Vikan - 14.02.1980, Side 4
Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk veitingahús
Best
hlutfall
verðs
og gœða
Hin nýlega veitingastofa Hornið hefur
best hlutfall verðs og gæða af þeim
stofum, sem fjallað hefur verið um í
gæðaprófun Vikunnar. Þar má fyrir
tiltölulega litið verð fá mat og þjónustu.
sem jafnast á við sum vínveitingahúsin
og slær önnur þeirra út.
Hornið er lítið og tekur aðeins
rúmlega 40 í sæti. Sæmilegt rými er milli
borða og hreinlæti í veitingasal er á háu
stigi. Andrúmsloftið er viðkunnanlegt
og hvetur til langrar setu. Lágvær tón-
listin er vel valin.
Innréttingar eru einfaldar og þó djarf-
legar. Mest áberandi eru hinar gífurlegu
pappírsljósakrónur yfir borðunum. Og
fljótlega beinast augun að innmúruðum
peningaskápnum i einu horninu.
Tágastólar eru við smíðajárns-
borð með einkar skemmtilegum
marmaraplötum. Steinflísar eru á gólfi
og grár panell i veggjum og lofti. A
veggjum hangir ýmislegt dót, svo og stór
skólatafla, sem á er kritaður réttur
dagsins.
Gluggar eru mjög stórir og tjalda-
lausir, svo að tengslin við umferðina i
Hafnarstræti eru náin. Kuldanum frá
gluggunum er svo mætt með miklu
blómaskrúði fyrir innan. Það gefur
stofunni tiltölulega hlýlegan blæ, þrátt
fyrir gluggana.
ítalskt
Ítölsk þjónustan var ágæt. Þjónarnir
tveir virtust hafa nægan tíma til að
sinna gestum, þótt Hornið væri um það
bil fullsetið. Þeir voru ekki eins lærðir og
íslenskir fagmenn, en bættu það upp
með Ijúfmennsku og brosi.
Matseðillinn var furðu stór á svona
litlum stað. Hann er saminn undir
ítölskum áhrifum, á franskri tungu, —
og með islenskum skýringum. Boðið var
upp á rétt dagsins, sex forrétti, ellefu
aðalrétti, fimm pizzur og fimm eftirrétti.
Kjötréttir voru aðeins tveir, lamb og
kjúklingur. Mest var byggt á sjávar-
réttum og voru þeir átta af ellefu aðal-
réttum. Það gladdi auga mitt, því að hér
á landi er fiskur og önnur sjávarfæða eitt
besta hráefnið.
Því miður hafði Hornið frystan fisk á
boðstólum, en ekki ferskan, sem fékkst
þó sama dag í fiskbúðum. Og Hornið
gerði ekki skarpan greinarmun á
rauðsprettu, smálúðu og ýsu í eldhúsinu,
þótt matseðillinn þykist gera það.
Matnum var fallega komið fyrir,
oftast í djúpum, skemmtilegum skálum
með hrísgrjónum í botni. Tilfinning fyrir
lystaukandi útliti matar virtist vera mun
meiri en gengur og gerist á íslenskum
veitingastofum. Og maturinn var heitur.
Hörpuskelfiskur
Pönnusteiktur hörpuskelfiskur með
hrisgrjónum, ananas og karrísósu var
frekar smávaxinn og virtist fremur vera
úr dós en frysti. Samt var hann meyr og
hafði eðlilegt bragð. Meðlætið var
ágætt, seljustönglar, hrásalat og
gulrætur.
Þessum rétti sem flestum öðrum
fylgdi gott hvitlauksbrauð og grautsoðin
hrisgrjón, sem mér fannst lítið til koma.
Ég tek stinn hrísgrjón langt fram yfir
þessi.
Verðið er 3.800 krónur.
Smálúðuflök
Smálúðuflök í bakaðri kartöflu með
rækjusósu báru þess greinileg merki, að
þau voru úr frysti. Sem slik voru þau vel
matreidd, ekki ofsoðin. Þau hvíldu á
mjög stórri, opinni kartöflu. Mér fannst
þetta sæmilegt en fremur bragðdauft.
Verðið er 2.850 krónur.
Ýsa?
Pönnusteikt „smálúða" með kapers,
lauk og hvitlauksbrauði var réttur
dagsins. Mér fannst lúðan minna mig
mjög á ýsu. En hún var mjög góð,
mátulega steikt, mjúk og safarík. Með
henni fylgdi ágætt hrásalat, gúrka og
sítróna, svo og áðurnefndu, grautsoðnu
hrisgrjónin.
Verðið er 2.390 krónur, sannkölluð
kostakaup.
Humarhalar
Smjörsteiktir humarhalar með
banönum og hrísgrjónum voru
smávaxnir. Þeir höfðu verið steiktir full
lengi og við of mikinn hita, því að þeir
voru allt að því brenndir. Þeir voru þó
enn meyrir og reyndust búa yfir ágætu
humarbragði.
Verðið er 6.400 krónur, ódýrara en á
vínveitingahúsunum, en ekki eins gott.
Spaghetti
Spaghetti með tómötum og hvitlauk
reyndist vera spaghetti i sérhannaðri
tómatsósu, fremur lítilfjörlegur matur.
Verðið er 2.450 krónur.
Kjúklingur
Ofnbakaður hnetukjúklingur með
salati, ofnbakaðri kartöflu og hvítlauks-
smjöri var fremur mikið bakaður og
þurr, en eigi að siður næstum þvi fram-
bærilegur. Með honum fylgdi bráðið
hvítlaukssmjör. Hnetubragð fann ég
hvergi.
Verðið er 4.300 krónur.
Lamb
Lambakjöt að austurlenskum hætti
reyndist vera fyrirtaks matur á góðu
verði. Þetta var blanda af kjöti og
grænmeti, borin fram i ágætri sósu,
ættaðri af tómötum. Kjötið var bæði
meyrtogbragðgott.
Verðið er 3.300 krónur.
Skop
Heyrðirðu lætin I mér þegar ég var að henda hundinum út I gærkvöldi þegar
ég kom heim af barnum?
4 Vikan 7. tbl.