Vikan


Vikan - 24.01.1980, Síða 26

Vikan - 24.01.1980, Síða 26
Slysfarir Einn mesti harmleikur rokksins átti sér stað í Cincinnati í Ohio í Bandaríkj- unum þegar 11 ungmenni tróðust undir á hljómleikum hljómsveitarinnar The Who. Tugir annarra særðust illa. Slysið varð þegar þúsundir aðdáenda hljóm- sveitarinnar ruddust inn i hljómleikasal- inn til að ná sem bestum sætum. Þetta var allt ungt fólk, sá elsti sem lét lífið var ekki nema 21 árs gamall. Hljómleikarnir voru haldnir í Riverfront Coliseum tón- leikahöllinni en hún er sú stærsta í Cincinnati, tekur 18000 manns í sæti. Framsýnir aðdáendur höfðu tryggt sér miða í tíma, númeraða miða sem giltu fyrir sérstök sæti í höllinni og þannig höfðu 10000 miðar selst. Þeir 8000 miðar sem þá voru eftir voru seldir löngu seinna og voru ónúmeraðir og giltu þvi eingöngu sem aðgöngumiðar að húsinu sjálfu. Því var það augljóst mál að þeir sem komu fyrstir með ónúmeraða miða fengu að sjálfsögðu bestu sætin. Og það var einmitt I kapphlaupinu um þau sem 11 manns létu lífið. Borgarstjórinn í Cincinnati hefur nú bannað sölu á ónúmeruðum aðgöngumiðum. 11 tróðust undir á Who-hljómleikum Það átti að byrja að hleypa inn í húsið klukkan 19. Strax upp úr hádegi er fólk farið að raða sér upp í biðraðir. Það er kalt í veðri og unglingarnir ylja sér með því að drekka viskí af stút og bjórkönnur ganga á milli manna. Þegar klukkan er langt gengin í 8 eru dyrnar enn lokaðar fyrir þá 8000 sem höfðu keypt sér ónúmeraða miða. Ókyrrð myndaðist í hópnum sem stóð fyrir utan en að innan mátti heyra að hljómsveitin var byrjuð að spila. Allt í einu kastar einhver úr hópnum flösku í stóra rúðu sem lætur undan með miklu braki. Ekki er að sökum að spyrja. Langþreyttir ungling- arnir taka á rás yfir glerbrotin, inn í húsið og stefna á hljómlistina sem ómar i fjarska. Það skiptir öllu að verða með þeim fyrstu þvi þá aðeins er gott sæti tryggt. Ogþá verðurslysið. Nokkrir detta og ná því ekki að standa á fætur á ný þar sem þúsundir fóta ryðjast áfram — áfram i átt að tón- Hjúkrunarmenn hlúa að einu fórnar- lamba tónleika The Who. ©1979 King Features Syndicate, inc. World rights reserved. 26 Vikan 4. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.