Vikan - 04.05.1978, Side 6
^adolin
r* íacader
vmduer
Sadol**1
'i' gulve
K h?'VI-kombiriorel
I íli^aling
•9So lin
Síðumúla 15. Sími33070
K.S. f urunála-skúmbað
jafn ómissandi
ogsápa
í anddyri veitingahúss á hafnarbryggju í
Boston stóð ég og leit á klukkuna í
vaxandi örvæntingu, því að ég var að
missa af flugvél til New York og áfram
heim. Dyravörðurinn hafði hlaupið í burtu
til að reyna að finna leigubíl, en var ekki
kominn til baka eftir hálftíma bið mína.
Ung kona sat í fatahenginu og hélt
bókhald í stóran doðrant. Ég spurði hana
um skortinn á leigubílum. í því bar þar að
ungan mann, sem var til fara eins og
yfirþjónn. Þegar hann tók eftir vanda
mínum, sagði hann stutt og laggott: „Ókey
ég keyri þig út á völl."
Bestur hur
Á leiðinni til flugvallarins
kom í ljós, að þetta var Michael
Athanas, sjálfur veitingamaður
hins fræga „Anthony’s Pier 4” í
Boston. Michael er af albönsk-
um ættum og rekur hið 1000
sæta veitingahús í umboði föður
síns, sem stofnaði það fyrir 30
árum og er nú sestur i helgan
stein, 67 ára að aldri.
Úti á flugvelli kom í ljós, að
verkfall leigubílstjóra hafði
skollið á í Boston einmitt meðan
ég var í hádegjsmat á Anthony’s
Pier 4. Ég héfði hreinlega misst
af fluginu, ef veitingamaðurinn
hefði ekki óvænt bjargað mér úr
klípunni. Það var einstök greiða-
semi af hans hálfu, því að ég var
þarna eins og hver annar gestur
og hafði ekki fremur venju gefið
til kynna, að ég hygðist skrifa
um matstaðinn.
Anthony’s Pier 4 er talið eitt
besta veitingahús sjávarrétta í
öllum Bandaríkjunum og er það
þó ekki óhóflega dýrt. Það
stendur lengst úti á bryggjuenda
með frábæru útsýni á þrjá vegu
yfir höfnina í Boston. Skipa-
komur eru tilkynntar í hátalara-
kerfi hússins. Meðal annarra
skipa kom danskt risaolíuskip
inn í höfnina þetta hádegið.
Við hliðina á veitingahúsinu
liggur fljótabáturinn Peter
Stuveysant, þar sem matargestir
fengu sér til skamms tíma glas
fyrir matinn, meðan þeir biðu
eftir borði. í óveðrinu, sem reið
yfir austurströnd Bandarikjanna
í vetur, lagðist þessi bátur á
hliðina. Ekki hefur tekist að
rétta hann við aftur.
Áður en ég heimsótti staðinn,
var búið að vara mig sérstaklega
við öðru veitingahúsi, sem er við
brúna út á þessa sömu bryggju.
Það heitir svipuðu nafni, „The
Pier,” og er sagt hafa mun síðri
mat á svipuðu verði. Vegna
svipaðs nafns og heimilisfangs
álpast margir ókunnugir þangað
og halda, að þeir séu að fara á
„Pier 4”.
Á Anthony’s Pier 4 er hægur
leikur að sleppa með $12 eða
3000 krónur á mann á því gengi,
sem gildir, er þetta er skrifað.
Fyrir það fær maður frábæra
skeljasúpu, meðaldýran fiskrétt
og eftirrétt, svo og hálfa flösku
af ódýru víni. Ef maður vill hins
vegar humar, verður maturinn
töluvert dýrari.
Sem dæmi um forrétti má
nefna skeljasúpu, ,,New
England Chowder” á $1,45 og
humarsúpu, „Lobster Bisque” á
$1,95. Meðal aðalrétta voru
reykt ýsa í rjómasósu, „Cream
Finnan Haddie” á $4.95 og
sjávarréttasúpa, „Bouillabaisse a
la Marseillaise” á $5,95. ísterta
hússins kostaði $0,95.
Af humarréttum mátti meðal
6 VIKAN18. TBL.