Vikan - 17.05.1979, Page 10
SLYS
ÁBÖRNUM
í HEIMAHÚSUM
Heimili eru yfirleitt ekki skipulögð með
tilliti til þarfa barna. Þetta á bæði við um
ytri búnað íbúða og stærð og skipan
herbergja og innra skipulag eins og val
og fyrirkomulag á húsgögnum og hús-
búnaði. Margar hættur bíða þess vegna
barna inni á heimili en það er hægt að
varast þær að einhverju leyti með vissri
fyrirhyggju.
Slys í eldhúsum
Eldhúsið er sá staður innan heimilisins
sem börnum stafar einna mest hætta af.
Börn elska að vera í eldhúsinu og fylgjast
með öllu sem þar fer fram.
Foreldrar koma gjarnan litlum börnum
fyrir uppi á eldhúsborði á meðan þeir
vinna. Þetta er slæmur ávani, því það er
aldrei að vita hvort barnið getur fallið
niður. Minnsta hreyfing getur valdið því.
Margir eru alltof kærulausir þegar hnifar
og skæri eru annars vegar. Þegar fólk er
ekki að nota slík verkfæri er réttast að læsa
þau niðri eða geyma þau í skúffu með
barnalæsingu.
Hrærivélar og skurðarvélar eru mjög
hættulegar fyrir börn. Það á aldrei að láta
börn vera uppi á eldhúsborði þegar þessar
vélar eru í notkun og réttast er að koma
vélunum fyrir þar sem ekki næst til þeirra
þegar þær eru ekki í notkun.
Eldavélar geta verið börnum lífshættu-
legar. Mörg börn hafa reynt að komast upp
á eldavél eða sjá upp á hana með þvi að
stíga upp á ofnhurðina og hafa velt vélinni
yfir sig. Réttast er að setja lás á eldavélar
sem standa á gólfi.
Einnig er rétt að venja sig á að nota innri
plöturnar á eldavélinni og gæta að því að
eyru og sköft á pottum og pönnum snúi inn
að vegg svo að börn geti ekki náð í þau.
Það er líka vanaatriði að setja aldrei heita
potta eða skálar fremst á borðbrún.
Þegar trekt er notuð við að laga kaffi er
best að nota trektir sem ganga alveg niður í
kaffikönnuna. Venjulegar trektir velta um
koll við minnstu hreyfingu og mörg börn
hafa brennst alvarlega við að fá sjóðandi
heitt kaffi yfir sig.
Þvottavélar og uppþvottavélar eiga að
vera rétt tengdar og það verður að gæta
þess að börn geti ekki opnað vélarnar á
meðan sjóðandi heitt vatn er í þeim.
Lok og hurðir á ísskápum, frystiskápum
og frystikistum þurfa að vera þannig að
börn geti ekki opnað þau. Margir þessara
skápa hafa barnalæsingar. Ef börn lokast
t.d. inni í frystiskáp kafna þau fljótt af
súrefnisskorti.
Atriði sem er hægt að varast
Mörg börn verða fyrir slysi vegna þess að
hlutirnir liggja hér og þar í reiðuleysi. Oft er
fólk alltof kærulaust með sigarettu- og
vindlastubba. Ef börn borða slíkt geta þau
orðið fyrir lífshættulegri eitrun og dáið.
Laus teppi geta verið hættuleg fyrir börn
því þau renna auðveldlega til. Það er hægt
að fá sérstakt gúmmí- eða undirteppi til að
hindra rennsli. í barnaherbergjum er einnig
gott að setja teppi yfir allt gólfið, því það
getur mildað margar byltur og varnað því
að börn hljóti slæma áverka.
IO Vikan 20. tbl.