Vikan - 08.06.1978, Síða 48
KlNAKJÚKLINGUR
2 holdakjúklingar
1 laukur
2 msk. smjör eða smjörlíki
4 dl vatn
4 msk. kínversk soja
2 msk. sérri
2 msk. saxaður, sultaður engifer
1 msk. sykur.
Hreinsið kjúklingana og hlutið í
sundur í 12 stk. hvorn (með
beinum). Saxið laukinn gróft.
Bræðið smjörið í þykkbotna
potti og brúnið kjúklingastykkin
við all sterkan hita í 5 mín.,
snúið þeim öðru hverju. Bætið
vatni, soja, sérríi og engifer út í
pottinn, látið suðuna koma upp,
bætið lauknum út í, lækkið
hitann og lokið pottinum. Látið
réttinn malla í hálftima. Hrærið
sykurinn saman við og látið
krauma áfram i 10-20 mínútur,
eða þar til kjötið er örugglega
meyrt.
Kinverskir matsölustaðir hafa
sprottið upp eins og gorkúlur
víða um Vesturlönd á undan-
förnum árum, og þeir njóta
vinsælda, eru yfirleitt hreinlegir
og fremur ódýrir. Maturinn
geðjast einnig flestum vel, og
vonandi hafa margir gaman af
að prófa þessa ósviknu
kínversku rétti, sem við birtum
hér uppskriftir af. Hver upp-
skrift er ætluð fyrir 6 manns.
HRÍSGRJÓN
eru ómissandi með kínverskum
mat, annaðhvort soðin á
venjulegan hátt eða gufusoðin.
Gufusoðin hrísgrjón eru fyrst
látin bullsjóða í vatni í 3
mínútur og hrært stöðugt í á
meðan. Síðan er þeim hellt í
48VIKAN 23. TBL.