Vikan


Vikan - 17.05.1979, Qupperneq 13

Vikan - 17.05.1979, Qupperneq 13
Sumariö sem var Þýð: Hrafnhildur Valdimarsdóttír eftir Söruh Patterson Kate finnurgamla dagbóksem rifjar upp fyrir henni fyrsta fund þeirra Johnnysfyrir 30 árum... Það er sumar. Stríðið er skollið á. Kate, sem er ekki enn orðin sautján ára, býr við öryggi á prestssetri föður síns í Norfolk. Johnny er skytta á vígstöðvum í grenndinni. Hann er nítján ára, en kaldur og hörundsár af biturri reynslu styrjaldarinnar. Kate kynnist lífi ungu hermannanna í Konunglega breska fughernum sem dansa og gantast til að breiða yjir ótta sinn. Hún horfir á fugvélar þeirra fljúga yfr og telur þær í hvert sinn er þær snúa heim. Hún getur ekki tekið þátt í þessu líf en smám saman ákveður hún að kynnast því og skilja það. Johnny og Kate eyða saman frístundum sínum og sagan lýsir þjáningum ástarinnar á stríðs- tímum, fórnum og hetjudáðum. Ég fann gömlu dagbókina mína í gær. Hún var falin í gamalli biblíu og ég var hálfhrædd við að sncrta hana. Að rifja upp áhrif fyrstu ástarinnar. Að sjá fyrir mér andlit hans og kaldan dauðann. Ég fór með bókina út á svalir, þar sem ég gæti setið ein og lesið I rökkrinu. Til að endurlifa 30 ára gamalt sumarkvöld i móðu minninganna...... 1. kafli. Það var hlýtt þetta kvöld. Síðustu geislar kvöldsólarinnar gægðust milli laufa beykitrjánna og krákurnar á greinunum kölluðust á. Frá kirkjunni barst hljómlist. Ég gekk þangað í leit að föður mínum. Kirkja heilags Péturs var hans líf og yndi. Tinnusteinarnir i veggjunum höfðu endurspeglað árstíðaskipti að minnsta kosti sjö hundruð ára. Kirkjan var furðu stór miðað við hve þorpið var lítið, en á miðöldum var mikil velmegun á þessu svæði. Ég gekk eftir kirkjustígnum milli kýprustrjánna og opnaði stóru eikar- hurðina að sunnanverðu. Það var kalt og dimmt inni, eins og venjulega. Ég gekk innfyrir og hallaði mér að dyra- stafnum til að venjast birtubreytingunni og til að hlusta á tónlistina örlítið lengur. Þetta var mjög góður leikur, betri en ég gæti nokkurn tima leikið, fallegur og hreinn. Hljómurinn fyllti loftið og berg- málaði blítt og þýtt. Ég hafði aldrei heyrt svo góðan leik. Ég gekk hljóðlega inn að kórnum við predikunarstólinn. Ég sá ekki orgelleikar ann bak við græn tjöldin, en það lá flug- mannshúfa og jakki á bekknum. Það var herbækistöð í nokkra mílna fjarlægð. Hann hlaut að koma þaðan, hver svo sem hann var, líklega til að finna frið. Hann yrði varla truflaður hér að kvöldi dags. Hér var enginn nema undarlega konan úr þorpinu að biðja fyrir syni sín- um og eiginmanni sem börðust í strið- inu. Ég hafði á tilfinningunni að ég væri að trufla, að ég hefði engan rétt til að standa þarna. Ég sneri mér við. Hljómlistin þatnaði. Síðustu hljóm- arnir dóu hægt út. Ég varð vör við að orgelleikarinn hreyfði sig og sneri mér aftur við. Hann var mjög ungur, áreiðanlega ekki nema átján eða nítján ára, ekki hávaxinn. En hann hafði fölt, viðkunnanlegt andlit og hárið var næstum hvítt. Ég hikaði, gekk síðan upp aðkórnum. „Fyrirgefðu,” sagði ég. „Ég ætlaði ekki að trufla þig. Ég var að leita að föður mínum.” Þegar ég nálgaðist hann sá ég að andlit hans var allt öðruvísi en áður. Hann var með djúpar hrukkur á enninu, sem sáust ekki úr fjarlægð, augun voru samankipruð og húðin strekktist yfir kinnbeinin. Hann var mjög þreytulegur eins og sá sem reynir of mikið á of stutt- um tíma. Og það var eins og allt, sem hann hafði reynt, stæði skrifað á andliti hans. Þetta var andlit gamals manns, hugsaði ég og það fór um mig kaldur hrollur. „Allt í lagi.” Rödd hans var undar- lega líflaus. „Ég má hvort sem er ekki vera að þessu. Verð að koma mér til baka.” Hann náði I húfuna og jakkann. „Hver er faðir þinn?” „Presturinn,” svaraði ég, dálitið undrandi því ég hélt að hann hefði leyfi til að spila. „Hann hefur ekki komið hingað meðan ég var að spila.” Ég brosti. „En þú hefðir ekki orðið var við það,” sagði ég. „Þú varst í öðrum heimi meðan þú spilaðir.” Hann brosti vandræðalega og nú leit hann allt í einu út fyrir að vera miklu yngri. „Spilar þú?” „Ekkert líkt þessu. Alls ekki svona vel. Ég kemst í gegnum sálmana á sunnudögum, en aðeins vegna þess að 20. tbl. Vikan 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.