Vikan - 08.06.1978, Side 10
Gætiö he\
'+íi/tt
Þessa æfingu þekkja þeir, sem fylgdust
með skíðaæfingunum í sjónvarpinu i
vetur. Hoppið myndarlega til skiptis til
hægri og vinstri. fjaðrið vel og teygið úr
ristinni. Hristið þreytuna vel úr
totunum á eftir.
Slandið með hælana á bók. Hafið bakið
beint. meðan þið beygið ykkur i hnjám
og mjaðmarlið. Fjaðrið létt á þyngsta
punktinum. Sveiflið örmunum. meðan
þið fjaðrið i hnjánum, en beygið ykkur
ekki meira en svo. að þið haldið bakinu
þráðbeinu. Góð æfing fyrir fætur og
bak.
*r\ inj cpl ^
....
llllllll! œ lllllllll § I Illlllll! Illllllll 04 cg lllllllll co OJ lllllllll lllllllli IO ^CD CJ lllllllll & lllllllll 00 esj
H'illhl I • • I! • . i iiim 1' lll lllll ‘ .1' 'l'lll niilini inilim iiiilmi
Víst er notalegt að hvílast og slappa af í sólbaði. En
við megum ekki gleyma þvi, að líkaminn þarfnast ekki
aðeins hvíldar í sumarfríinu, hann þarfnast einnig
hreyfingar. Ef við erum bara löt í sumar, verðum við
erm slappari, þegar við mætum vetrinum á ný. Þess
vegna ættum við ekki að telja það eftir okkur að
trimma svolítið í sumarfríinu, gera nokkurra mínútna
leikfimi daglega og fara a.m.k. tvisvar eða þrisvar
sinnum í viku í góðar gönguferðir, og árangurinn
lætur ekki á sér standa. Best er að skiptast á að ganga
í fimm mínútur og hlaupa í fimm mínútur, það er
mjög góð líkamsrækt. Meðfylgjandi leikfimiæfingar er
hægt að gera í sólbaði, heima í stofu eða hvar sem
best hentar. Farið rólega í æfingarnar í byrjun, en
fjölgið þeim síðan eftir því,sem þróttur vex.
Liggið á maganum með armana teygða
fram og ennið mót gólfi. Teygið vel úr
ykkur og lyftið hægra armi og vinstra
fæti. Lyftið alls ekki mjöðmunum og
horfið niður allan timann. Slakið á. og
lyftið síðan vinstra armi og hægra fæti
eins. Styrkir bakið.
Standið bein með armana niður með
siðum. Teygið armana litið eitt aftur og
beygið ykkur áfram i mjaðmarliðnum.
en haldið bakinu beinu. Finnið. hvernig
tekur i lærvöðvana, en beygið ekki
lengra en svo. að bakið bogni ekki.
Lyftið örmununt til hliðar og upp og
reisið ykkur upp i lóðrétta stöðu. Látið
armana siga og slakið á. Góð æfing fyrir
bakvöðvana.
Tvo þarf til þess að gera þessa æfingu,
sem styrkir lærvöðvana. Sitjið and-
spænis hvor öðrum með aðskilda
fætur, annar með báða fætur utan við
hinn um ökla. Sá ytri reynir siðan að
pressa saman fætur hins, sem á móti
reynir að þrýsta þeim sundur. Skiptið
um stöðu. Styrkir lærvöðvana.
Liggið á bakinu með hnén reist og arm-
ana niður með siðum. Þrýstið iljunum
vel niður i gólfið og beitið lær - og
rassvöðvum til að lyfta ykkur frá gólfi
þannig. að likaminn sé' sé beinn frá
öxum að hnjám. Háls og armar eiga að
vera slakir. Látið síga aftur niður og
slakið á. Góð æfing fyrir lær - og
bakvöðva.
Liggið á bakinu með hnén reist, spennið
greipar aftur fyrir hnakka með oln-
bogana vel út. Lyftið efri hluta likamans
frá mitti vel upp og til hliðar, látið siga
hægt niður og slakið á. Gerið eins til
hinnar hliðarinnar. Góð æfing fyrir
magavöðva.
Standið bein. réttið annan arminn út og
upp fyrir höfuð og beygið ykkur til
hinnar hliðarinnar. fjaðrið nokkrum
sinnum. réttið siðan úr ykkur og látið
arminn síga. Gerið eins á hinn veginn.
Áriðandi er að standa jafn þungt i báða
fætur og beygja sig ekki fram. Þessi
æfing á að taka i mittið og þjálfa hliðar-
sveigju hryggsúlunnar.
Liggið á bakinu og kreppið hnén, svo að
fæturnir lyftist frá gólfi. Haldið
leggjunum i láréttri stöðu, meðan þið
færið fæturna til skiptis fram og til baka
aldrei lengra en svo, að ykkur takist að
halda bakinu niður við gólf allan
timann. Góð æfing fyrir magavöðva.
Liggið á hliðinni með arminn beinan
undir höfðinu. Lyftið efri fætinum
beinum, en ekki hær® en svo, að bein
lina sé frá mitti ogfram i tíl. Þaðer mjög
mikilvægt i sambandi við þessa æfingu.
Gerið eins á hinni hliðinni. Siðar má
gera æfinguna erfiðari með því að lyfta
neðri fætinum fætinum upp að þeim
efri. Einkum fyrir maga- og bakvöðva.
10VIKAN 23. TBL