Vikan - 17.05.1979, Page 66
I
PÓSTUUIIW
Nábúinn stelur
Mogganum
Kceri Póstur!
Nú þarf égágóðri ráðleggingu
að halda sem fyrst því ég hef
ekki fengið Moggann minn í
hendur í heila viku.
Þannig er að ég bý í blokk
hér í Reykjavík og hefur allt
gengið mjög vel þar til fyrir
tveimur vikum að nýr leigjandi
bættist í húsið. Eftir að hann
flutti inn fóru blöðin mín að
hverfa úr póstkassanum, sér-
staklega þó blaðið á morgnana.
1 fyrstu gat ég ekki ímyndað
mér hver ætti sök á þessu og
var í hinum mesta vanda. En
nú fyrir nokkru sagði konan á
næstu hæð mér að hún hefði
séð þennan nýja granna okkar
plokka blaðið úr lúgunni utan-
frá. Það undarlegasta við þetta
allt er að maðurinn er vel
stæður, en hann býr hér sem
leigjandi því hann er að skilja
við konuna sína. Hann er
menntamaður í góðri stöðu og
í fyrstu átti ég bágt með að
trúa því að konan væri að
segja satt, en hún hefur aldrei
virst óáreiðanleg. Síðdegisblöð
fæ ég alltaf því þá er
leigjandinn í vinnu og það
styrkir grun minn verulega.
Hvað finnst þér að ég ætti að
gera í málinu? Varla get ég
farið að tala um þetta við
manninn því hætt er við að
hann neiti öllu og þá hef ég
aðeins komið einhverjum
illindum af stað.
Hefur þú, Póstur góður, ekki
ráð undir rifi hverju? Með
kærri kveðju.
Nágranninn
Allt er nú til! Það er víst erfitt að
draga þá fingralöngu i dilka en
þetta hlýtur að vera nokkuð
fátítt. Þú hefur alveg rétt fyrir
þér að ekki þýðir að færa þetta í
tal við þann fingralanga, hann
mundi örugglega neita öllu og
þetta gæti orðið til mikilla
leiðinda. Hins vegar gætir þú
reynt að vélrita bréf og láta það i
póstkassann hans þegar enginn
sér til. Þar skalt þú endilega
skrifa það frá sjónarhorni ein-
hvers nágranna, sem segist hafa
staðið hann að þessu og hóti að
segja ÞÉR frá öllu saman, ef
hann láti ekki af þessari iðju á
stundinni. Liklega kemur það að
gagni og þannig getur hann ekki
lagt fæð á þig fyrir að komast að
öllu og heldur sér ef til vill betur
á mottunni framvegis. Annars er
vonandi að hann verði orðinn
leiður á hnuplinu og hafi sjálfur
gerst áskrifandi þegar þetta
birtist.
Pcnnavinir
Lisa Young, 86 Martetto Drive, King-
ston 17, Jamaica, West Indies er 13 ára
og skrifar á ensku. Óskar eftir bréfa-
skiptum við stráka og stelpur.
Evelyne Carret, Bd. des Epiatures 68,
2304 La Chaue de Fonds, Switzerland er
16 ára og vill skrifast á við stráka og
stelpur á ensku.
Telma Aðalbjörnsdóttir, Skarðshlíð 28
e, 600 Akureyri vill skrifast á við stráka
og stelpur á aldrinum 13-15 ára, en hún
er sjálf 13 ára. Áhugamál: popptónlist,
diskótek, íþróttir (fótbolti, körfubolti,
skíði), strákar og margt fleira.
Vala Valdimarsdóttir, Víðilundi 18 c,
600 Akureyri hefur áhuga á að skrifast
á við stráka eða stelpur á aldrinum 13-15
ára. Hún er sjálf 13 ára. Áhugamál:
popptónlist, diskótek og margt fleira.
Kristin Þ. Kristinsdóttir, Brynju, 755
Stöðvarfirði óskar eftir pennavinum,
bæði strákum og stelpum. Hún er 17 ára
og svarar öllum bréfum.
Hafdis Jóna Gunnarsdóttir, Strandgötu
29 b, 735 Eskifirði óskar eftir því að
skrifast á við reykvíska stráka á
aldrinum 13-15 ára. Áhugamál hennar
eru skemmtanir, dans, íþróttir og margt
fleira.
Rúnar Þ. Gunnarsson , (Jórufelli 2)
Box 109, 121 Reykjavik er 15 ára
drengur sem óskar eftir pennavinum um
land allt á aldrinum 14-16 ára. Áhuga-
mál eru sund, tónlist og bílar.
Nauðgað af tveimur
körlum
Elsku Póstur góður!
Ég hef áður verið í vanda stödd, en aldrei eins og
þessum! Núna fyrir rúmlega mánuði var mér nauðgað af
tveimur mönnum, eða réttara sagt körlum, en ég get
ómögulega kært þetta mál, vegna þess að þá kemst faðir
minn að því að ég hef verið undir áhrifum áfengis. Nú
skiiur þú mig örugglega ekki og varla þótt ég reyni að gefa
þér nánari skýringu.
Þannig er að faðir minn hefur verið áfengissjúklingur, en
er nú hættur að drekka. Hann hefur verið að segja mér,
hvað vín sé hættulegt og hefur stranglega bannað mér að
drekka. En því miður tók ég ekkert mark á honum og ég
hef alltaf talað þannig I áheyrn föður míns eins og ég hataði
vín og ætlaði aldrei að smakka það. En nú þurfti þetta
ógeðslega óhapp að koma fyrir mig. Ég var mjög illa leikin
eftir þessa árás, með glóðarauga, sprungna vör, öll marin og
blá og það blœddi mikið úr kynfærum mínum, því ég var
hrein mey.
Faðir minn og móðir voru í utanlandsferð þegar þetta
skeði. Þetta gerðist í leigubíl og meira segi ég ekki. Ég vona
Póstur góður að þú getir hjálpað mér eitthvað, því mér
líður hryllilega illa útaf þessu og ég er svo hrædd. Ekki
segja: „Þegar þetta birtist ertu örugglega búin að kæra
þetta, ” því ég ætla ekki að segja nokkrum manni frá þessu
fyrr en ég fæ þetta svar frá þér.
Þá þakka ég fyrir birtinguna.
S
Því miður er nokkuð öruggt að þegar þetta birtist hefur þú
einmitt ekki kært þetta, en það áttir þú að gera umsvifa-
laust. Þá hefðir þú strax verið látin í læknisskoðun, sem
hefði verið ómetanlegt sönnunargagn í málinu. Þetta löngu
síðar er fremur erfitt að kæra, en þó er það líklega það eina
rétta. Afbrot af þessu tagi eru með því alvarlegasta sem
gerist og menn sem slík verk vinna verða að komast í
hendur lögreglunnar. Ef ekki, eru líkur á að þeir endurtaki
leikinn og fleiri stúlkur verði fyrir þessu frá þeirra hendi, en
það vilt þú líklega ekki?
Rannsóknarlögreglan hefur með þessi mál að gera, síminn
þar er 44000 og þarft þú aðeins að biðja um samtal við
deildarstjóra þriðju deildar. Hann fullvissaði Póstinn um að
þar yrði allt fyrir þig gert og þú myndir mæta þar samúð og
skilningi. Þú gætir fengið þar alla þá aðstoð, sem þú óskar
eftir, og gætir eftir samtal við aðila þar sjálf tekið ákvörðun
um, hvort þú vilt kæra mennina eða ekki. Þar gætu þeir
lika haft samband við sálfræðinga fyrir þig, ef þú vilt,
aðstoðað þig við að gera foreldrum grein fyrir málinu, allt
væri undir þínum vilja komið. Reynslan hefur líka sýnt að
foreldrar bregðast alls ekki, þegar á hólminn er komið og
faðir þinn verður ef til vill sá sem aðstoðar mest. Um fram
allt að byrgja þetta ekki inni, því það gæti unnið þér meira
tjón á sálinni í framtiðinni en nú er. Þér er sjálfri fyrir
bestu að tjá þig um málið strax fremur en að þjást síðar af
sektarkennd og hræðslu við náungann.
Hertu bara upp hugann og leitaðu aðstoðar annarra strax,
þú átt alla samúð Póstsins og örugglega annarra þegar til
kemur.
66 Vikan 20. tbl.