Vikan - 08.06.1978, Page 23
trygginn? Þaö var rétt, að Moody hefði
getað sagt ósatt um sprengjuna tii að
vinna traust Judds. Þá yrði framhaldið.
auðvelt. Hann þyrfti ekki að gera annað
en að hringja í Judd og biðja hann um
að hitta sig á einhverjum afviknum stað
undir því yfirskyni, að hann hefði sönn-
unargögn handa honum. Síðan .. það
fór hrollur um Judd. Gat honum hafa
skjátlast um skapgerð Moodys? Hann
minntist fyrstu viðbragða sinna við hon-
um. Honum fannst maðurinn þá einskis
nýtur og fremur heimskur. Síðan hafði
hann komist að því, að þetta var heima-
tilbúin grima, sem faldi snaran, skarpan
heila. En það þýddi ekki, að Moody væri
hægt að treysta. Og samt ... Hann
heyrði i einhverjum við ytri dyr mót-
tökuherbergisins og leit á úrið sitt.
Anne! Hann flýtti sér að læsa böndin
niður, gekk að einkadyrunum fram á
ganginn og lauk upp.
Anne stóð á ganginum. Hún var
klædd smekklega sniðinni blárri dragt og
hafði lítinn hatt, sem myndaði umgjörð
um andlit hennar. Hún var dreymin á
svip, og varð þess ekki vör, að Judd
horfði á hana. Hann horfði athugull á
hana, fyllti sig af fegurð hennar, reyndi
að finna eitthvað ófullkomið, einhverja
ástæðu, sem gæti sannfært hann um
það, að hún væri ekki sú rétta fyrir sig.
Sannfært hann um það, að einn góðan
veðurdag fyndi hann aðra konu sem ætti
betur við hann. Refurinn og vinberin.
Freud var ekki faðir sálfræðinnar. Það
var Esóp.
„Halló,” sagði hann.
Hún leit upp, og hrökk örlítið við. Sið-
an brosti hún. „Halló.”
„Komdu inn, frú Blake."
Hún gekk framhjá honum inn í skrif-
stofuna. og stinnur líkami hennar
straukst við hann. Hún sneri við og leit
á hann þessum ótrúlega fjólubláu aug-
um. „Fundu þeir ökumanninn, sem
stakk af?" Andlit hennar var áhyggju-
fuilt — hún hafði einlægan áhuga á mál-
ínu.
Hann fann aftur til trylltrar löngunar
til að segja henni allt. En hann visst, að
það gæti hann ekki gert. 1 bestg falli var
það ódýrt bragð til að vekja samúð
hennar. Í versta falli gæti það flækt
hana i einhverjar ókunnar hættur.
Húsgagnadeild
Jli
Jón Loftsson hf.
Hringbraut
Sendum
í póstkröfu
um land allt
f\Vandað
Vs, íslenskt
sofi
sófasett
á ótrúlega lágu verði
Staðgreiðsluverð aðeins
kr. 222.300
23. TBL. VIKAN 23