Vikan - 04.05.1978, Blaðsíða 15
sem skrifar bréfið, sé afskap-
lega ör í skapi og fljótfær. Ég
vísa til bréfs hér á undan í
Póstinum, varðandi heimilis-
föng undir bréf. Hvað varðar
feimnina, skuluð þið (eða þú)
reyna að byggja upp þá góðu
eiginleika, sem þið hafið, og
hugsa um þá, þegar feimnin
er að yfirbuga ykkur.
Pósturinn gefur ekki upp kyn
sitt, það vitið þið vel! Helga
fær bréfið eftir nokkrar vikur,
hafið ekki áhyggjur af því.
Eldhræðsla ersálræn,og ef hún
er á háu stigi hjá þér, ættirðu
að leita aðstoðar læknis til að
byrja með. Ekki er ólíklegt, að
hann vísi þér til sálfræðings, ef
þú getur ekki yfirstigið þetta á
annan hátt.
Er að deyja
úr táfýlu af
sjálfrí sér!
Frábœn Pðstur!
Þú veist ekki, hvað ég dýrka
þig mikið. Ég cetla að spyrja þig
nokkurra spurninga. 1. Vtnkona
mín er að deyja úr táfýlu af
sjálfri sér. Hvaða ráð getur þú
gefið henni? 2. Þarf að skrifa
fullt nafn og heimilisfang ? Ef
svo er, af hverju ? 3. Hvar á
Herbert Guðmundsson söngvan
heima (Hebbi)? Ef hann er
sjómaður, eins og sagt var frá í
blöðunum, á hvaða bát er
hann ? 4. Er eitthvað að marka
spilaspá? 3. í hvaða merki ert
pú? 6. Hvaða merki fer best við
Ijómið, vogina og hrútinn? 7.
Hvað heldur pú, að ég sé
gömul (gamall), og hvort
heldur pú, að ég sé karlmaður
eða kvenmaður? (Eg veit pað,
en hvað heldur pú?)
vin(n), sem er að spila út
Segðu vinkonu þinni að fara í
næstu snyrtivöruverslun og
kaupa sér táfýlulykteyðandi.
Ödýrt og gott. Ég er þúinn að
segja — ég veit ekki hversu oft
- að það er bara algild
kurte.isisregla að setja ávallt
nafn og heimilisfang undir
bréf sín, hverjum sem
maður er að senda! Herbert
Guðmundsson mun vera bú-
settur í Vestmannaeyjum um
þessar mundir, þar sem hann er
á vertíð. Mér tókst hvorki að
hafa uppi á heimilisfangi hans
né nafni bátsins. Hvað viðvíkur
spilaspám, eru skiptar skoðanir
manna á meðal um gildi þeirra,
og Pósturinn vill ekki fullyrða
neitt um slíkt. I hvaða merki
Pósturinn er, er leyndarmál,
eins og allt annað, sem honum
viðkemur, en ég get þó upplýst
þig um, að hann er í stjörnu-
merki. Hrúturinn á best við
Ijónsstelpuna og einnig við
vogarsteopuna, en einnig eiga
Ijónsstrákur vatnsberastrákur
vel við hana (vogina). Ljóns-
strákurinn á best við hrúts-
stelpuna. Þú ert 15 ára og
kvenkyns.
Af hverju
er Bakkus
til?
Kæri Alvitur.
Ég ætla að spyrja pig í von
um að pú svarir.
1. Hvort er betra að læra á bíl,
pegar maður er 17 ára eða 37-
38 ára? Hvort heldur pú að sé
betra? 2. Hvort er betra að búa
ísveit eða íþéttbýh? 3- Af
hverju eru ekki búnar til kross-
gátur fyrir börn, léttar
krossgátur? 4. Af hverju er
Bakkus til? Hver byrjaði á að
búa hann til? Það er ekki fleira,
sem ég parf að spyrja pig um,
og ég vona, að pú birtir petta
fyrir mig.
Jóga
1. Það er best að læra á bíl,
þegar maður er 28 ára. Nei,
svona í alvöru talað, þá get ég
ekki séð, að það skipti neinu
máli, hvort þú ert 17 ára eða
eldri, ef þú bara ert nægilega
dugleg við, að læra og vandar
þig við aksturinn. 2. Það fer
eftir því, hvernig fólk er skapi
farið, hvort því finnst betra að
búa í þéttbýli eða í sveit. 3.
Lestu ekki Vikuna? Þar er í
hverri einustu Viku krossgáta
fyrir ioörn, létt og skemmtileg,
en um leið þroskandi. 4. Með
þessari spurningu slær nú alveg
út í fyrir þérl! Hver byrjaði'að
BÚA Bakkus til???? Bakkus er
vínguðinn, og var hann
dýrkaður mikið í Grikklandi til
forna. Nafnið er dregið af
nafninu Bacchos, sem þekkt er
frá 5. öld. Hver bjó hann til?
Upphaflegt nafn hans var
Dionysus og hann var sonur
Zeus og Semela, sem var dóttir
Cadmusar. Ertu einhverju
nær?l! (Eg er það sko ekki ...!).
Akureyri Reykjavik
Tryggvabraut 14 Sfóumúla 33
s 21715 & 23515 s 86915
Bflaleiga Akureyrar
Winther
vinsælustu og bestu þríhjóiin
Varahlutaþjónusta.
örnim
Spitalastíg 8, simi 14661, pósthólf 671.
18. TBL. VIKAN 15