Vikan


Vikan - 24.01.1980, Síða 19

Vikan - 24.01.1980, Síða 19
„Ungfrú Wilson leggur til að þú komir til þeirra og spilir póker með þeim.” Tara kyngdi. „Viltu segja ungfrú Wilson að ég sé að fara.” „Ungfrú Wilson mun ekki lika að heyra það. Þegar hún býður einhverjum að spila, spila þeir.” „Útskýrðu fyrir henni að ég sé mjög þreytt.” Barþjónninn yppti öxlum og fór til baka. Tara sneri sér að Hart. En hann hafði farið á barinn til að kaupa meira áfengi og var i djúpum samræðum. „Frú Kane!” kallaði Cad Wilson. „Ég vissi ekki aö þú værir hneigull!” Tara leit til Harts, en hann var að drekka með barþjóninum — það var víst örugglega engin hjálp í honum! Hún gekk að borði Cad. „Ég ætla að láta þig vita þaö, ungfrú Wilson.” Rödd hennar titraði af niðurbældri reiði. „Ég tek ekki áskorun þinni, af því að ég hef enga löngun til að umgangast þina líka.” Hópurinn sem hlustaði gapti. Cad stóð upp og gekk hægt í kringum borðið og virti Töru fyrir sér frá hvirfli til ilja. „Ég á í engum deilum við þig, ungfrú Wilson,” sagði Tara mjög rólega. „En ég á í deilum við þig," öskraði Cad og þreif i handlegg Töru. Tara varð ofsareið og sló Cad. Hún borgaði fyrir sig með því að gripa heljartaki á hár Töru og slá hana svo grimmdarlega í andlitið að Tara fann blóðbragð. Síðan réðst Cad á Töru. Eftir augnablik veltust þær um á gólfinu, börðust og klóruðu á meðan mannfjöldinn fagnaði og klappaði. Að lokum brölti Tara á fætur — og leit i andlit Jeffersons Smith. „Jæja!” sagði hann stuttlega og leit af Töru á Cad. „Þaö er gaman að sjá tvær konur haga sér svona. Drykkur á kostnað hússins!” sagði hann við fólkið og tók með sitt hvorum handlegg utan um konurnar, sem voru uppgefnar. „Jæja, hvað í fjandanum gekk á?” spurði hann. Cad kastaði flóknu hárinu aftur. „Aðeins lítilsháttar ósamkomulag!” „Saga barþjónsins er öðruvísi,” sagði Smith. „Hann kom hlaupandi og sagði að þú hefðir skorað á frú Kane að jafna hlutina. Hvaða hluti?” „Jeff, hann hefur misskilið þetta,” andvarpaði Cad. „Jæja, þú skalt hafa þetta á hreinu, elskan.” Cad hrökk við þegar hann kleip í marða kinnina. „Mér er sama þó að konur togi svolitið i hárið hver á annarri vegna mín — það er gott fyrir sjálfsálit manns — en þú skalt ekki gera það í kjólum, sem ég borga.” Hann sneri sér að Töru. „Er allt i lagi með þig! Ég hélt að þú værir hefðar- kona, frú Kane!” Tara rétti úr sér. Stolt hennar var meira virði en verkirnir. Hún sá að Hart skjögraði að borðinu. Smith elti hana. „Ég ætla að sjá til þess að þú komist örugglega heim.” „Það er óþarfi,” svaraði Tara kulda- lega. „Ég hef fylgdarmann.” Smith hló þegar Hart starði drukkinn á Töru og sagði þvoglulega: „Mein Gott, hvað kom fyrir þig?” Smith leit með fyrirlitningu á Hart. „Hún lenti i slag og það var enginn hér til að líta eftir henni.” „Ernst, þetta er hinn mikli Sápu- Smith," sagði Tara við hann. Hart stóð óstöðugur upp. „Hr. Smith,” sagði hann, „mér væri það mikill heiður að fá að taka ljósmynd af þér. Ég er að ljós- mynda Kondike. gullæðið. Ég hef heyrt svo mikið um þig. Þú ert mjög mikilvægur maður. Sittu endilega fyrir á ljósmynd fyrir mig. Ég skal mynda þig ókeypis, bara til að hafa mynd af þér í safni mínu.” „Herra minn," svaraði Smith orðum Harts, „min er ánægjan. Ég skal gefa þéráritaðeintak ef þú vilt.Tara." „Það er óþarfi!” svaraði Tara ónota- lega og stormaði út með viðbjóði. Kalt kvöldloftið í Front stræti var mikill léttir. Hún hafði verki í vinstra auganu og hún tók eftir að kjóllinn var rifinn. Tara hugsaði með viðbjóði um það sem skeð hafði. Fljúgast á við hóru á krá eins og skipamella! Hún var skelfd yfir sjálfri sér. Og af hverju? Af því að þessi vitlausa kona var svo hrædd um að tapa aðdáun Smiths. Guð hjálpi hverri konu sem þráir svona aðdáun, hugsaði hún bitur. Hvað henni viðvék þuffti Cad Wilson ekki að hafa áhyggjur, hún mátti svo sannarlega eiga Sápu-Smith! Tara heyrði fótatak fyrir aftan sig og síðan rödd Smiths: „Hæ, Tara, hægðu á þér!” Hún gekk hraðar en Smith náði henni. „Ég sagði þér að varast Cad,” sagði hann. „Hún getur verið mjög skæð.” Tara horfði beint fram fyrir sig. Smith hélt áfram að tala og virtist ekki taka eftir að hún hafði ekki einu sinrti svarað. „Hvers konar maður er þessi eiginmaður þinn að skilja þig eina eftir?” Hann hristi höfuðið hæðnislega. „Maður sem vanrækir konu eins og þig....” En Tara var of þreytt til að mót- mæla ögrunum hans. Fyrir utan hús frú Miles tók Smith ofan hattinn. „Góða nótt, frú Kane. Gleymdu ekki að setja steik á glóðar- augað!” Hún skellti hurðinni á hann. Tara baðaði augað með vatni næsta morgun og kveið fyrir að líta framan í frú Miles. Frú Miles var aftur á móti ákveðin í að freistast ekki til að spyrja hvað hefði komið fyrir. Á meðan frú Miles var að heiman bankaði einhver á framdyrnar. Töru til mikillar furðu stóð Cad Wilson þar, dá- samlega vel klædd, með engin merki um slagsmálin. „Góðan daginn, frú Kane. Getum við talað saman einhvers staðar?" „Um hvað?" spurði Tara. „Ég er meðdálítið til að sýna þér." Tara visaði henni inn í setustofuna, þar sem hún rétti henni pakka. Tara horfði forvitin á hana, siðan tók hún utanaf hlutnum. Það var herraúr úr silfri — úr föður hennar. lnni í þvi var áletrun sem hún hafði látið grafa þegar hún gaf Daniel það: 777 Daniels með eilfri ást frá ástkœrri eiginkonu hans. Töru, árið 1895. Hönd Töru titraði aðeins. „Hvar fékkst þú þetta?" hvíslaði hún. Tara starði tortryggin á úrið- Hún þreif það af henni og spurði æst: „Hvar fékkstu það?” „Eiginmaður þinn tapaði þvi í póker með félaga sínum, Jake Gore," sagði Cad Wilson henni. „Bróðir Jakes, Arne, sýndi mér það og sagði að Jake væri að grafa með Daníel. Hann teiknaði þetta kort af staðnum þar sem þeir eru að grafa.” Hún rétti Töru pappírssnepil. „Ég skil þetta ekki,” sagði Tara seinlega. „Ef þú hatar mig svona mikið, hvers vegna ertu þá að reyna að hjálpa mér?” „Ég vil ekki hafa þig nálægt Jefferson Smith. Hann er mín eign. Finndu þinn mann. Nú þegar þú veist hvar Daniel er, náðu þá í hann og farðu burt.” Um leið og Cad fór horfði hún á Töru eins og tískudrós sem horfir á hús- hjálpina sína i vinnufötunum. „Ég skil ekki hvað Jeff sér við þig.” Þegar Hart heyrði fréttir Töru reyndi hann að draga úr ákafa hennar. Honum fannst Cad grunsamleg og um leið og hann sýndi Töru kort af Yukon benti hann henni á hætturnar á leiðinni. En þegar hann heyrði að Tara hafði þegar leigt sleða og var ófáanleg til að breyta áætlun sinni, krafðist hann þess að fá að fylgja henni í leiðangurinn. Snemma næsta morgun náði Tara í sleðann, sem hún hafði leigt, og hundana og fór frá Dawson. Hart fylgdi á eftir. Sleði hans var hlaðinn Ijós- myndaútbúnaði. Þær hundrað mílur sem Tara hafði ferðast með sleðum annarra höfðu ekki verið til ónýtis. Hún hafði séð hvernig menn meðhöndluðu hundana. Tara var hrædd fyrstu mílurnar, en síðan geröi hún sér grein fyrir að hundranir höguðu sér eins og hún vildi, þeir hlýddu henni. Það var dásamleg tilfinning að vera öllum óháð. Þá kom hún auga á hestamann, sem kom ríðandi á miklum hraða og dró á þau. Það var Jefferson Smith. Tara keyrði hundana áfram en sér til gremju sá hún að Hart hægði á sér og Smith var Wyatt Earp snari sér að spilum og öðrum áhugamálum á krám. Hann átti „einu annars flokks krána i Alaska" sem er hér Ijósmynduð af E. A. Hegg. 4. tbl. Vikan 19

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.