Vikan


Vikan - 14.02.1980, Side 41

Vikan - 14.02.1980, Side 41
 Moltex Combinette buxur og bleia í einulagi Heildsölubirgðir Halldór Jónsson • GLÆSIBÆ - VERSLUNIN ? Od'l'ri' sÍMI 84820 Um morguninn þann fjórða júli heyrði Tara háreysti um leið og hún setti siðuslu spennuna i hárið. Hún hafði heitið því að leyfa Smith aldrei að snerta hjarta sitt. Samt var hún hér núna. i sparifötunum og grænu augun hennar Ijómuðu af eftirvæntingu. Þegar Smith kom að sækja hana var hann I einkennisbúningi. Allt bölið virtist vera gleymt. Fólk veifaði og fagnaði þegar þau óku upp aðalgötuna aðskreyttum danspallinum. Smith leiddi Töru að pallinum og kynnti hana fyrir landstjóranum. „Brady landstjóri hefur gert okkur þann heiður að taka hermannakveðju." sagði hann. veifaði síðan og hvarf á brott til að leiða her sinn i skrúðgöng- unni. Hljómsveitin spilaði niars. tromm urnar voru barðar hratt þegar Jefferson Smith leiddi menn sina niður götuna. „Stórkostlegt. stórkostlegt." muldraði landstjórinn eftir að hafa tekið hermannakveðju. Síðan steig hann aftur til að njóta skrúðgöngunnar. röð tinibur- flota táknaði viðskipti Skagways. Skrúðgangan fór loksins frani hjá en hópurinn stóð kyrr og beið eftir að Smith kæmi aftur fram á pallinum. . „Samborgarar i Skagway." byrjaði Smith og lyfti höndunum til merkis um þögn. „Þetta er ekki tími fyrir langar ræður. þetta er stund til aðskemmta sér. Þessa stóra þjóð á i striði og fólkið í Skagway ætlar að taka þátt i þvi. Við gerum skyldu okkar en okkur finnst lika að við eigum stóran hlut skilinn. Ibúar Alaska hafa beðið þingið að láta okkur fá okkar eigin þingmenn. sem eru kosnir.’’ Undir ræðunni stappaði fólkið niður fótunum og það var hleypt af byssum. „Við viljum ekkert nema rétl okkar." öskraði Smith. „Hvað hefur Washing- ton gert fyrir okkur? Búið til skitin lög. skattlagt okkur, en hvað annað? Þetta landsvæði á mesta möguleika í Norður- Ameriku. Viðeigum ótaldan auðen við þörfnumst manna í Washington sem vilja tala fyrir okkur, hugsjónamanna. manna sem eru hugrakkir, manna sem trúa á Alaska og framtið þess — framtíð okkar." Þegar hann settist henti fólkið höttum sinum upp i loftið og fagnaði. Smith seildist eftir hendi Töru. Smith hafði undirbúið stórkostlegt ball þetta kvöld. Tara var ekki tauga- óstyrk venjulega en þegar hún sat og beið eftir vagni Smiths hafði hún ónot i maganum. Hún hugsaði um hvernig Daniel myndi bregðast við ef hann gæti séð Itana núna. klædda i kjól. sem annar maður hafði keypt, bíða eftir vagnstjóra hans til að sækja sig. Hún reyndi að sýnast róleg þegar hún kyssti John sem dottaði i örmum Lydiu. Svo fór hún út. Þjóðhátiðarball Smiths var mesti menningarviðburður í sögu Skagway. Tara. sem var þess vitandi að fólk gaut augunum á hana, hélt höfðinu hátt þegar hún geystist inn á dansgólfið á nýjasta hótelinu. Hún var svo heilluð af dýrðinni að hún tók ekki eftir þegar Smith nálgaðist hana. „Kæra Tara mín." Hann kyssti á hönd hennar. „Þú lítur stórkostlega út." Þjónn kom með kampavin og Smith lyfti glasi sinu. „Skál fyrir yndislegustu kon- unni í heiminum.” Hljómsveitin byrjaði aðspila fjörugan Straussvals og Smith hneigði sig fyrir Töru. Gestirnir horfðu á þau hefja dans- inn. þau hæfðu hvort öðru vel. Hinir komu lika i dansinn svo gólfið varð skrautlegt. Smith bauð henni kvöldverð seinna um kvöldið. En þegar þau voru að fá sér i svanginn kom maður til þeirra. „Hlýtur að hafa kostað þig mikið af peningum,” sagði hann kuldalega við Smith. „en þetta kaupir okkur ekki!” „Ég man ekki eftir að hafa boðið þér. Reid,” sagði Smith rólega. Hann sneri sér að Töru. „Mín kæra, afsakaðu mig. Þessi heiðursmaður er Frank Reid, véla- smiður borgarinnar." Reid hneigði höfuðið stuttaralega fyrir Töru. „Ef þú komst aðeins inn til að hæða mig, Reid. Hvers vegna ertu þá kyrr?" Rödd Smiths var orðin ísköld. „Ég ætlaði aðeins að vara þig við. Smith,” svaraði Reid. „Þú ert búinn að vera. Við höfum fengið nóg." „Ég held að ég hafi líka fengið nóg." Rödd Smiths varð harðneskjuleg. „Það væri best fyrir þig að fara." Augnablik stóðu þeir kyrrir, hvorugur lét undan. Síðan snerist Reid á hæli og gekk burtu. Tara andvarpaði af létti, en Smith lék með fætinum. „Reid er tvöfaldur. Tara. Við vorunt félagar!” Þau borðuðu þegjandi. Smith var i þungum þönkum. Koma Reids hafði komið Töru niður á jönðina. Höfðu allir töfrarnir veriðdraumar? Allt í einu var tilraun Skagway að keppa við nútímasamfélag orðin einskis virði. Allir voru orðnir háværir og einn eða tveir gestir voru farnir að riða á fótunum. „Komdu," sagði Smith og leiddi hana út úr salnum og upp. „Hvert erum við að fara?” spurði Tara þegar þau voru komin upp. „Hvað heldurðu að gestirnir haldi?” Smith yppti öxlum. „Þeir eru orðnir of drukknir til að taka eftir að ég er ekki þar. Hvaðsem öðru liður langar mig að tala við þig eina." Hann opnaði dyrnar að rökkvaðri setustofu. Þar inni var stór rauður flauelssófi og í endanum á her berginu voru stórar dyr. Bak við þær. . . Tara leit meðóvissu á hann. Smith brosti litillega. „Þctta er svefn herbergið." Hann gekk þangað og læsti dyrunum. kom siðan og rétti Töru lykil- inn. Allt í einu fannst henni hún vera mjög heimsk. „Ég vil ekki að þú brjótir heilann um hvað muni gerast næst. Sestu núna niður. farðu úr skonum og slappaðu af.” „Jæja, Jeff," sagði hún. „hvað ætlaðirðu aðsegja?" Hann fór úr jakkanum og settist vicT hliðina á henni. „Ég er rneð litla gjöf handa þér.” Og hann setti giftingar- hringinn hennar í lófa hennar. Ilún starði á áletrunina 7/7 TöruJ'rá Dauiel, svipur hennar lýsti fáti og ham- ingju, síðan dró hún hann á fingurinn. „Þakka þér fyrir. Jeff,” sagði hún og augu Itennar voru rök. Starandi augnaráð Smiths vék ekki af andliti hennar. „Ég verð að segja að náungi sem elskar konu er vitlaus að gefa henni giftingarhring annars manns.” Hún reyndi að tala en hann setti ðdýrir kertastjakar Silkiblóm Þurrkuð blóm Skreytingar í miklu úrvali ÓDÝRT 7. tbl. Vikan 41

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.