Vikan - 21.12.1978, Side 62
PÓSTURIM
Eins og hún
sé í fýlu
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig að
hjálpa mér með svolítið
vandamál, út af skólasystur
minni. Við vorum á skemmti-
stað um daginn og hún bauð
mér upp, en ég vildi ekki dansa
þann dans. Seinna um kvöldið
bauð ég henni upp, en þá var
ég alveg í vandræðum með
hvernig ég átti að koma fram
við hana. Síðan er alltaf eins
og hún sé í fýlu eða vondu
skapi. Mig langar svo til að
Lausnir á
heilatrimmi á
bls. 36-37.
Gátur
1. Grýlukerti.
2. Píanó.
3. Sendibréf.
4. Inn í hann miðjan — síðan fer
hún út úr honum aftur.
5. Kýr.
Veistu þetta?
1. Hann hlyti að velja risafuruna í
Kalifomíu, sequoia gigantea, sem
gengur undir nafninu
General Sherman, eða Sherman
hershöfðingi. Hún er 83 metrar
á hæð og mælist 30.96 m í
ummál við rótina. Það þarf 17
menn með útteygða arma til
þess að ná utan um hana. Tréð
myndi duga í 182.900 metra af
tveggja tommu borðum, og það
ætti að nægja í byggingu 35
fimm herbergja timburhús. Láta
mun nærri, að tréð vegi ca 1200
tonn.
2. 60-65 km á klukkustund.
Þetta er Afríkustrúturinn. Það
tæki ca 40 mín. að íinsjóða
strútsegg.
3. Uppruni jólatrésins hefur
verið rakinn til Þýskalands á
fyrri hluta 17. aldar. í jólatrénu
sameinast hið almenna tákn um
vöxt og viðgang náttúrunnar og
hið sérstaka kristna tákn um
lífsins tré.
62 Vlkan Sl. tbl.
hún sé glöð, en ég veit ekki
hvernig ég á að fara að því að
gleðja hana! Ég get ekki hætt
að hugsa um hana.
Einn í vandræðum.
Sennilega hefur hún túlkað
vandræðalega framkomu þína á
ballinu á einhvern neikvæðan
máta. Margar stelpur eru mjög
viðkvæmar fyrir því, ef þeim er
neitað um dans, og ef til vill
hefur hún talið að þú
vorkenndir henni eitthvað fyrst
þú bauðst henni upp síðar um
kvöldið. Reyndu að tala við hana
um eitthvað skemmtilegt þegar
færi gefst og vertu svo á undan
að bjóða henni upp á næsta
balli.
4. Jólaeyjarnar eru reyndar
tvær, önnur í Kyrrahafinu, hin í
Indlandshafinu.
5. Hvít jól, sem á ensku heitir
White Christmas. Bing heitinn
Crosby gerði það frægt.
Úr bók bókanna
1.39.
2. Á sjötta degi.
3. Kain.
4. Adam.
5. Fjórar, þ.e.a.s. eiginkona hans
og tengdadætur, konur sona
hans, Sams, Kams og Jafets.
6. Fyrst hrafn og síðar dúfu.
7. 950 ára.
Þvers og kruss
Jólasveinavillur
Anna Guðný Egilsdóttir, Hrafnagils-
skóla Eyjafirði og Anna Hdga Tryggva
dóttir, Hrafnagilsskóla Eyjafirði óska
eftir pennavinum (strákum) á aldrinum
15-18 ára. Þær svara öllum bréfum.
Theodór Blöndal Einarsson, Árstíg 3,
710 Seyðisfirði óskar eftir pennavinum á
öllum aldri, mynd þarf ekki að fylgja
fyrsta bréfi. Svararöllum bréfum.
Einar Sveinn Jónsson, Árstíg 13, 710
Seyðisfirði er 13 ára og óskar eftir
pennavinum á öllum aldri. Ekki er
nauðsynlegt að mynd fylgi í fyrsta bréfi
og hann svarar öllum bréfum.
MM2 Edward Ingledue, M division-
U.S.S. Forrest Sherman DD 931, fpo
New York, New York 09501 USA, 29
ára hermaður í bandaríska sjóhernum
óskar eftir að komast í einlægt og
varanlegt bréfasamband við ungar og
ógiftar stúlkur með langvarandi kynni í
huga. Hann mun svara öllum bréfum.
Sögur úr daglega lífinu
Heill og sæll póstur góður!
Þakka þér fyrir allt gamalt og gott og þá sérstaklega fyrir
greinina um nauðgun, sem mér þótti mjög góð. Það var
kominn tími til að einhver vekti athygli á svívirðilegri
meðferð þeirra mála hér á landi.
En hvernig er það, eruð þið alveg hætt að birta sögur úr
daglega lífinu? Ég trúi ekki öðru en að lesendur Vikunnar
haf frá mörgu að segja, sem þeir gætu hugsað sér að senda
inn íþennan frásagnarfokk, því mérfnnst hann alls ekki
mega missa sig. En ég ætla ekki alveg að sleppa þér við
vandamál mín. Þannig var það nefnilega, að um daginn
fékk ég rauðvín í teppið í stofunni. Ég er búin að reyna að
þvoþað með sápu, teppasjampói ogallt hvað eina, en
ekkert gerist, bletturinn situr sem fastast! Veist þú um
eitthvert ráð til að hjálpa mér, og ef ekki, getur þá einhver
lesandi hjálpað mér út úr þessum ógöngum?
Með von um að Vikan haldi áfram að batna og stækka . . .
Sigrún í Breiðholtinu
Þakka þér hlý orð i garð Vikunnar. Greinin um nauðgun er
einn þáttur af mörgum, sem birst hafa undanfarið, þar sem
reynt hefur verið að taka eitthvert mál og skoða ofan í kjölinn,.
t.d. greinin um ellina o.fl. Sögur úr daglega lífinu hafa borist
treglega undanfarið og geta legið þar margar orsakir að baki.
Varla getur þó ástæðan verið sú að vandamál íslenskrar
alþýðu heyri sögunni til. Það er fyllsta ástæða til að hvetja
fólk til að skrifa okkur um reynslu sína, því það getur orðið
öðrum til hjálpar, sem verða fyrir svipaðri lífsreynslu. Það
getur orðið erfitt að ná rauðvíninu úr teppinu eftir allan
þennan tíma. Strax og rauðvínið fór niður áttir þú að hella
miklu salti yfir blettinn og láta það standa i um það bil sólar-
hring. Saltið dregur til sín vökvann og því hefði ef til vill mátt
bjarga teppinu. Þú tekur ekki fram hvaða efni er í teppinu,
svo það er vandasamt að hjálpa þér. Ef teppið úr ull eða ullar-
blöndu hefur Póstinum verið sagt að árangursrikt sé að nota
salmíaksblöndu til að ná blettum. Annars gætir þú leitað til
teppaframleiðenda um ráð og svo getur ef til vill einhver
lesandi hjálpað.
Jóhanna Jóhanncsdóttir, Hlégerði 2,
410 Hnífsdal, óskar eftir að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 11-13 ára.
Er sjálf 11 ára og svarar öllum bréfum.
Áhugamál diskótek og strákar.
Kristin Kristmundsdóttir, Sandholti 21,
355 Ólafsvik, óskar eftir að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 11-12 ára.
Er sjálf 11 ára og svarar öllum bréfum.
Áhugamál margvísleg og mynd fylgi
fyrsta bréfi ef hægt er.
Matthildur G. Aðalsteinsdóttir,
Vallholti 18,355 Ólafsvík, óskar eftir að
skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 11-13 ára. Er sjálf 12 ára og
svarar öllum bréfum. Áhugamál
ýmisleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt
er.