Vikan - 17.05.1979, Qupperneq 11
Mörg börn klifra upp á húsgögn. Það er
ekki hægt að hindra þau algjörlega í að
klifra upp á hluti því þeim er eðlilegt og
nauðsynlegt að rannsaka umhverfi sitt. En
það er hægt að reyna að fá þau til þess að
sleppa hlutum sem eru þeim hættulegir eða
a.m.k. að vera yfir þeim meðan þau klifra
upp.
Meðan börn eru lítil er rétt að leggja
dúka ekki þannig á borð að þau geti dregið
þá yfir sig. Mörg börn hafa fengið yfir sig
sjóðandi heitt kaffi eða sjóðandi fitu af því
að þau náðu í horn á dúk.
Meðul og hreingerningarefni
Flestir ættu að reyna að hafa sérstaka
læsta skápa inni á heimilum undir meðul.
Mörg slys á börnum stafa af því að gáleysis-
lega er farið með lyf. Margir ganga með lyf
á sér daglega og geyma þau í töskum. Börn
fara gjarnan ofan í töskur til að leita sér að
einhverju spennandi og ef þau finna
eitthvað sem minnir þau á sælgæti eru þau
ekki lengi að stinga því upp í sig.
Svipað á við um ýmis hreingerningar-
efni. Mörg þessara efna innihalda eiturefni.
Það er slæmur ávani að geyma slík efni
undir eldhúsborðinu eða á bak við
klósettið. Annaðhvort eiga slík efni heima
uppi á háum skápum eða inni í læstum
hirslum.
Einnig er gott að venja sig á að hella ekki
hreinsivökva á gosdrykkjarflöskur eða því-
umlíkt. Mörg þyrst börn hafa svalað þorsta
sínum á eitruðum vökva þegar þau voru að
leita að einhverju svalandi.
Gluggar, svalir og tröppur
Flest lítil börn klifra upp í gluggakistur.
Þau hafa gaman af að horfa út. Það ætti að
vera regla á öllum heimilum, þar sem börn
eru, að kaupa gluggalæsingar sem börn
geta ekki opnað. Mörg dauðaslys hafa
orsakast af því að börn hafa dottið út um
glugga.
Margar svalir eru þannig út garði gerðar
að ein hlið svalaveggjarins er úr járn-
rimlum. Það eru oft meira en 6 sm á milli
þessara rimla, og börn geta því smeygt sér
út á milli þeirra. Þessu er hægt að varna
með því að kaupa t.d. hart bylgjuplast og
binda það fast við rimlana.
Tröppum, sem eru innanhúss, er rétt að
vernda börn gegn með því að loka þær af
þeim megin sem barnið er. Það getur verið
hættulegt fyrir barn að skríða upp 3-4
tröppur og detta svo niður. Hliðgrind með
þéttum rimlum getur hér komið að góðum
notum.
Stiga á milli hæða í húsi þarf að varast
líka vert að hafa hugfast að með svolítilli
umhugsun og skipulagningu er hægt að
vernda börn gegn mörgum slysum.
Þekkingu á umheiminum öðlast barnið
með reynslu. Reynslan fæst með að barnið
rannsakar raunveruleikann. Þetta hefur í
för með sér áhættu því barnið skynjar oft
ekki hætturnar.
Með því að hafa eftirfarandi í huga er
hægt að minnka verulega líkurnar á því að
börn verði fyrir slysum í heimahúsum.
1. Með því að öðlast þekkingu á þróun
barnsins á ólíkum aldursstigum og hverju
barnið veldur á mismunandi aldri.
2. Með því að kynna sér hverjar eru
algengustu hætturnar og hvernig er hægt
að varast þær.
3. Með því að útvega sér þann öryggis-
búnað sem til þarf og gera umhverfið eins
hættulítið og mögulegt er.
4. Með þvi að fullorðnir kenni barninu
hvað það á að varast þegar barnið hefur
þroska til að skilja það. Sífelld endur-
tekning á slíkum upplýsingum eykur
líkurnar á því að barnið verði sér meðvitað
um hvaða hluti það á að varast.
þegar börn eru að byrja að læra að ganga.
Það er hægt að hjálpa barninu að venjast
þeim með því að leiða þau í byrjun upp og
niður stiga. Teppi á uppgöngum þurfa að
sitja föst og vera heilleg. Ef listar eiga að
festa teppi þurfa þeir einnig að vera fastir.
Skór festast gjarnan í lausum listum og það
getur valdið falli.
Er hægt að vernda börn gegn
hættum umhverfisins?
Hér og í fyrra þætti hafa verið nefnd
nokkur dæmi um þær hættur sem geta
ógnað börnum á heimilum. í því sambandi
er vert að hafa í huga að um það bil
helmingur allra slysa, «em lítil börn verða
fyrir, verða innan veggja heimilisins. Það er
20. tbl. Vikan 11