Vikan - 14.02.1980, Page 15
— Skíðadeild KR hefur aðstöðu sína í
Skálafelli i Esjunni. Viö byrjuðum að
reisa þar nýjan skála 1956, eftir að sá
gamli hafði orðið eldi að bráð, og var
hann vígður 1958. Við rekum þarna 6
skíðalyftur og er sú lengsta rúmlega 600
metrar. Að minu viti er þetta tvímæla-
laust besta skiðabrekkan á Suðvestur-
landi, hún er löng, ekkert óskaplega
brött, en halli mjög þægilegur. Sem sagt
heppileg brekka fyrir fólk á öllum stigum
skíðaíþróttarinnar.
— Félagar eru nú á milli 500-600 og
við höfum orðið áþreifanlega varir við
að þessi íþrótt nýtur stöðugt meiri hylli
meðal almennings. Skíðadeildin er orðin
ein af öflugustu deildunum innan KR.
— Skálinn okkar er opinn fyrir félags-
menn og aðra um helgar en leigður
skólum i miðri viku. Það má segja að
skíðatímabilið vari frá janúarbyrjun og
fram í maí. Fólk kemur sjálft með mat
með sér en við sjáum um sölu á gos-
drykkjum, samlokum og öðru snarli.
Gisting er ókeypis fyrir félagsmenn og
einnig sjáum við þeim fyrir kennslu
þeim að kostnaðarlausu. Ársgjald félags-
manna er þrískipt: Fullorðnir: kr. 5000,
Valur Jóhannsson,
formaður skíðadeildar KR:
DRAUM-
URINN
ER
LYFTA
UPP
ÁTOPP
13-15 ára: kr. 3000 og kr. 2000 fyrir
börnyngrien 13ára.
— Við seljum líka lyftugjöld á árs-
grundvelli: Kr. 32.000 fyrir fullorðna,
kr. 18.000 fyrir 14-16 ára og kr. 12.000
fyrir börn yngri en 14 ára. Þetta gildir
fyrir allar lyftur nema nr. 3 og 4, en þær
eru sérstaklega ætlaðar keppnisæfing-
um.
— Við erum með sérferðir upp í
Skálafell á laugardags- og sunnudags-
morgnum og er þá lagt af stað frá
Mýrarhúsaskóla kl. 9.30 með nokkrum
viðkomustöðum á Stór-Reykja-
Valur Jóhannsson.
vikursvæðinu. Fargjald fram og til baka
er kr. 2000.
— Langi fólk til að fá fregnir af veðri
og skiðafæri i Skálafelli áður en haldið er
af stað þarf það ekki annað en hringja i
sima skiðadeildar KR, 22195. Starfs-
fólkið I Skálafelli sendir okkur þessar
upplýsingar á hverjum morgni og við
lesum þær siðan inn á símsvara.
— Auðvitað erum við með margt á
prjónunum hvað aukna þjónustu og
endurbætur snertir. En stærsti draumur-
inn er þó að koma okkur upp lyftu alveg
upp á topp á Skálafelli, en lengd hennar
yrði þá einhvers staðar á bilinu 1200-
1500 metrar eftir staðsetningu.
SKÍÐAFERÐIR
TIL AKUREYRAR
- HLÍÐARFJALL:
Brottför á föstudegi og komið til
baka á surinudegi.
Verð ferðanna er sem hér segir: Börn i svefnpokaplássi — 18.400
1 tveggja mann herb. kr. 41.500 Innifalið er flug. brotlfarargjald, gisting
Svefnpokapláss —33.100 og morgunverður.
Aukanótt í herbergi kostar kr. 8.400, kr.
4.200 í svefnpokaplássi og kr. 2.100 fyrir
börn 11 ára og yngri.
LYFTUGJÖLD:
Stólalyfta,
ein ferð kr. 600 börn kr. 300
Allar lyftur,
einndag kr. 2.900 börn kr. 1.500
112 dag kr. 2.200 börn kr. 1.000
kvöld kr. 950bömkr. 600
Mat er að sjálfsögðu hægt að fá í matsal
skíðahótelsins allan daginn.
Þess má geta að haldin verður mikil
vetrarhátíð í Hlíðarfjalli dagana 28.
febrúar til 2. mars. Þar mun m.a. fara
fram alþjóðlegt skiðamót þar sem keppt
verður í stórsvigi karla og kvenna. í
sambandi við hátíðina verða einnig
settar upp sérstakar sögu- og vöru-
sýningar.
LEIGA:
Skíði/skór/stafir
skiði
skór
stafir
gönguútbúnaður
KENNSLA:
kr. 5.100 á dag
kr. 2.600 á dag
kr. 2.600 á dag
kr. l.lOOádag
kr. 4.000 á dag
I hóp, 1 klst. kr. 5.500 á mann.
Söluaðilar: Ferðaskrifstofan Úrval
og Ferðaskrifstofa ríkisins í samvinnu
við Flugleiðir.
Ennfremur bjóða ferðaskrifstofurnar
Útsýn og Ferðaskrifstofa ríkisins upp i
samskonar ferðir til Húsavikur i
svipuðu verði.
7- tfel. VlkM lf