Vikan - 04.05.1978, Blaðsíða 42
Gripið simann
gerið goð
kaup
Smáauglýsingar
mmiAÐsms
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
tækinu. Og ég held ég viti nokkum
veginn, hver bar ábyrgð á því.”
„Nú?” Það var spurnarhreimur í
rödd Giles, en Afflick hristi höfuðið.
,,Ég segi ekki neitt. En ég hef
mínar hugmyndir. Ég var beittur
svikráðum — það er nú allt og sumt
— ogég veit, hver gerði það. Og lika
hvers vegna.” Blóðið vall fram í
kinnar hans. „Skíthælar,” sagði
hann. „Njósnuðu um mig — lögðu
gildrur fyrir mig — og báru svo út
lygar um mig. Já, ég á auðvitað
mína óvini. En ég hef aldrei látið þá
beygja mig. Þeir hafa alltaf komist
að því fullkeyptu. Og ég gleymi
ekki svo auðveldlega.”
Hann þagnaði. Alit í einu
breyttist aftur framkoma hans.
Hann varð aftur ósköp ljúfmann-
legur.
„Svo ég er hræddur um, að ég
geti ekki hjálpað ykkur. Við Helen
skemmtun okkur bara svolitið
saman, það var nú allt og sumt.
Okkar samband var nú ekki
alvarlegra en það.”
Gwenda starði á hann. Frásögn
hans var ofur eðlileg — en var hún
sannleikanum samkvæmt? Eitt-
hvað var ekki í samræmi við það,
sem hann sagði, — allt í einu rann
upp fyrir henni, hvað það var.
„Hvað sem því liður,” sagði hún,
„þá heimsóttir þú hana, þegar þú
seinna komst til Dillmouth.”
Hann hló.
„Það er alveg rétt hjá þér, frú
Reed. Já, það gerði ég. Ég hef
sennilega viljað sýna henni, að ég
væri ekkert á flæðiskeri staddur,
þótt þessi montni lögfræðingur
hefði rekið mig frá fyrirtækinu. Ég
átti fyrirtæki, sem blómstraði, ég
ók á finum bíl og mér hafði í alla
staði vegnað vel.”
„Þú heimsóttir hana oftar en einu
sinni, var það ekki?”
Hann hikaði stutta stund.
„Tvisvar — eða þrisvar. Rétt leit
við.” Hann kinkaði kolli og það var
greinilegt að samtalinu var lokið.
„Mér þykir leitt að geta ekki orðið
ykkur að liði.”
Giles stóð á fætur.
„Við verðum að biðja þig að
fyrirgefa, hvað við höfum tafið þig
lengi:”
„Það er allt í lagi. Það er ágæt
tilbreyting að tala um gamla daga.”
Dymar opnuðust. Kona kom i
gættina og flýtti sér að biðjast
afsökunar.
„0, fyrirgefðu — égvissi ekki, að
það væri einhver hjá þér — ”
„Komdu inn, góða, komdu inn.
Má ég kynna ykkur fyrir konunni
minni. Þetta eru herra og frú
Reed.”
Frú Afflick heilsaði þeim með
handabandi. Hún var hávaxin,
grönn og þunglyndisleg í úthti, en
hún var alveg ótrúlega vel klædd.
42VIKAN 18. TBL.