Vikan - 08.06.1978, Blaðsíða 34
BÍÓIN í REYKJAVÍK V. HLUTI
Biðröð
umhverfis
bíóið
Stofnandi og eigandi: H.f. A ustur-
bœjarbió.
Opnað: 25. október 1947.
Fjöldisœta: 787.
Tækjabúnaður: Power sýningavélar.
Erl. viðskiptafyrirtœki: Warner
Brothers o.fl.
Vinsœiustu myndir: ,,My Fair Lady"
og What's Up Doc?"
Fjöidi mynda árl: U.þ.b. 25.
Fjöldi starfsfólks: 20.
Árið 1945 sótti Krístjárt Þor-
grímsson um leyfi til reksturs
kvikmyndahúss í Reykjavík og
var honum veitt það. Fékk
hann í félag við sig fjóra menn
og stofnuðu þeir hlutafélag um
reksturinn. Sama ár var hafin
bygging sýningahúsnæðis við
Snorrabraut og lauk fram-
kvæmdum við það tæplega
tveimur árum síðar. Húsið var
teiknað af Herði Bjarnasyni,
Gunnlaugi Pálssyni og Agústi
Steingrímssyni. Byggingarkostn-
aður mun hafa numið tveimur
til þremur milljónum króna.
Austurbæjarbíó var opnað
25. október 1947. Auðvitað
þótti hið mesta glapræði þá. að
byggja kvikmymiahús svo langt
frá miðbœnum. Fljótlega kom
þó í Ijós, að það kom ekki að
sök. Húsið var hið stærsta
sinnar tegundar I bænum og
tilvalið til hljómleikahalds og
annars þess háttar, enda byggt
með slíkt fyrir augum. Á fyrstu
árum bíósins voru þar t.d. Sjó-
mannadagskabarettarfmm ár í
röð. Voru það ákaflega fjöl-
sóttar og skemmtilegar
sýningar, sem Einar Jónsson,
gjaldkeri Sparisjóðs Reykja-
víkur sá um. Þess voru jafnve!
dæmi, að 30.000 manns kæmu
á slíkar sýningar.
Austurbmjarbló I byggingu. Húsin i nögrenni þess eru ekki mörg, eins og sjá má.
Þessi mynd af Austurbæjarbíói er
sennilega tekin, þegar mynd
Óskars Gislasonar, Siðasti bærinn i
dalnum, var sýnd.
Mynd Óskars Gíslasonar,
Síðasti bærinn I dalnum, var á
sínum tíma sýnd I Austurbæj-
arbíói. Var hún geypivinsæl og
oft náði biðröðin við bíóið um-
hverfls húsið. Sennilega er hún
vinsælasta íslensk kvikmynd,
sem gerð hefur verið, og œtla
má að 25—30 þúsund manns
hafl séð hana, er hún var sýnd
hér fyrst.
Skömmu fyrir 1960 var
reynd í Austurbæjarbíói ný
tækni, sem þá kom til sög-
unnar I kvikmyndaheiminum.
Þá hélt þrívíddin innreið sína
Ellefu
Bróðir Jónatan
(Mv Brotlier Jonatlian)
l'iciniúrskarandi falleg og áhrifamikil ensk stórmynd.
Aðalhlutverk leika:
Michacl Dcnlson
Dtilria Gray
Itouald Hotvard-
Sýnd kl. 6 og 9 II. jóladag.
Aðgöngumiðasaln hefst kl. II f.h. Sími 6444.
Fyrsta auglýsing Hafnarbíós.
34VIKAN 23. TBL.