Vikan


Vikan - 17.05.1979, Page 21

Vikan - 17.05.1979, Page 21
marijuana sé ræktað víðar en í Kólombíu sem kunnugt er er það mál manna, þeirra sem til þekkja, að kólombíska grasið sé það langbesta sem hægt sé að fá í veröldinni, og bandaríski neytandinn vill aðeins það besta. í Guajira, þar sem hundruð tonna af marijuana fara í gegn, er fíkniefnið ekkert vandamál í sjálfu sér. Það er leitun á innfæddum manni sem neytir þess, hvað svo sem veldur. Það eru utanaðkomandi menn, kaupendur, seljendur og smyglarar, sem eru vandamálið. Og meðan sterkar raddir eru uppi um að það sé varla hægt að banna bændum að rækta vöru sem mikil eftirspurn er eftir, þá er varla hægt að búast við miklum breytingum. Bændurnir eru með bestu vöruna í þessum flokki sem til er og eftirspurnin gífurleg. Sagt er að um 300.000 hektarar lands fari undir marijuanaræktun þótt hershöfðinginn, sem stjórnar baráttunni gegn smyglurunum, vilji meina að það land sé ekki stærra en 100.000 hektarar. En þar sem uppskera er þrisvar á ári er ljóst að hér er um að ræða framleiðslu sem skiptir ótölulegum fjölda tonna og veltir meiri pepingum en fjárlög margra S-Ameríkuríkja. Talið er víst að það sé bandariska Mafían sem stjórni og fjármagni þessi viðskipti, sem eiga sér stað á milli Kólombíu og Bandaríkjanna, auk nokkurra vel stæðra Kólombíumanna. Aðalræktunarsvæðin eru ekki auðfundin því landið er torfarið og bændurnir ferðast til og frá á múlösnum, en það er einmitt á múlösnum sem fram- leiðslan er flutt til byggða. Oft má sjá heila lest múlasna, 200 eða fleiri, klyfjaða marijuana og í fylgd vopnaðra manna á leið í kaupstað. Það er betra að vera vopnaður því oft berjast smyglhringar innbyrðis eins og í kvikmyndum. Tonnið af marijuana er keypt í Kólombíu á 5000 dollara. Eftir að þetta sama tonn hefur millilent í Miami á Florida og síðan farið til New York þá er verðið komið upp i hálfa milljón dollara. Til samanburðar má geta þess að á íslenskum markaði kostar 1 gr af slíku efni ekki undir Eitt tonn af „kólombísku grasi" kostar 5000 dollara í Kólombíu. í Reykja- vík myndi það seljast á 5000 milljónir. Mér finnst þetta réttlátt, að við skiptum ágóðanum til helminga. Upptækar birgðir eru eyðilagðar með þvi að bera í þœr eld. Sérstök ilman stigur upp í loftið og allt verður ónýtt. 5000 ísl. kr., en það þýðir að tonnið myndi kosta 5000 milljónir hér í Reykjavík. Það er margt skrítið í Guajira vegna alls þessa. T.d. má geta þess að þar er orðið svo mikið af bandarískum dollurum að dollarinn er ódýrari á svörtum markaði en opinber skráning segir til um. Það segir sína sögu. EJ (Úr Paris Match) 20. tbl. Vlkan 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.