Vikan - 22.06.1978, Qupperneq 47
GOÐALAMB(FYRIR SEX)
1 léttreykt lambalæri (London lamb frá
Goða)
300 g frosnar grænar baunir
50 g perlulaukur
6 stk. tómatar
600 g smáar kartöflur (parísarkartöflur)
6 salatblöð
söxuð steinselja
lOOgsmjör.
Madeirasósa:
ca. 1 kg lambabein
1 gulrót
1 stór laukur
steinselj ustilkar
1/2 dl madeira
maizenamjöl.
Lambalærið er soðið í ca. 45 mín.
Perlulaukurinn er afhýddur og soðinn
meyr. 50 g af smjöri brætt í potti, laukur-
inn og baunirnar sett út í og látið krauma i
nokkrar mínútur. Bragðbætt með salti og
muldum hvítum pipar.
Tómatarnir eru grillaðir.
Smáar kartöflur eru soðnar og flysjaðar,
eða stórar kartöflur stungnar út með parís-
arjárni og soðnar og vel í bræddu smjöri og
saxaðri steinselju.
Madeirasósa: Lambabein eru brúnuð vel í
potti ásamt söxuðu grænmetinu. Vatni
bætt út í og soðið við vægan hita í 2
klukkustundir, sigtað og jafnað mjög létt
með maizenamjöli. Bragðbætt með salti og
pipar. Að síðustu er madeira sett út í.
STEIKTHEILAGFISKI(FYRIR EINN)
150—180 g sneið af heilagfiski, ca. 1 l/2sm
á þykkt
25 g rækjur
1 msk. möndluspænir
100 g kartöflur
50gsmjör
steinselja
sítrónubátur salatblað egg.
Heilagfiskið er bragðbætt með salti og pip-
ar, velt í hveiti og síðan hrærðu eggi. Steikt
í smjöri á pönnu. Fært af pönnunni.
Möndluspænirnir settir út í smjörið, brún-
aðir létt og rækjunum bætt út í. Hellt yfir
fiskinn. Framreitt með soðnum kartöflum
og sítrónubáti. Skreytt með salatblaði. Sax-
aðri steinselju stráð yfir kartöflurnar.
NA UTA BUFFSTEIK
FYLLTMEÐ GRÁÐAOSTI
180—200 g nautafillet, ca 3 sm á þykkt
ca 30 g sneið af gráðaosti
100 g vöfflukartöflur (eða önnur tegund af
djúpsteiktum kartöflum)
100 g spergilkál
1 grillaður tómatur
brunnarfi.
Skorinn er djúpur vasi í steikina miðja, og
þar inn í ergráðaosturinnsettur. Buffin eru
síðarr steikt á pönnu, og fer steikingartím-
inn eftir smekk. Framreitt með ofan-
greindu.
í næstu Viku
Verjumst verðbólgunni
er kjörorð, sem Vikan og
Dagblaðið hafa sameinast
um. Undir þvi kjörorði er
nú hleypt af stokkunum
nýjum efnisþætti í Vik-
unni, þar sem málefnum
neytenda verður sinnt á
markvissan hátt með það
fyrir augum, að þeim gef-
ist frekar kostur á að átta
sig á því, hvað þeir geta
fengið fyrir peningana
sína. Á sama grundvelli er
málefnum neytenda gerð
margvisleg skil í Dagblað-
inu, en það er Anna
Bjarnason, sem hefur yfir-
umsjón með þessum efnis-
þætti i báðum blöðunum.
Efni næstu Viku gefur
Anna Bjamason.
fyllilega til kynna, hvers
lesendur mega vænta. Þar
verður að finna ýtarlegar
upplýsingar um allar teg-
undir garðsláttuvéla, sem
fáanlegar eru hér á landi,
ennfremur leiðbeiningar
um það, sem hafa þarf í
huga, þegar garðsláttuvél
er keypt. Er ekki að efa,
að þessar upplýsingar
koma mörgum vel einmitt
núna, þegar garðsláttur er
nauðsynlegur á fárra daga
fresti og áreiðanlega marg-
Anna Björk Eflvarfls, Guflbjörg Vilhjðlmsdöttir og Sígurtaug
Halldórsdóttir voru kjömar ö siðasta öri til þess afl vera fulltrú-
ar íslands i eriendum fegurflarsamkeppnum ö þessu öri. En i
nsests blafli kynnumst vifl Ungfrú Ísland 1978, Halldóru Björk
Jónsdöttur.
ir, sem þurfa að kaupa sér
sláttuvél. Þá verður rætt
við tvær húsmæður, sem
héldu búreikninga fyrir
Vikuna í febrúar, en það
er einmitt ætlunin að gera
meira af slíku, þ.e. að
ræða við fólk, sem stendur
daglega í því óvissa stríði
að láta tekjurnar mæta út-
Frö Osló.
gjöldum. Það verður eitt-
hvað fjallað um þessi mál í
hverri Viku framvegis, því
það er trú okkar, að þetta
efni höfði til mikils fjölda
lesenda.
Margt annað áhugavert
er í næsta blaði. Það er
rætt við Halldóru Björk
Gunnarsdóttur, nýkjörna
Ungfrú ísland, við birtum
grein og myndir frá Osló,
sem blaðamaður heimsótti
nýlega, Jónas skrifar um
heimsókn á Coq d’Or í
Kaupmannahöfn, það
verður myndasyrpa frá
Sunnuhátiðinni, þegar
fegurðardrottningin var
kjörin, og poppfræðiritið
fjallar um þá vinsælu
Dubliners.
Og síðast, en ekki síst,
þá hefst okkar árlega sum-
argetraun í næsta blaði.
Hún verður létt og
skemmtileg, eins og venju-
lega, og vinningarnir eru
glæsilegir, þrjár utan-
landsferðir á vegum ferða-
skrifstofunnar Úrvals og
hálfs mánaðar dvöl í íbúð
fyrir tvo á Ibiza, Mæjorka
og Kanarieyjum.
25. TBL. VIKAN 47