Vikan - 17.05.1979, Page 15
var auðsjáanlega brugðið og stuttu
seinna bætti hún við. „Talaði hann við
þig?”
„Já.”
„Um hvað?” Það var tortryggnis-
hreimur i röddinni. Ég hugsaði mig um.
„Ekkert sérstakt. Hann þurfti að tala
við einhvern og ég var þarna. Hann
bauð mér á ballið á morgun.”
„Og hvað sagðir þú?”
„Ég sagði já.”
„Þóaðviðhöfum ekki hitt hann?”
„Hann sækir mig hingað svo að ef þið
viljið rannsaka hann, getið þið gert það
þá."
„Ég skil.” Hún hikaði.„Þú ert mjög
ung, Kathie. Ég vil ekki...”
„Æ, góða mamma,” sagði ég. „Ég er í
sjötta bekk og það er ekki svo langt
síðan hann var það líka, eftir útlitinu að
dæma.”
Ég varð allt í einu hræðilega hrædd
um að hún mundi ekki skilja. Mundi
misskilja allt. „Hann var bara einmana,
stilltur drengur. Hann langaði bara að
tala viðeinhvern.”
„Við verðum að sjá hvemig hann er.
Faðir þinn er inni í bókaherbergi. Segðu
honum að maturinn sé til og þvoðu þér
um hendurnar. Ég varð sjálf að leggja á
borðið.”
„Fyrirgefðu.”
Hún brosti allt i einu og kyssti mig á
ennið, sem var óvanalegt þvi að hún var
vön að halda tilfinningum sinum
leyndum.
„Allt I lagi, vinan. Þú bætir það upp
með uppþvottinum.”
Mér varð aftur hugsað til Johnnys
Stewart. Ég sá fyrir mér ungt, ellilegt
andlitið með tómlegu augun í rökkrinu í
kirkjunni. Ég faðmaði hana þakklát fyrir
það öryggi og skjól sem ég naut hér á
þessum góða stað.
„Katherine hitti pilt í kirkjunni i
kvöld,” sagði móðir mín varfærnislega
um leið og hún útbýtti diskunum.
„Hann var að spila á orgelið.”
Faðir minn tók gleraugun varlega úr
hulstrinu og setti þau á sig. Hann lyfti
brúnum.
„Nú, já?”
„Móðir min hélt áfram: „Skyttu frá
Upton Magna.” Ég flýtti méraðsegja:
„Hann bauð mér á dansleik í félagsheim-
ilinu og ég þáði boðið. Hann sækir mig
klukkan sjö annað kvöld.”
Ég vissi alltaf að faðir minn var
merkilegur maður en nú kom hann
móður minni jafnmikið á óvart og mér
þegar hann sagði rólega.
„Farið þið gangandi eða er hann á
bíl? Þessir piltar i flughernum virðast fá
ótakmarkað bensín.”
„Ég veit það ekki.” Ég efaðist um að
hann ætti bil.
„Ætlar hann aðsækja þig hingað?”
„Já.”
„Jæja, eins og sakir standa held ég
að við getum sagt að þú getir farið. Ég
býst við að við fáum að hitta hann?”
Tískufatnaður á alla fjöl-
skylduna
VERSLUNIN VAL
Strandgata 34, Hafnarfirði, sími 52070.
„Já, ég býð honum inn.”
„Gott. Kynni ykkar eru að visu mjög
stutt en við verðum að hafa í huga að
það er stríð.” Hann brosti blíðlega.
„Komstu að því hvað hann heitir, eða
gafstekki timi til þess?”
„Johnny,” sagði ég. „Johnny
Stewart.”
BLOSSOM
Frábært shampoo
BLOSSOM shampoo freyðir vel, og er fáanlegt
I 4 gerðum.
Hver og einn getur fengið shampoo við sitt hæfi.
Reyndu BLOSSOM shampoo, og þér mun vel líka.
Sweet Aldehydic shampoo 1
for normal hair
Heildsölubirgöir.
KRISTJÁNSSON HF
Ingolfsstræti 12, simar: 12800 - 14878
20. tbl. Vlkan 15