Vikan - 04.05.1978, Blaðsíða 22
✓
A veikum ís
Kæri draumráðandi\
Fyrir nokkru dreymdi mig draum,
sem mig langar mjög mikið til að fá
ráðningu á. En draumurinn er á þessa
leið: Við í fjölskyldunni fórum öll út í
sumarbústað, sem við áttum. Eg var
nýbúin að eignast hálfbróður, og var að
passa hann. Ég spurði mömmu hver
væri pabbi hálfbróður míns, og hún
sagði að pað væri R., sem ég þekki.
Þau höfðu verið að kyssast í síðasta
Þorrablóti og átt svo pennan dreng
saman. Eg var alveg undrandi á hvað
hún talaði kœruleysislega um petta,
eins og pað vœri alveg sjálfsagt. Pabbi
var parna rétt hjá, en virtist varla heyra
hvað hún sagði. Mamma var líka voða
kœrulaus með drenginn, lét mig hugsa
alveg um hann. Þá kom gamall maður
og tveir krakkar með honum af næsta
bæ og var svo allt í einu komið stórt
vatn, með mjög veiku svelli á, fyrir
framan bústðinn okkar. Samt var mitt
sumarl Hinum megin við
vatnið var tangi og par var
sumarbústaður, sem fólkið ætlaði í.
Elsti bróðir minn, A., kom til mín, en
ég var alltaf að passa. Hann sagði að ég
ætti bústaðinn hinum megin við
vatnið, en ég hló bara að honum og
sagðist ekki eiga neinn sumarbústað.
A., ég og miðbróðir minn B., ætluðum
að fylgja fólkinu yfir svellið, en þegar
við vorum komin aðeins út á pað,
þorði ég ekki að fara lengra, pví ísinn
var mjög veikur. Mamma fór pá í
staðinn fyrir mig, en ég passaði
hálfbróður minn á meðan. Þá fór ég að
hugsa um, að mikið væri pað sniðugt
ef ég og elsti sonur R., myndum giftast
og hefðum hálfbróður okkar hjá okkur
(eins og hann væri sonur okkar), en
samt værum við ekkert skyld. Mér
fannst alveg sjálfsagt að hálfbróðir
okkar yrði hjá okkur, pví hér virtist
enginn hugsa um hann, nema ég. Svo
voru mamma og bræður mínir komin
heim aftur (í bústaðinn), og fórum við
A. pá inn, en bústaðurinn var á
tveimur hæðum og fórum við upp.
Eyrst komum við inn í eldhúsið, en par
var pabbi búinn að smíða stórt og
sterklegt eldhúsborð. Eg var hissa á
pví, pví par var annað lítið borð. Næst
fórum við A. inn t svefnherbergið
okkar krakkanna. Þar voru tvö rúm við
dyrnar og var annað mikið fallegra
(með tjöldum fyrir) og vildi ég endi-
legasofa tpvírúmi, en A. sagðiað
Mlg
dreymdi
B. ætti að sofa í þvt, og pá fórum við
að rtfast. Svo sá ég að rúmið var alltof
stutt fyrir mig, pá spurði ég A. hvar ég
ætti að sofa, og þá benti hann á rúm,
sem var bak við dyrnar, og lagðist ég
upp í pað. Þá rak ég augun í tískublað,
sem lá á litla rúminu, og fórum við A.
að skoða pað. Á einni opnunni var
mynd af tveimur brúðarkjólum, og
fórum við að præta um hvor væri
fallegri. Þessi, sem mér fannst fallegri
var hvítur, alsettur hvítum blómum,
en hinn var Ijðsgrænn, mjög einfaldur.
Nú var ég vakin, en ég var lengi að
komast almennilega inn í þennan
heim. A nýársnðtt dreymdi mig mikið
strákinn, sem ég var að hugsa um að
giftast hér í draumnum á undan.
Táknar pað eitthvað? Með fyrirfram
pökk fyrir birtinguna.
Dtsa.
Sumarbústaður í draumi er yfirleitt
fyrirboði hjúskaparstofnunar, og
farsæls hjónabands. Þín bíða aukin
þægindi og öryggi, sem þér mun
hlotnast óvænt og á ánægjulegan hátt.
Þó er hætt við að vonir þínar vilji
bresta, þar sem þú ert oft á tíðum
fljótfær og það kemur þér oft illa í
koll. Þú færð heimsókn gamals vinar,
sem er forvitinn um heimili þitt. Mikil
vinna er framundan hjá þér, en ekki er
víst að þú uppskerir rlkulega fyrir þá
vinnu. Aukin viðskipti eru á næsta
leiti, og þíður þín bætt staða. Þú ferð
innan skamms í ferðalag, eða færð
fréttir af fjarlægum vini eða ættingja.
Þú ættir að hugsa þig um tvisvar, áður
en þú tekur tilboði, sem þér býðst.
Heilsa þín verður góð, en hætt er við
að þú verðir fyrir einhverjum minni-
háttar vonbrigðum.
Glermunir á
útsölu.
Kæri draumráðandi
Mig langar að biðja pig að ráða
pennan draum fyrir mig, vegna pess
hve hann situr fast í mér.
Mig dreymdi, að ég væri stödd á
einhvers konar útsölu, pað sem í boði
voru alls lags glermunir. Það var
sameiginlegt peim öllum, að peir voru
glærir og útskomir, ekki ósvipaðir á að
líta og kristall. Þetta voru bollar,
könnur, vasar, diskar og pess háttar
hlutir. Eg var parna að skoða, og
sérstaklega leist mér vel á einn vasa.
Hann vareins og úr kristal, meðgylltri
rönd á brúninni. Ég tók hann og
skoðaði og sá, að á hann var skrifað
með tússi: kr. 300, 1 stk. og skildi ég
pað svo, að petta væri eini vasinn, sem
til væri. Eg ákvað með sjálfri mér að
kaupa vasann, en nú kom babb í
bátinn. Kona og tveir menn, (sem mér
fundust vera foreldrar og sonur) höfðu
verið að horfa á mig, og allt í einu
segir konan við mig, í skipandi tón:
,,Láttu mig fá vasann, ég œtla að
kaupa hann. '' Eg var nú ekki á því og
kvaðst hafa verið búin að hugsa mér að
kaupa hann sjálf. Við pjörkuðum svo
um petta dálitla stund. Konan kvaðst
hafa SAGT fyrst, að hún ætlaði að
kaupa vasann, en ég sagðist hafa
HUGSADpaðfyrst. Draumurinn
endaði með pví, að við fórum í hálf-
gerðan eltingarleik með vasann, og að
lokum skutum við máli okkar til eins
konar verslunarstjóra. Málið var hins
vegar óútkljáð, pegar ég vaknaði, en
við vorum íóða önn að sannfæra
manninn um muninn á pvt að hugsa
fyrst eða tala fyrst.
Með fyrirfram pökk.
1.
Þessi draumur er fyrir mjög góðu. Þú
átt í vændum stöðuhækkun, og henni
fylgja aukin auðæfi og mikil hepnni í
peningamálum. Þér fylgir gæfa í ástar-
málum, og einhverjir óvæntir
hamingjusamlegir atburðir eru í
vændum, mjög líklega innan fjölskyld-
unnar. Mjög fljótlega munt þú lenda í
einhverjum smávægilegum vand-
ræöum, en þú átt trausta vini og kemst
hjá leiðindum, ef þú hlustar á ráðlegg-
ingar þeirra.
22VIKAN 18. TBL.