Vikan


Vikan - 14.02.1980, Síða 39

Vikan - 14.02.1980, Síða 39
Þeir sem kjósa að vera á skíðum i hvaöa færi sem er og hræðast hvorki mikinn kulda eða þiðu ættu að velja sér klossa sem ná hátt upp á legginn og eru úr gerviefni. Þessir skór eiga varla upp á pallboröið hér á landi og vafamál að þá só að fá. En ef við eignumst slika skó þarf að fá bindingar með tástykki i tvennu lagi og vanda ásetningu mjög. Hér eru sýnd skíði sem henta í troðinni slóð. Skiðin eru nokkuð mjó, skórnir léttir og fram- leiddir eftir sama staðli og tábindingarnar. I þíöviðri er gott að verja skóna með þunnum nælonleist (til hægri á myndinni). Ef þið ætlið að ganga ótroðna vegu þurfið þið breiðari skiði og myndarlega skó. Klossarnir á myndinni ná upp fyrir ökklaliðinn og eru með nokkuð þykkum sóla. Bæði skórnir og bindingarnar hór er framleitt samkvæmt Nordic Norm. I lausamjöll er gott að hafa ökklahlífar svo snjórinn fari ekki inn á milli (til hægri á myndinni). Stafir eru úr reyr, trefjaplasti, stáli eða léttmálmi. Þeir síðarnefndu eru sterkari en dýrari. Karfan á myndinni er litil og hentar aðeins þegar gengið er í troðinni slóð. Hafið stærri körfu á stöfunum ef þið fariö út af sporinu. Skiðin tvö til vinstri á myndinni eru úr tré og þarf að tjörubera þau og bera á þau vax. Skíði nr. tvö frá vinstri er sterkara, sólinn er úr hickory og kanturinn úr „lignostone". Skíðið fyrir miðju er með plastþynnu. Ódýrari gerðir þarf að bera á, svo að spyrnuvaxið loði við. Vandaðri tegundir á að vera óþarfi að bera á grunnvax en á ómunstraða plastþynnu þarf alltaf að bera spyrnuvax, annars eigið þið við bakrennsli að striða. Skíðin til hægri þarf ekki að bera á. Þau renna þokkalega og spyrnan er örugg. Skiðið lengst til hægri er með plast- þynnu og móherborða í raufum. Að lokum Þ?ssi grein getur vonandi leiðbeint þeim sem hyggst ráðast í að kaupa skíðaútbúnað og leggja á fjöll. En þó neytandinn telji sig geta séð við helstu gildrunum, þegar inn í verslunina kemur, þarf hann að leggja traust sitt á sölumanninn, sem vissulega býr yfir heilmikilli viðbótarþekkingu. Ef við eigum að hafa ánægju af skiða iðkun skiptir öllu máli að eiga réttan búnað. Það er ekki hálf ánægja að þvælast um á röngum útbúnaði og því skulið þið leggja ykkur fram við að finna það allra besta og gera ykkur vel grein fyrir hvernig þið ætlið að nota ykkar skíðaútbúnað. Á því veltur allt að valið sé nákvæmt. Birt í samráði við Noytendasamtökin. Þýð.: S.H. úr Rád tr Rön.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.