Vikan - 08.06.1978, Page 22
„Moody. Hann hélt, að það skipti
engu máli.”
„Skipti engu máli! Til hvers heldur
hann, að lögreglan sé? Við hefðum
kannski getað sagt til um hver kom
sprengjunni fyrir, bara með því að líta á
hana. Við höfum spjaldskrá yfir M.O.”
„M.O.?”
„Modus Operandi. Fólk kemur sér
upp föstum vana. Ef það gerir eitthvað á
vissan hátt í fyrsta skiptið, þá eru allar
líkur á því, að það haldi því áfram — ég
við komumst að því.”
„Nei,” sagði Judd hugsi. Moody hlaut
að vita þetta. Var einhver ástæða fyrir
þvi, að hann vildi ekki sýna McGreavy
sprengjuna?
„Dr. Stevens — hvers vegna réðstu
Moody?”
„Ég fann hann I simaskránni.”
Honum fannst það hljóma fáránlega um
leið og hann sagði það.
Hann heyrði Angeli kingja. „Ó. Þú
ANDLIT
ÁN GRÍMU
veist þá ekki nokkurn skapaðan hlut um
hann?”
„Ég veit, að ég treysti honum. Því
spyrðu?”
„Nú sem. stendur,” sagði Angeli,
„held ég að þú eigir ekki að treysta nein-
um."
„En það er ekki með nokkru móti
hægt að setja Moody I samband við
þetta mál. Guð minn góður. Ég valdi
hann af handahófi úr simaskránni."
„Mér stendur alveg á sama, hvernig
þú náðir í hann. Það er eitthvað bogið
við þetta. Moody segist ætla að setja upp
gildru fyrir þá, sem eru að eltast við þig.
en hann lokar gildrunni ekki fyrr en búið
er að fjarlægja agnið, svo við getum ekki
komið þessu á neinn. Svosýnir hann þér
sprengju i bilnum þinum, sem hann
hefði getað sett þar sjálfur. Og vinnur
traust þitt. Rétt?”
„Það er sjálfsagt hægt að líta þannig á
málið," sagði J udd. „En —1'
„Kannski er allt i lagi með Moody vin
þinn, og kannski er hann að leika á þig.
Ég vil að þú farir hægt i sakirnar, þar tii
við komumst að þvi.”
Moody á móti honum? Þvi var erfitt
að trúa. Og þó minntist hann fyrri efa-
semda sinna, meðan hann hélt að
Moody væri að senda hann I launsátur.
„Hvað viltu að ég geri?” spurði J udd.
„Hvernig finnst þér að fara úr borg-
inni? Ég á við i raun og veru."
„Ég kemst ekki frá sjúklingum mín-
um.”
„Dr. Stevens —V
„Auk þess," bætti Judd við. „myndi
það ekki leysa neinn vanda, er það? Ég
myndi ekki einu sinni vita, frá hverju ég
væri að flýja. Þetta myndi allt byrja aft-
ur, þegar ég kæmi heim á ný.”
Það var andartaks þögn. „Þú segir
nokkuð þarna.” Angeli andvarpaði, og
það breyttist i más. Það var hræðilegt að
heyra til hans. „Hvenær heldurðu að þú
heyrir aftur frá Moody?”
„Ég veit það ekki. Hann virtist hafa
einhverja hugmynd um það, hver stend-
ur að baki þessu öllu."
„Hefur það hvarflað að þér, að sá.
sem stendur að baki þessu getur greitt
Moody mun meira en þú?” Rödd Angeli
var áköf. „Ef hann biður þig um að hitta
sig, hringdu þá í mig. Ég verð heima i
rúminu næstu tvo dagana eða svo. H vað
sem þú gerir, læknir, farðu ekki einn á
fund hans!"
„Þú ert að gera veður út af engu."
andmælti Judd. „Bara vegna þess að
Moody tók sprengjuna úr bilnum mín-
um —”
„Það er meira en það," sagði Angeli.
„Ég hef það á tilfinningunni, að þú hafir
valið rangan mann."
„Ég skal hringja í þig, ef ég heyri frá
honum," lofaði Judd. Honum var brugð-
ið, þegar hann lagði á. Var Angeli of tor-
Umhverffis jöröina
á 30 dögum
meó einkaþjón ef þú óskar
Og að sjálfsögðu býður þú með þér gesti á kostnað
Dagblaðsins.Slík eru sigurlaunin í áskrifendaleiknum núna.
Gistar verða nokkrar helstu stórborgir heims, þar sem
dvalið verður á lúxushótelum og má þar nefna Royal
Cliff Hotel í Bangkok, sem taliðereittglæsilegastahótel
jarðarinnar. Ferðaskrifstofan Sunna sér um ferðina.
Því fyrr sem þú gerist áskrifandi og þar með þátttakandi
í áskrifendaleiknum, því fleiri möguleika hefur þú til
að hreppa hnossið.
Njóttu þeirrar eftirvæntingar og spennu sem fylgir því
að vera með í áskrifendaleiknum okkar.
mmiAÐin
Áskrifendasími 27022
22VIKAN 23. TBL.