Vikan


Vikan - 24.01.1980, Blaðsíða 8

Vikan - 24.01.1980, Blaðsíða 8
Iþróttir og stjórnmál ganga inn í störf sem eru sæmilega launuð fyrir nú utan að menn hafa e.t.v. týnt einhverju niður af því sem þeir áður kunnu. Ég lauk t.d. námi í lögfræði 1966 og þótt maður ætti ekkert að vera að auglýsa það þá kann ég nú ekkert sérlega mikið í fræðunum nú orðið, maður hefur týnt hluta af þessu niður og i staðinn hefur að sjálfsögðu komið önnur praktisk reynsla og þroski. En ég veit ekki til þess að i pólitík sé eitthvert tryggingarkerfi sem sé ætlað að styrkja fallna þingmenn. Ég hef alltaf verið á móti bitlingum og þvi ekki sóst eftir þeim. Menn verða að vera sjálfstæðir, hvort sem er gagnvart flokki eða fyrir- tæki. eigi þeir að vera færir um að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Þar sem ég er nú doltinn út af þingi hef ég tekið þann kostinn að anda að mér fersku lofti í stað þess að setjast inn á einhverja flokks- skrifstofu. Ég vil frekar kynnast ein- hverju nýju úr þvi sem komið er — sé þesseinhver kostur." Nú er Ellert einn þeirra sjálf- stæðismanna sem hafa gengið hina hefðbundnu leið inn i þingsali: Fyrst er það Heimdallur, svo stúdentapólitíkin, siðan Samband ungra sjálfstæðismanna, sumir i borgarstjórn og siðan beint inn á þing. Ætli það sé ekki tímanna tákn að þessi leið fari að lokast, að fólkiðsé orðið þrcytt á lögfræðingunum sem leiki þennan leik mann eftir mann? Ellert er ekki alveg á sama máli og svarar fullum hálsi: „Ég var nú aldrei formaður Heimdallar! Aftur á móti var ég formaður Stúdentaráðs og hafði mikil afskipti af stúdentapólitikinni. en varð ekki flokksbundinn fyrr en á efri árum þó ég væri alltaf góður sjálf- stæðismaður. Fyrsta trúnaðarstarf mitt hjá flokknum var þegar ég var kosinn formaður Sambands ungra sjálfstæðis- manna. Ég er ekkert viss um að þessi leið inn í þingsali fari að lokast vegna tiðarandans. þvert á móti þvi á þessu er fullgóð skýring. Það var þannig að menn sem höfðu áhuga á félagsstörfum átlu ekki í mörg önnur hús að venda nema lögfræði þegar þeir réðust í háskóla- nám. Þetta var góð undirstaða fyrir slíkt. fagið í snertingu við þjóðmálin og gerði menn vel hæfa til að geta fylgst með og tekið þátt i stjórnmála- umræðum. Þeir menn sem höfðu forystu fyrir þessum hópi í það og það skiptið og höfðu sýnt að þeir væru til forystu fallnir, til þessara manna var leitað að hálfu Sjálfstæðisflokksins og reyndar flciri flokka til frekari stjórn málaafskipta. I>etta virkaði því i báðar áttir. Þarna voru ungir menn sem e.t.v. höfðu einhverja hæfileika til að taka að sér stjórnmálastörf og svo sóttust flokkarnir eftir þessum sömu mönnum þar sem þeir höfðu sýnt að þeir voru vandanum vaxnir. Ég held að það sé óþarfi að lýsa þvi yfir eða reikna með þvi að þetta sé liðin tíð. Aftur á móti tel ég heppilegt fyrir stjórnmálin i landinu að til þeirra veljist fólk sem viðast að. ekki eingöngu úr lögfræðideild Fláskólaas eða viðlíka farvegi. Ég veit að flokkarnir eru alltaf að reyna að fá fólk til slarfa úr sem flestum áttum og starfsgreinum. en vandinn er bara sá að fólk hneigist ekki eins mikið til stjórnmálaþátttöku nú og áður fyrr. Þetta þykir ekki eins eftir- sóknarvert...” — Flversvegna ekki? „Ég held ekki að stjórnmál hafi færst niður á eitthvert lægra plan en þau voru á áður,.jrvert á móti. t.d. hefur dregið mikið úr persónulegu skítkasti sem var áberandi hér áður fyrr og það er til góðs. En það sem hefur gerst er að fjölmiðlar hafa orðið opinskárri og þar með opnað pólitikina upp á gátt sem er góðra gjalda 8 Vikan 4. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.