Vikan - 08.06.1978, Side 32
Marlon Brando
Migræne-
sjúklingar!
Helst
ekki súkkulaði,
ost, rauðvín,
nautakjöt
Það eru margar orsakir fyrir
migræne, og sennilega er það
þess vegna, sem svo erfitt er að
lækna þennan sjúkdóm. Ýmsar
fæðutegundir hafa verið til
athugunar og grunur fallið á
nokkrar tegundir fæðu, sem
hugsanlega gætu valdið
migræne. Efnið „tyramin,” sem
fyrirfinnst m.a. í súkkulaði, osti,
nautakjöti og rauðvíni er talið
geta hrundið af stað migræne-
kasti. Að sjálfsögðu kunna
aðrar fæðutegundir að geta
valdið því sama en þessar fjórar
fyrrnefndu fæðutegundir eru
sérstaklega nefndar.
Mjög mismunandi er, hve vel
hin ýmsu lyf verka á migræne-
sjúklinga, en stöðugt eru að
koma á markaðinn ný lyf við
migræne.
Nokkuð stór hluti migræne-
sjúklinga fá þessi köst einmitt
þegar þeir eru í fríi eða um
helgar, þegar þeir ætla að hvíla
sig og segir sig sjálft að lítið
verður þá um hvíld. Líklegt er
talið, að áðurnefnd migræneköst
komi oft eftir streitutímabil
viðkomandi.
Oft geta migræneköstin verið
svo slæm, að lyf ná vart að
deyfa sársaukann. Því ættu
migrænesjúklingar að forðast
fyrrnefndar fæðutegundir, þótt
engin fullvissa sé fyrir hendi um
skaðsemi þeirra fyrir migræne-
sjúklinga, því óþarfi er að bjóða
sársauka og kvölum heim.
*
MARLON BRANDO — þolir
ekki spegla. Hann vildi gjarna
vera hærri og grennri og viður-
kennir að með tímanum líkist
hann meira og meira gömlum
boxara.
Geðjastþérað
sjálfumþér?
Robert Redfori
Xr Svör nokkurra leikara við þessari
spurningu fara hér á eftir. Vildu
þeir breyta útliti sínu? Eða voru
þeir hæstánægðir með sjálfa
n sig?
&
*
*
*
*
*
Jf
★
★
Jf
jf
★
★
3f
Jf
Jf
BRIGITTE BARDOT — kýs
að spegla sig i augum
karlmannsins. Horfir yfirleitt
aðeins í spegil til að gleðjast yfir
að vera hún sjálf. Skilur annars
ekki hvernig nokkrum dettur í
★ ★
ROBERT REDFORD — hefir
alltaf kunnað vel við spegla.
Hann er þó aðeins farinn að
finna smábreytingar á útliti
sínu. Annars segist hann, eftir
svo langan tima fyrir framan
spegilinn, vera mjög hress með
útlit sitt og vilji ekki breyta því.
BARBRA STREISAND —
elskar að spegla sig, án fata.
Hefði gjarna viljað hafa lítil
brjóst, af gerðinni sem passa í
kampavínsglös.
LIZA MINELLI — þorir varla Barbra Streisand
að líta á sjálfa sig í spegli og enn
síður sé hún nakinn. Henni
geðjast ekki að bakhluta sínum,
segir að augnaráð karla hangi
þar, hvert sem hún fer.
JACK NICHOLSON — er óður
í spegla, stóra spegla. Þar æfir
hann sig. Vildi skipta um fætur,
segir hann, því hann er þræl-
hjólbeinóttur.
hug að spyrja hana svona
afkáralegrar sDurningar um að
breyta útliti sem hefur verið svo
fagurtsvona lengi...
Brigitte Bardot
♦
Liza Minelli
32VIKAN 23. TBL.
Jf ☆