Vikan - 04.05.1978, Page 54
— Fáðu þér aldrei meira en
einu sinni á diskinn.
— Drekktu ekki með
matnum, en drekktu gjarna
eitt glas af vökva fyrir eða eftir
mat.
— Borðaðu hægt og rólega
og tyggðu matinn vel. Sértu
einn, þá er ráð fyrir þig að
horfa á sjónvarp, lesa eða
hlusta á útvarp, meðan þú
borðar. Maturinn gefur þér
meiri fyllingu, boröir þú hann
hægt.
— Kauptu ekki í matinn,
þegar þú ert svangur — þá er
hætta á, að þú freistist til að
kaupa meira af girnilegum
fitandi mat en þú ætlaðir.
— Sparaðu fitu og sykur í
matinn, og borðaðu frekar
kartöflur, grænmeti, gróft
brauð, ávexti, fisk og egg.
— Teldu hitaeiningarnar
fyrstu dagana — þú verður
fljótur að komast upp á lagið
með það.
— Það er áríðandi að velja
millimáltíðir, sem ekki eru fit-
andi. Til dæmis jógurt, hrá-
salat, epli, ekki þó súrt epli,
því af því verður maður enn
svengri, tómata, agúrku
gulrót. Af drykkjum milli
máltíða getur maður einna
helst valið kaffi eða te án
sykurs, undanrennu, súpu-
seyði.
— Og að lokum — hreyfing,
svo sem sund, badminton,
hjólreiðar o.s.frv. gera
ótrúlega mikið gagn.
Sítrónur
Sítróna er til margs nýt. Við
getum t.d. skorið hana í
tvennt og pressað safann úr
öðrum helmingnum saman
við glas af vatni. Þetta
drekkum við án sykurs á
fastandi maga, það verkar
hreinsandi á innyflin. Og hinn
helminginn má nota í síðasta
skolvatnið, þegar við þvoum
hárið. Það gefur hárinu ekstra
glans.
Aukakílóin
landsþekktu
Hinir svonefndu undra-
kúrar, sem eiga að fá kílóin
til að renna af manni á undra-
verðum tíma, eru nú að
syngja sitt síðasta. Flestir hafa
uppgötvað það, að kílóin
koma fljótt aftur.
Staðreyndin er sú, að
breyti maður ekki matar-
venjum sínum getur maður
ekki haldið eðlilegri þyngd,
eða þeirri þyngd, sem maöur
óskareftir.
Margir bæta 2-3 kílóum á
sig í kringum jólin eða í jóla-
mánuðinum, og fyrst það hef-
ir tekið það um það bjl mánuð
að bæta þessum 2-3 kílóum á
sig, tekur það líka um mánuð
að losa sig við þau. Eiginlega
getur maður verið hæst-
ánægður að missa hálft kíló á
viku, og það ætti ekki að
vera mjög erfitt.
Vilji maður aftur á móti vera
duglegri og losa sig við meira
en 2-3 kíló, verður þolinmæði
að vera til staðar. Vilji maður
t.d. missa 12 kíló, er athug-
andi að reikna með ca. 8-10
mánuðum til þess arna.
Hér eru nokkrar af þeim
reglum, sem viðurkenndar eru
af ýmsum sérfræðingum á
sviði næringarfræðinnar:
— Sjáðu um, að maturinn
sé útbúinn svo lystilega sem
unnt er.
— Dreifðu matnum vel út á
diskinn, svo hann sýnist rneiri
en hann er.
Er agúrkan
orðin lin?
Það getur þú lagað með því
að skera af endanum og láta
agúrkuna í vatnsglas í um það
bil eina klukkustund. Leggir
þú ismola með, gengur þetta
enn betur, og agúrkan verður
sem ný.
ISkótískan í
sumar —
sandalar —
bandaskór
Enginn vafi er á því, að við
munum í sumar koma til með
að sjá marga fætur íklædda
sandölum af margs konar
Igerðum og þá annað hvort
með kínahæl eða alveg flatir.
Okkur hefði nú fundist fremur
ótrúlegt, að við myndum
ganga í svona skóm, eins og
notaðir voru fyrir um 30 — 40
Iárum síðan. En svona er það
og hefur alltaf verið, að það,
sem okkur þykir fráleitt, að
við munum nokkru sinni láta
sjá okkur í, það erum við
komin í, áður en við vitum af.
Þessir sandalar fara sér-
staklega vel við víð pils og
stórar blússur eða peysur. Og
svo eiga sokkarnir að vera
niðurrúllaðir. Sumum kann að
I virðast þessi tíska vægast
| sagt Ijót, en ef betur er að
gáð, þá fer þetta ungum
stúlkum mjög vel.
En við komum til með að
geta notað háhælaða skó
einnig, og þá til fínna brúks.
Fínu skórnir eru flestir með
mjæg háum hælum og mikið
opnir, eiginlega bandaskór.
Og á þeim flestum er ökla-
j band. Litir eru áberandi mikið
| pastellitir og eiginlega allir li_tir
aðrir en svart og brúnt. Svo
að þetta sumarið ættum við
að geta fengið sitthvað við
okkar hæfi, og er þegar komið
úrval af sandölum i verslanir i
Reykjavík.
i stuttri sögu eftir Colette er
sagt frá miðaldra konu, sem
er að laga sig til og undirbúa
54 VIKAN 18. TBL.