Vikan


Vikan - 14.02.1980, Síða 37

Vikan - 14.02.1980, Síða 37
lengri ferða utan troðinna slóða. Skiðin geta verið frá 45-55 mm og upp í 75 mm. Einnig ber að hafa líkamsþyngdina í huga. Sá sem er i þyngra lagi þarf breiðari skíði en sá sem er léttur. Hvaða skíði á að velja? Þó að við vitum hve löng skíðin eiga að vera er ekki allur vandi leystur. Það þarf að ákveða úr hvaða efni skíðin eiga að vera. Eigum við að velja tréskíði, tréskíði styrkt með treljaplasti eða skiði framleidd úr gerviefni — yfirleitt trefja plasti. Þessar tegundir eru gjarna með plastþynnu að neðan og þarf þá ekki að bera á sumar tegundir þeirra, nema hvað nauðsynlegt er að smyrja gegn bakrennsli. Tréskíði þarf að tjörubera og síðan bera á þau skíðaáburð til að fá gott rennsli. Yfirleitt er ekki erfitt að ná góðu rennsli á tréskiðum í köldu veðri og bakrennsli tæpast vandamál. Aftur á móti er erfiðara að fá gott rennsli á tré- skíðum í þíðu og þegar hitj er við frostmark. Það er m.a. þess vegna sem skiði með plastþynnu hafa orðið mjög vinsæl. Þynnan gefur gott rennsli i hvaða færi sem reynt er, jafnvel þó spyrnuflöturinn sé ekki smurður. En ef spyrnuflöturinn er ekki smurður er hætt við að maður lendi í vandræðum með skiðin. Þau renna nefnilega alveg jafnvel aftur á bak sem áfram. Því ber að hafa í huga að alltaf þarf að bera á spyrnuflötinn á skíðum með plastþynnu til að komast hjá bakrennsli. Gæði plastþynnunnar eru misjöfn. Þekktasta plastþynnan er kölluð P-tex og er í þrem gæðaflokkum, N-100, 1000 og 2000. P-tex 2000 er dýrast en gefur besta viðloðun fyrir skíðaáburðinn. Til að vera viss um að skriðvaxið tolli meira en nokkur hundruð metra ætti að bera grunnvax á allan flötinn þó uin plast- skíði sé að ræða. Þaðer mikil list að bera rétt á skiði og eitt stærsta leyndarmál keppnismanna á skiðum. Leggja þarf alúð við verkið og leita réttra leiða. Það skapar dæmalausa armæðu og leiðindi ef rennsli er lélegt, að maður tali nú ekki um bakrennsli. Þeim sem finnst alveg fráleitt að eyða tíma í að bera á skíðin sín og geta sætt sig við að rennsli sé ekki sem best er benl á að hægt mun að fá skíði sem ekki þarf að nostra neitt við. Þessi skiði eru af ýmsum gerðum. Ein gerð er t.d. með plastþynnu og siðan eru fræstar raufar i þynnuna og þar limdur móherborði. Þetta dregur úr rennslinu en gefur i staðinn góða spyrnu. Þessa gerð þarf hreint ekkert að bera á. Svona efni endist takmarkað og þarf að skipta annað veifið um móherborðann. Önnur tegund af skíðum, sem ekki þarf að bera á, er með munstraðri plast- þynnu. Sama gildir um þetta og hið fyrr- nefnda, og rennslið verður síðra cn spyrnan góð. En ekkert jafnast á við skiði sem borið hefur verið á eftir öllum kúnstarinnar reglum og i samræmi við veðurfar hverju sinni. Það skapast yfirleitt ein hver vandræði með skíði eins og þau sem hér var áður lýst. Þeir sem hugsa sér að fara til fjalla ættu helst að nota skiði með plastþynnu og stálkanti, eða hickoryskíði með stál eða „lignostone”kanti. Birkiskíði t.d. myndu slitna fljótt í harðfenni. Stálkantur er ekki algjör nauðsyn en stór kostur þegar gengið er á snið i fjalla- hliðum eða farið niður hliðar fjalla þar sem harðfenni er mikið. Spennan mikilvæg Burtséð frá þvi hvað við ætlum okkur með þau skíði, sem við fáum okkur, þarf skíðið alltaf að hafa rétta spennu. Spennan er sveigjan á skiðunum sem veldur þvi að miðhlutinn, undir fætinum, er ekki í sambandi við snjóinn þegar ekki er verið á skíðunum. Þið getið mælt rétta spennu með því að leggja pappírsblað undir miðjuna, stiga á skiðin með jafnan þunga á báða fætur og þá á að vera hægt að draga blaðið undan. En þetta mun hægt að mæla i skíða vöruverslunum af meiri nákvæmni. Ef meiningin er að ganga með byrði á bakinu þarf að taka tillit til þess þegar spennaner ákveðin. Spennan má hvorki vera of stíf eða lin. Of mikil spenna leiðir til þes's að þið getið ekki spyrnt spyrnufletinum niður í 7. tbl. Vikan 37

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.