Vikan - 04.05.1978, Síða 55
stefnumót sitt viö fyrrverandi
elskhuga, sem hún hefir ekki
séð árum saman. Hún lýsir þvi
á einni og hálfri blaðsíöu bók-
arinnar, hvernig skór kon-
unnar koma upp um hana,
jafnvel áður en hún byrjar
samræður við einhvern. Að
vísu lifum við ekki á tímum
Colette í París, en ef við
hugsum nánar um þetta atriði
með skóna, er ekki eitthvað til
í þessu?
Konur á íslandi eiga að
jafnaði erfiðara með að ganga
í skóm, líkum þessum sem við
sjáum hér á síðunni, vegna
veðráttunnar, en þó ætti að
vera tækifæri að sumrinu. Og
nú beinast augun að fótleggj-
um kvenna, þetta sumarið,
svo að við skulum huga að
fótleggjum okkar. Snyrta þá
og hugsa betur um þá, þannig
að við séum betur undir það
búnar að ganga berfættar í
skónum í sumar.
Hér eru nokkrar myndir af
skóm, sem eru sérlega til þess
fallnir að láta fæturna njóta
sín. Þessar myndir eru allar úr
erlendum blöðum, og enn
hefi ég ekki séð nema lítið
úrval af kvenlegum skóm hér.
Þó hefir Moons haft upp á að
bjóða afar fallega skó, ekki
ólíka þeirri gerð, sem mynd-
irnar sýna. Hafa þeir verið í
ýmsum litum, svo sem bláum
bleikum, fjólubláum, hvítum
o. fl. litum, sem sannarlega er
mikil tilbreyting frá brúnum
og svörtum litum. ,,Brown
shoes don't make it," fræddi
Frank Zappa okkur á í lagi
með sama titli.
Nú,-auðvitað eru alls ekki
allar konur tilbúnar til aðganga
í svona skófatnaði. Þær kjósa
heldur lághælaða skó og
breiða, sem að sjálfsögðu fer
betur með fæturna. Aðrar eru
hávaxnar og kæra sig ekki um
að sýnast enn hærri. Við
veröum því að álíta, að þessi
skótíska sé einkum hentug
fyrir þær lágvöxnu og er
reyndar í stöku tilfellum hrein-
asta þarfaþing fyrir þær.
18. TBL. VIKAN55