Vikan - 17.05.1979, Síða 52
Vikan prófar léttu vínin 20. Bordeauxvín
Barnamorðin í
kjólfataveislum
ríkisstjórna
Setlög ánna Garonne og Dordogne í
nágrenni borgarinnar Bordeaux við
Biskayaflóa eru heimsins stærsta góð-
vínasvæði. Framleiðsla Búrgundarvína,
Rínarvína og Móselvína er smáræði
miðað við framleiðslu Bordeauxvína.
Um 1500 vínbú á Bordeaux-svæðinu
selja vín sín undir eigin nafni, mörg hver
á alþjóðlegum markaði. Önnur góð
vínbú treysta sér ekki til að selja undir
eigin nafni og selja eftir föstum reglum
undir nafni hreppsins, sýslunnar eða
svæðisins í heild.
Úr þessu verður mýgrútur af mismun-
andi vinum á mismunandi verði og
markaðsaðstöðu. Vinkaupmönnum í
Bordeaux eða London er það heilt
ævistarf að setja sig inn í þau fræði, svo
að þeir geti gert rétt kaup á réttum tíma.
Engin vín eldast betur
Bordeaux-vín hin frægu eru fyrst og
fremst rauðvín. Þau eru öðruvísi en
Búrgundarvín. Meðan Búrgundarvínum
er líkt við feitan prest, er Bordeauxvín-
um líkt við grannan bókhaldara.
Búrgundarvínin eru Ijúfari en Bordeaux-
vínin lipurri.
Engin vín nema kabinettsvín frá Rin
og Mósel ná jafnflóknum og marg-
brotnum ilm og bestu vínin frá
Bordeaux. Engin vín eldast betur en
bestu vínin frá Bordeaux. Þaðan eru
nítjándu aldar vínin, sem sérvitringar
eru enn aðdrekka.
Algengast er, að það taki góð
Bordeauxvin 7-10 ár að ná fullum
þroska, en ódýrari Bordeauxvín 3-4 ár.
Fyrst eru þessi vín, einkum hin góðu,
svo herpt á bragðið, að þau eru nánast
ódrekkandi. Síðan mildast þau smám
saman, uns þau ná jafnvægi, sem oft
endist þeim áratugum saman.
Tegundum vínberja er blandað í
Bordeauxvín. Uppistaðan er oftast berið
Cabernet Sauvignon, sem gefur vininu
börkun og langa ævi. Til uppfyllingar
er'u notuð vínber á borð við Merlot og
Malbec, sem gefa vininu mýkt og mildi.
Nákvæmur virðingarstigi
Vinbúin 1500, sem selja undir eigin
nafni, eru mismunandi hátt sett i
virðingarstiganum, sem miðar við
áratuga reynslu hins alþjóðlega
markaðar og það verðlag, sem þar
mótast. Héraðið Haut-Medoc er gott
dæmi um þetta.
Þar tróna efst fimm vínbú sem „1.
flokkur”, Chateau Latour, Chateau
Lafite, Chateau Margaux, Chateau
Mouton-Rotschild og Chateau Haut-
Brion. Þau selja framleiðslu sína á
fjórum sinnum hærra verði en almennu
vínbúin og á átta til tíu sinnum hærra
verði en ósérgreind Bordeaux-vín.
Síðan koma 2., 3., 4. og 5. flokkur, þar
sem vínbúin þykja einnig einkar göfug,
þótt gæði og verð jafnist ekki á við 1.
flokk. Þar fyrir neðan koma svo
„exceptionels”, „bourgeois supérieurs”,
„bourgeois” og raunar enn tveir flokkar,
sem lítið eru notaðir, „artisans” og
„paysans".
Þau góðvín, sem ekki komast i fimm
efstu flokkana, en eru frá góðum vín-
búum, mega kalla sig eftir hreppunum,
sem í Haut-Medoc eru t.d. St. Estephe,
Pauillac, St. Julien og Margaux. Síðri
vín af svæðinu mega almennt kalla sig
Haut-Medoc eða bara Bordeauxvin.
Allur þessi virðingarstigi er háður
föstum reglum franska ríkisins. Á öllum
flöskum verður aðstanda „Appellation .
. . controlée” með tilheyrandi orði á
milli, sem markar víninu bás í stiganum.
Þetta kerfi er orðið svo strangt og
vandað, að það er orðið sjaldgæft, að
menn geri vond kaup í Bordeauxvínum.
Hvergi minna framboð en hér
1 Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
fást sex rauðvín frá Bordeaux og er það
allt of lítið. Trúlega hefur enginn
vínkaupmaður i heimi jafnlitið framboð
af rauðum Bordeauxvínum. Vel mætti
fjölga þeim i Ríkinu á kostnað ótal-
margra óþarfra vína, sem þar eru seld og
áður hefur verið getið í greinaflokki
þessum.
Heimur versnandi fer i Ríkinu. Fyrir
aðeins hálfu öðru ári keypti ég þar
síðustu flöskurnar af Chateau Figeac
1966, frábæru fyrsta flokks víni frá
sýslunni Saint-Emilion. Það var á sama
tíma og hægt var að kaupa þar Schloss
Johannisberger Spatlese 1971, eitt
frægasta vín í heimi.
Það er svo sannarlega skarð fyrir
skildi, er síðustu flöskur þessara tveggja
vína eru horfnar í örugga geymslu undir-
ritaðs. Þau eru tæpast enn orðin
drykkjarhæf, þótt mestur hluti lagersins
hafi fyrir löngu verið drukkinn í
barbariskum kjólfataveislum ríkis-
stjórna. Slíkt kalla sérfræðingar barna-
morð.
Gott ár frá góðu vínbúi
CHATEAU TALBOT 1967 frá
Cordier hefur nú það hlutverk að halda
uppi virðingu Ríkisins á þessu sviði.
Þetta vínbú er um það bil að feta sig upp
úr fjórða flokki í þriðja flokk virðingar-
stigans, sem sagt var frá hér að framan.
Það er í vínhreppnum St.-Julien, 200
ekruraf vínviði.
St.-Julien er litill hreppur, sem er
frægur fyrir óvenjumikinn fjölda vínbúa
í fimm efstu þrepum gæðastigans. Sagt
er, að ekki séu til nein vond vín frá St,-
Julien. Það verður því að gera töluverð-
ar kröfur til Chateau Talbot.
Árgangurinn 1967 þótti i fyrstu
fremur lélegur i St.-Julien. Hann hefur
hins vegar elst mun betur en menn
reiknuðu með og á nú að hafa náð
hámarksgæðum. Nú er árið 1967 talið í
röðum hinna betri ára frá Chateau
Talbot.
Efniviður án samræmis
t gæðaprófun Vikunnar olli þetta vin
vonbrigðum. Einkum var það ilmurinn,
sem ekki var í jafnvægi. Ilmurinn var
mikill og bragðið voldugt og langvinnt,
en sjálft jafnvægið vantaði. Hinir mikil-
fenglegu þættir mynduðu ekki
samræmda heild.
Heildarniðurstaðan var sú, að ekki
skorti efniviðinn í vínið, en dæmið gengi
samt ekki upp. Ennfremur sú, að
samræmið mundi ekki koma til
sögunnar með frekari geymslu. Vinið
mundi einfaldlega ekki ná hinu nauðsyn-
lega samræmi.
Einkunnin varð sjö, hin sama og gefin
hefur verið mörgum hlutlausum vinum
á söluskrá Ríkisins. Með þeirri einkunn
er alls ekki sagt, að Chateau Talbot sé
hlutlaust. Þvert á móti er það mjög
persónulegt vín, bara með gallaðan
persónuleika.
Verðið er 4.700 krónur, sem kannski
er ekki allt of hátt fyrir vín í þriðja til
fjórða gæðaflokki Haut-Medoc vína, en
auðvitað of hátt fyrir vín, sem ekki nær
jafnvægi. Það verður því að telja vond
kaup í Chateau Talbot frá 1967.
Ljúfur drykkur frá Luze
CHATEAU PAVEIL DE LUZE
1974 frá Luze er annað búgarðsvinið frá
Bordeaux, sem Ríkið hefur til sölu.
Chateau Paveil de Luze er 80 ekru
búgarður í hreppnum Soussans, sem er
næst fyrir norðan hinn fræga vinhrepp
Margaux nálægt miðju Haut-Medoc. í
Soussans er lítið af vinbúum í fimm
efstu flokkunum, en mikið af ágætum
vinbúum í næstu þremur flokkum þar
fyrir neðan.
Chateau Paveil de Luze er svonefnt
„bourgeois superieur”, vel þekkt út um
heim, þrátt fyrir litla framleiðslu.
Árgangurinn 1974 er ekki góður, þykir
dálítið þunnur vegna rigninga á
uppskerutimanum. Það reyndist hins
vegar sæmilega vel i gæðaprófun
Vikunnar.
Vinið var ekki eins rauðbrúnt og
þungt og Talbotinn. Ilmurinn var hins
vegar betri og í góðu jafnvægi. 1 fyrstu
virtist bragðið þunnt, en það sótti í sig
veðrið, þegar flaskan hafði verið höfð
opin um stund. Vinið var í heild lipurt og
í samræmi, en skorti kjölfestu.
Einkunnin varð átta, því að þetta var
einkar ljúfur drykkur. Verðið er ekkert
hrikalega hátt fyrir átta stiga vín, 3.100
krónur. Chateau Paveil de Luze er
raunar með bestu kaupum, sem hægt er
að gera í átta stiga rauðvínum.
Allt frá rómverskum tíma
SAINT-EMILION 1976 frá Bichoter
almennt vínsýsluvín frá þeirri sýslu í
Bordeaux, sem þykir minna mest á
Búrgund. Þar er líka mest notað af
Þumalfingur á D. Vísifingur á G.
52 Vikan 20. tbl.