Vikan - 14.02.1980, Qupperneq 38
Vikan og Neytendasamtökin
Sumar gerðir eru með tvöfaldri tungu og
tvöfaldri reimun. Siður er hœtta á að maður
blotni i þessum skóm, en tvöföld reimun er
óþægileg.
Takið eftir samsetningunni á þessari
teikningu. Það er alltaf hætta á að raki fari
inn með svona saum eins og sýndur er á efri
myndinni. Betri kostur er samsetning eins og
sést á neðri teikningunni.
Kaupið ekki skó með lágt tástykki eins og
sýnt er á efri myndinni. Veljið skó með hátt
tástykki svo að þið getið sett innlegg i
klosann og notað þykka ullarsokka. Jafnvel
er gott að gera ráð fyrir tvennum sokkum úr
ull utan yfir venjulega sokka.
Hér er teikning af gormabindingum með tástykki samkvæmt IMordic staðli. Tástykkið og
Bestu skórnir eru með utanáliggjandi tungu sólinn á skónum passar saman.
og einfaldri reimun.
Allir leðurskór eru með saumum. Það kemst
raki inn með saumunum, því ættu þeir að
vera sem fæstir. Ef þið veljið skó með
mörgum skrautröndum þurfið þið ekki að
búast við að vera lengi þurr i fæturna.
Ef við erum með skó, sem ekki eru framleiddir með ákveðna gerð bindinga i huga, kemur til
sögunnar að reyna að fá gormabindingar með tástykki í tveim hlutum, þannig að hægt sé að
ákveða breiddina eftir skónum. Sumar gerðir bindinga eru með spennu sem á að halda
sólanum föstum inni i tástykkinu, en ekki er ráðlegt að treysta á hana en setja frekar óla á
skiðin og spenna yfir skótána. Sumar bindingar eru með festingu sem ætlast er til að maður
noti til að spenna niður gorminn og læsa þannig skóinn fastan. Þetta ber að varast, fóturinn
situr blýfastur og ef þið dettið er mikil hætta á beinbroti.
Lítið
eitt um
skíða-
útbún-
að
snjóinn og rennið aftur á bak. Ef
spennan er of lítil liggur spymuflöturinn
of djúpt i snjónum og verkar eins og
bremsa.
Stafir
Stafir eru framleiddir úr ýmsum
efnum. Algengastir eru stafir úr trefja-
plasti. Dýrari eru stafir úr stáli t.d. og
ekki nauðsynlegir ef maður stundar
íþróttina nærri heimkynnum sínum. En
sé farið i lengri ferðir er rétt að vera með
málmstafi af einhverri gerð, sem brotna
ekki eins og gæti gerst með stafi úr
trefjaplasti eða reyr t.d.
Karfan þarf að vera sæmilega stór,
sérstaklega þegar gengið er í ótroðnum
snjó.
Handfangið ætti að vera úr efni sem
ekki tekur í sig mikinn kulda, korki eða
einhverju svipuðu efni sem er klætt með
leðri. Ólina þurfum við að geta stytt og
lengt eftir því hvort viðgöngum berhent
ellegar meðeina eða tvenna vettlinga.
Mælið skóstærðina í svona málstokki, sem
verslunin hefur vafalaust frammi. Mælið
stærð fótar og innanmál klossans. Skiðaskór
eiga að vera ca 10 mm lengri en fóturinn.
38 Vikan 7. tbl.