændum. Þú færð
gesti, sem þurfa aðstoðar föður þíns
við, og mun honum takast dyggilega
að veita hana, en þó er hætt við, að
hann veröi fyrir einhverju tapi í við-
skiptum vegna þess. Móðir þín verður
aö berjast til að ná árangri í einhverju,
sem hún hefur hug á, en hún á von á
auknum auöæfum og fær miklar
gleðifréttir innan skamms, sem snerta
hana beinlínis. Sjórinn í draumnum er
mikið hamingjutákn. Draumur nr. tvö
boðar þér mikinn árangur í öllu, sem þú
tekur þér fyrir hendur. Þín bíöur mikil
gæfa í viðskiptamálum, og muntu
öðlast hugrekki til að sigrast á öllum
erfiðleikum, sem að þér kunna að
steöja. Síðasti draumurinn boðar þér,
aö öll vandamál og áhyggjur, sem þú
hefur haft, veröa úr sögunni, þar sem
þú munt nú koma í framkvæmd aö
leysa úr þeim málum á eigin veg. Mjög
gott og náið samþand tekst með þér
og C, — en ósagt skal látið, hvort
aöeins er þarna um vináttu að ræða,
eða eitthvaö alvarlegra.
GAMALT ÁSTARBRÉF
RIFJAÐ UPP
Um daginn dreymdi mig draum,
sem mig langar að biðja þig að ráða.
Hann er svona: Mér fannst, að ég og
mamma værum niðri í forstofu að
sauma út. Ég lá á maganum í
stiganum, en mamma sat í tröppu. Við
vorum með súkkulaðikúlur og
borðuðum. Þá var hringt á
dyrabjöllunni, og mamma fór til dyra.
Var þá stelpa að spyrja eftir mér (S), og
fór ég til dyra. Lokaði ég dyrunúm á
eftir mér, og settumst við á handriðið.
Sá ég þá bíl keyra hægt niður götuna.
Strákur, sem ég þekki, á þennan bíl 0).
Þá sagði S. að hún væri með J., en
hann hefði beðið hana að segja þetta.
Svona byrjaði hún: ,,Þú sendirj. einu
sinni bréf, sem í stóð, að þú elskaðir
hann út af lífinu (mikið rétt). Hann
segist sjá mikið eftir því, hvernig hann
tók því og bað mig að biðja þig að
fyrirgefa sér. ’ ’ Ég sagðist skyldi
fyrirgefa honum. Þá hættum við að
tala um J. Þá sagði S. og benti: „Sérðu
stelpunaþarna, E, I hinu húsinu.” Ég
leit þangað og sá E. (Ég þekki hana
vel), þar sem hún var að gera hreint,
með kúst á lofti. Datt S. þá í hug, að
við heimsæktum E. Missti hún kjarkinn,
en ég dreif hana. Við þurftum
að spyrja einhverja konu um
leyfi til að fá að fara inn í húsið, en
þetta var í rauninni taugadeild.
Konan sagði, að við mættum fara
inn, og gengum við inn án þess að
banka. Komum við þá inn í herbergi,
þar sem var fullt af fólki, sem er skylt
mér. Ég heilsaði mjög kurteislega, og
gengum við S. inn í næsta herbergi,
sem er eiginlega bara kompa. Þar voru
tvær stelpur að teygja á milli sín garn.
Við skriðum undir og héldum beint
áfram, en önnur stelpan benti okkur á
dyr, sem við ættum að fara um. Voru
það litlar trédyr. Opnuðum við
dyrnar, og var þá E. að þvo og önnur
stelpa. Heilsuðu þær, og fórum við að
kjafta um heima og geima, aðallega þó
um stráka.
Annan draum dreymdi mig, sem var
svona: Mér fannst sem skólastjórinn í
skólanum stæði úti á miðri götu og
talaði þar um, að reka ætti hina og
þessa úr skólanum, og nefndi hann
einhver nöfn, sem ég man ekki. Með
fyrirfram þökk fyrir ráðningu, a.m.k. á
fyrri draumnum.
Anna
Síðari draumurinn er of óljós til að
nokkuð sé hægt aö lesa úr honum, en
fyrri draumurinn boðar þér fyrst og
fremst gott tækifæri til frama, sem þú
munt fá innan skamms. Þú færö miklar
gleöifréttir, sem sennilegast koma
langt aö, og einnig mun heilsa þín
verða mjög góð. S. verður fyrir
einhverju tapi, sem kemur illa viö hana,
sennilega á hún eftir að lenda í
ástarævintýri, sem hana mun iðra. Þú
færð gott tækifæri til að velja milli
góðra tilboða. E. ætti að varast að
blanda sér í persónuleg málefni ann-
arra.