Vikan


Vikan - 14.02.1980, Page 14

Vikan - 14.02.1980, Page 14
Ferðir og frásagnir HVAÐ MÁ BJÓÐA YÐUR? Vikan geröi nokkra könnun á þeim feröum sem okkur íslendingum standa til boöa á vit snjós og heilbrigös útilífs og fara hér á eftir nokkrar upplýsingar um þcer ásamt áœtluöu veröi. Ennfremur spjölluöum viö lítillega viö nokkra aöila sem aö slíkum málum standa. Skíðaferðir innanlands ÞJÓÐARÍÞRÓTT ÍSLENDINGA — Það hafa orðið geysilegar stökk- breytingar á iðkun skiðaíþróttarinnar hér á landi á undanförnum árum, bæði hvað varðar aðstæður og viðhorf fólks, sagði Kjartan Lárusson, forstjóri Ferða- skrifstofu ríkisins, er við inntum hann eftir möguleikum innanlands. — Enda eru fáar íþróttir betur til þess fallnar að sameina alla fjölskylduna, jafnt unga sem aldna. Það má kannski lengi deila um hvaðsé þjóðaríþrótt íslendinga en ég mundi segja að skíðaíþróttin væri á góðri leið með að verða það. hafi hún ekki þegar náð því marki. — Það hefur verið lögð mikil áhersla á uppbyggingu skiðastaða hér og víða orðin góð aðstaða fyrir iðkun þessarar iþróttar. Má þar t.d. nefna Bláfjöll, Skálafell og Hveradali, í nágrenni Reykjavíkur, Skíðamiðstöðina á Akureyri, Húsavík, ísafjörð. Siglufjörð og Ólafsfjörð, en þar hefur skiðastökk mjög verið í hávegum haft. Og svo var nýlega verið að opna skíðalyftu í Odds- skarði milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. — Þetta er óneitanlega heilmikið úrval. Hingað til hafa að vísu aðeins verið skipulagðar ferðir til Akureyrar og Húsavikur en þess verður áreiðanlega ekki langt að þíða að einnig verði skipu- lagðar ferðir til hinna staðanna. Þessar ferðir og raunar öll uppbygging skíðastaða innanlands hefur eingöngu miðast við íslendinga og er ekki á áætlun að bjóða þær til sölu á erlendum markaði. Annars má geta þess til gamans að nú eru nákvæmlega 200 ár síðan fyrst var stigið á skiði á íslandi. Um þann atburð getur að lesa í Öldinni átjándu: Fólk á bæjum við Eyjafjörð rak upp stÓF augu, er jrað sá tvo menn koma af Vaðlaheiði og fara undan brekkunni sem fugl flygi, þótt fannkyngi væri og mesta ófærð. Reyndust þetta vera tveir ungir menn úr Þingeyjarsýslu á skíðum. Þeir höfðu lagt af stað frá Húsavík klukkan sjö um morguninn, og klukkan níu um kvöldið komu þeir til Akureyrar. Á Íslandi kunna menn yfirleitt ekki að fara á skíðum, en assistent á Húsavík, Nikulás Buch, hefur gefið þessum Kjartan Lárusson. tveimur mönnum finnsk skiði. er hann fékk frá föður sínum á Finnmörk í Noregi, og kennt þeim að nota þau. Vigfús Jónsson, sýslumaður Þing- eyinga, hefur skýrt dönsku stjórninni frá framtaki verslunarþjónsins á Húsavík, og í vetur var ákveðið, að hann skyldi njóta verðlauna úr konungssjóði fyrir hverja þrjá íslendinga. sem hann kenndi að ganga á skíðum. Vilja stjórnarvöldin í Kaupmannahöfn með þessu stuðla að þvi að skíðaíþrótt verði iðkuð í landinu, þar eð líklegt er, að hún geti orðið að miklu gagni. 14 Vikan 7. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.