Vikan - 17.05.1979, Síða 55
ára vonleysi um heilsu barnsins. Síðan hefur Árni litli
tekið hægum en stöðugum framförum, og er móðir
hans ekki í minnsta vafa um að þessi ótrúlegi bati eigi
einungis rætur sínar að rekja til þeirrar hjálpar sem
hinir framliðnu læknar hafi veitt barninu fyrir milli-
göngu og tilstilli miðilsins Jónínu Magnúsdóttur.
í vörslu Morguns (timarits sem ég er ritstjóri fyrir)
er langt bréf frá foreldrum í Kópavogi, sem rekja þar
næstum ótrúlega sjúkdómssögu dóttur sinnar sem
fæddist 1957. Þessi telpa hafði alla tíð verið þjökuð af
margvíslegum sjúkdómseinkennum: höfuðverk,
magakrampa, sjóntruflunum og riðu. Hún hafði
leitað margra lækna til þess að fá einhverja bót
þessara margvíslegu sjúkdómseinkenna, en allt var
það unnið fyrir gýg. Hver læknirinn fyrir sig virtist
hafa sina eigin skoðun á þessum sjúkdómum og
ráðleggingar voru i samræmi við það, oft á tíðum lyf
sem svo reyndust hafa óheillavænlegar aukaverkanir.
Skýringar læknanna og sérfræðinganna voru ýmist
umgangspest, migrene, þrýstingur á innri eyrun,
heilahimnubólga eða eitthvað enn annað. Þessu
fylgdu svo tilheyrandi prófanir, rannsóknir og
mælingar. En allt varð þetta til einskis. Það kom ekki
að neinum notum. Um tíma var talið koma til mála að
gera á stúlkunni heilauppskurð, en frá því var þó
horfið. Telpan hélt áfram að þjást og kúgast og bættu
sífelldar læknaskoðanir og ótal tegundir lyfja ekkert
úr þessu ömurlega ástandi. Þetta var eðlilega farið að
koma mjög niður á skólanámi stúlkunnar, sem meðal
annars var nú orðið með öllu ókleift að stunda
leikfimi og sund og átti vitanlega í hinum mestu
erfiðleikum með námið yfirleitt, sökum sifelldra
þjáninga.
Þegar komið var með telpuna til Jónínu kveið hún
mjög fyrir landsprófi, sem þá stóð fyrir dyrum hjá
henni í skólanum, enda var hún enn mjög þjáð.
En það er skemmst frá því að segja, að Jónínu tókst
að byggja upp nýjan kraft með stúlkunni svo henni
tókst að ljúka námi sínu með sóma, eins og heilbrigð
væri. Síðan gat hún einnig tekið upp sund og leikfimi.
Og eftir prófið hafði hún nægan kraft til þess að vinna
langan vinnudag í frystihúsi af miklum dugnaði.
Siðan þessi andlega lækning hófst varð hún ekki vör
við nein sjúkdómseinkenni, að því undanskildu að
hún fékk einu sinni nokkuð þungan höfuðverk sem þó
hvarf von bráðar.
Eins og öllum er ljóst eru allar rannsóknir á
jressum dásamlegu hliðum miðilsgáfunnar enn á
algjöru frumstigi hér hjá okkur á íslandi. En við
höfum að minnsta kosti þegar eignast ágætlega
menntaðan dulsálarfræðing, þar sem er dr. Erlendur
Haraldsson, sem þegar hefur gefið út fyrstu bókina
um kannanir sínar á dulrænum hæfileikum íslendinga
og trú okkar á þá. I kjölfar þessara rannsókna þurfa
að fara vísindalegar rannsóknir á hæfileikunum
sjálfum. En slíkt kostar mikið fé og má þvi búast við
að þetta taki sinn tíma. Hins vegar ber okkur að sýna
áhuga á þessum málum og láta þann áhuga i ljós. Með
því getum við flýtt fyrir að hafist sé handa. Við erum
að leita sannleikans í þessum efnum sem öðrum og
hljótum því að fagna hvers konar rannsóknum
vísindanna á þessum mikilsverðu efnum.
Erlendis hafa nokkrar ítarlegar rannsóknir verið
gerðar á sjúklingum einstakra huglækna. i bók sinni,
Þessa heims og annars minnist dr. Erlendur á þrjár
slikar.
Þekktur huglæknir i Þýskalandi, Kurt Trampler að
nafni (jafnframt dr. i verkfræði), fór þess á leit við
háskólann í Freiburg að láta rannsaka lækningar sínar
eftir að hann lenti i málaferlum. Fylgst var með 650
sjúklingum hans um 14 mánaða skeið, bæði með
læknisfræðilegri athugun og sálfræðilegum prófum.
61% sjúklinganna töldusig finna bata.
Má segja að þeir sem ekki trúa þvi að andleg
lækning geti átt sér stað, til dæmis fyrir tilstilli
framliðinna lækna eða annarra, telji að árangur sé
eingöngu afleiðing sterkrar trúar á lækninguna eða
sefjunarmáttar hins andlega læknis. Um þetta verður
hver að gera upp hug sinn fyrir sig, en hitt er víst að
flestir þeirra sem hlotið hafa með þessum hætti
dásamlega lækningu, eftir að hafa fengið þann dóm að
þeir væru með ólæknandi sjúkdóm, eru ekki i neinum
vafa um að þeir hafa fengið lækningu með þeim hætti
að þar duga engar venjulegar læknisfræðilegar
útskýringar.
Endir.
20. tbl. Vifcan 55