Vikan - 08.06.1978, Qupperneq 2
Vikan
23. tbl. 40. árg. 8. júní 1978
Verð kr. 530
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 Matur og vín I Kaupmannahöfn, 4. grein eftir Jónas Kristjánsson: Tokanten.
12 „Öll tónlist á rétt á sér.” Viðtal við Berglindi Bjarnadóttur og Rúnar Matthíasson sálfræðinema.
16 Drottningin listræna.
28 Leikkona ársins — Diane Keaton.
34 Bíóin i Reykjavik, 5. grein: Austur- bæjarbíóog Hafnarbió.
SÖGUR:
18 Andlit án grímu. Sjötti hluti frant-
haldssögu eftir Sidney Sheldon.
36 Bláa nælan. 2. hluti framhaldssögu
eftir Lois Paxton.
44 Móðurást. Smásaga eftir Thyge
Borg.
FASTIR ÞÆTTIR:
2 Mest uni fólk: Eyjakonur I afmælisskapi.
6 Pósturinn.
26 í rniðri viku.
31 Tækni fyrir alla.
32 Blái fuglinn.
38 Stjörnuspá.
41 Popplræðiritið: Aerosmith.
43 Migdreymdi.
47 1 næstu Viku.
48 Eldhús Vikunnar: Kinverskir réttir
50og 54 Heilabrot.
ÝMISLEGT:
10 Gætið heilsunnar og vaxtarlagsins.
Eyjakonur í
afmælisskapi
fnEJT
um
FÓLK
Það var á dögunum að við
fréttum að félag Eyjakvenna á
landi ætlaði að halda afmælis-
fund. Flestum eru hörmung-
arnar, sem dundu yfir Vest-
mannaeyjar enn svo ríkar í
minni, og langaði okkur til að
forvitnast um þetta félag og sjá,
hvernig þeim Vestmanneying-
um, sem flyttust í land, gengi að
halda sambandi hver við annan.
Kvenfélagið Heimaey var
stofnað í apríl 1953 og á því 25
ára afmæli á þessu ári. Félagið
hefur starfað fyrst og fremst sem
líknarfélag en einnig er þvi
ætlað að viðhalda kynnum
meðal þeirra kvenna, sem
Og hér höfum við þrjár af þeim fimm konum, sem skipuðu fyrstu stjórn félagsins. Til
vinstri Hulda ICristmannsdóttir, Sigriður Þorgilsdóttir ogStellaGuðmundsdóttir.
Þessar hýru vinkonur heita t.v. Anna
(Ljósmyndir. Biarnleifur Biarnleifssonl.
Guðjónsdóttir og Ása Haraldsdóttir.
flytjast frá Vestmannaeyjum.
Félagið hefur verið mjög virkt
og m.a. staðið fyrir kaffisölu
einu sinni á ári, og hefur það
venjulega verið gert í kringum
lokadaginn, sem er 11. maí, en
þá er einmitt alltaf mikið um
dýrðir í Vestmannaeyjum, og
allir, sem vettlingi geta valdið,
reyna þá að gera sér dagamun.
Einnig er haldin árshátíð á
hverju ári, og verður hún í
nóvember. Búist er við því, að
mikill fagnaður verði í ár í tilefni
afmælisins og að Vestmann-
eyingar af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu eigi eftir að fjölmenna.
Um jólin hefur það verið
venja, að konurnar færðu bæði
þeim Vestmanneyingum, sem
liggja á sjúkrahúsum, og þeim,
sem eru á elliheimilum, svolítinn
jólaglaðning. Einnig hefur verið
farið einu sinni á ári í stutt
ferðalag, og að þessu sinni
verður farið i júní, til Vest-
mannaeyja, og er það að
sjálfsögðu í tilefni afmælisins.
Núverandi stjórn félagsins er
þannig skipuð:
Ingibjörg Karlsdóttir, form.
Birna Baldursdóttir, gjaldkeri.
Helga Helgadóttir ritari.
H.S.