Vikan - 14.02.1980, Page 3
Mest um fólk
eintök af Vikunni, nú fæ ég 5 og skila-
hlutfallið er það sama. Þá var ég lika
með einkasölu á Tígulgosanum og
Glaumgosanum og úrvalið i vagninum
mikið — 30 titlar minnst. Nú hefur
útgáfa öll dregist saman.
— Getur þú ekki farið að selja pulsur
og tyggjóeinsog hinir?
— Það er ómögulegt. þá þarf alls kyns
leyfi og svo hef ég ekki góða reynslu af
gasi. Eins og þú sérð þá er ég með
gastæki hér i vagninum til að halda á
mér hita og eitt sinn kom það fyrir þegar
ég var að kveikja á því að vagninn
bókstaflega sprakk i tætlur og ég hentist
hálfa leið niður á höfn. Sem betur fer
slasaðist égekki mikið.
Það er nú það. Litli blaðavagninn á
Ráðhústorgi fer senn að loka fyrir fullt
og allt og er það miður. Hvergi annars
staðar á landinu þekkist þetta form á
rekstri — að selja eingöngu blöð og
timarit úr vagni á hjólum — og það á
Ráðhústorgi.
— Segðu okkur eilt að lokum. Pálmi.
Hefur vagninn fengið að standa
óáreittur fyrir skemmdarvörgum hér
fyrir norðan?
— Onei. nei! Það hefur verið kveikt i
honum og svo hefur að minnsta kosti
þrisvar verið brotist inn i hann. Þar að
auki hefur hann verið klóraður. rifinn og
skorinn ...
EJ
Nú
er
bara
eftir
að
loka
og
hffltta
Á Ráðhústorginu á Akureyri stcndur
lítill, grár vagn á hjólunt — reyndar er
hann búinn að standa þarna lengi — eða
I heil 17 ár. Inni i vagninum situr Pálmi
Olafsson og hann selur ekki pulsur,
tvggjó og kit-kat eins og ætla mætti,
heldur eingöngu blöð og tfmarit — allt
islenskt.
— Þegar ég byrjaði á þessu þá var ég
með 80-90% af allri blaðasölu hér á
Akureyri, segir Pálmi og teygir höfuðið
út urn opið. — En nú er farið að selja
þetta út um allt þannig að grund-
vellinum hefur verið kippt undan
þessum rekstri minum.
— Það eru 17 ár síðan ég byrjaði á
þessu, fyrst var ég með opinn handvagn
og sat þá hér á Ráðhústorginu og seldi.
Fljótlega kom ég mér þó upp þessum
vagni, keypti hann al húsasmið sem
hafði smíðað hann sjálfur og gott ef
hann fór ekki nokkrar ferðir um
landið í honunt með frú sina. Það er
ágætt svefnpláss hér fyrir tvo eins og sjá
má. Sem dæmi um samdráttinn get ég
nefnt að í upphafi fékk ég venjulega 200
Þessi var að kaupa sér Daghlaðið að
gömlum hætti.
7. tbl. Vikan 3