Vikan - 14.02.1980, Side 42
Framhaldssaga
fingur á munn hcnnar. ,,Nei. leyfðu mér
að segja það. Ég fór að liugsa um
hvernig sambandið er á milli okkar og
það er aðeins ein leið fyrir mig og þig.
Tara. Ég ætla. gð leggja spilin á borðið.
Ég hugsaði um hvers vegna ég héldi
honum. Til að telja sjálfum mér trú um
að hann væri ekki til? Til að hugga mig
við að það væri ekki einhver annar?
Mér fannst ég láta eins og sá sem er
hræddur við drauga." Hann snerti
giftingarhringinn. „Þessi draugur. Af
því að eiginmaður þinn er draugur,
Tara. Daniel er látinn."
„Ekki," hvislaði hún.
„Hann er dáinn." hélt hann áfram.
„Þú veist það og það er best að viður-
kenna það. Þú getur ekki búið með
vofu." Hann Itorfði fast I tárvot augu
hennar.
„Guð minn góður, þú hefur leitað
mánuðum saman. Hve lengi geturðu
neitað sannleikanum?” Hann faðmaði
hana að sér og hún lagði höfuðið á öxl
lians, likami hennar skalf.
„Tara." sagði Smith og strauk henni
yfir hárið, „ég vil að þú giftisl mér."
Hún streittist á móti honum. „Ekki
segja þetta," muldraði hún.
„Ég elska þig, Tara." hélt hann áfram.
„Ég vil að þú verðir konan mín. Ég veit
að þú elskar mig líka, er það ekki?"
„Jeff, ég — ég get ekki elskað þig." En
hún gat ekki litið í augu hans.
„Af þvi þú vilt ekki leyfa þér það.
Tara. Þú ert að leita að framtíð. ég er að
mynda eina. Verum saman fyrir hvort
annað — fyrir John.”
„Jeff, ég ætla að fara með John til San
Fransisco. Þú veist að ég er búin að
ákveða mig,” sagði hún titrandi.
„Ég er ekki að reyna að breyla þeirri
ákvörðun. Tara." fullvissaði Smith
hana. „af því að mig langar að koma
með ykkur til Frisco. Við giftum okkar
fyrst hérna."
„En hvað með allar áætlanir þínar?"
„Þær skipta ekki máli, Tara. Aðeins
ég og þú. Svo mikið elska ég þig. An þin
er engin framtíð. Auðvitað myndi ég lifa
áfram og mér myndi sennilega ganga
ágætlega. Ef þú segir nei verð ég kyrr
hérna en ég myndi gera hlutina á minn
hátt. En ef þú samþykkir að giftast mér
brcylist það." Hann dró hana að sér.
„Tara. ég veit hvað minningin um
Daniel er þér. Ég er ekki að reyna að
Skop
Þið veröiö aö koma aftur eftir mánuö
vegna þess aö við liggjum enn i dvala.
koma í staðinn fyrir hann. Ég vil giftast
þér vegna min. Sérðu að það vitlausasta
er að ég lét þig fá giftingarhringinn til
baka vegna þess að ég elska þigl"
Tara kom ekki upp nokkru orði en
augu hennar Ijóstruðu upp ástriðu
hennar til Smiths. Siðan kyssti hann
hana og hún þrýsti sér að honum. Hann
fjarlægði hægt spennurnar úr hári
hennar og jarpir lokkarnir féllu á
axlirnar. Tara lokaði augunum þegar
hann hneppti frá kjólnum, fingur hans
struku varfærnislega yfir brjóst
hennar. . . .
Þau lágu í faðmlögum eftir að
ástríðan var gengin yfir og Tara velti þvi
fyrir sér hvort hún hefði nokkurn tima
verið þráð svona heitt. Jeff brosti og tók
varfærnislega rakt hárið frá andliti
hennar. „Tara,” hvíslaði hann, ,,ég elska
þig. Égelska þigsvontikið"
Hún leit á hann og brosti. „Ég elska
þig líka, Jeff," svaraði hún.
Eftir á, þegar þau gengu að kofanum
gegnum hálfsofandi borgina. hélt Smith
Töru þétt að sér. Fyrir utan kofann tók
hann um hendur hennar. „Tara, segðu
mér ekki hvað þú hefur ákveðið núna.
Hugsaðu þig um i nokkra daga. Og það
skiptir ekki máli hvert svar þitt verður.
ég mun skilja. Ég bið bara, ó guð minn
hvað ég bið að þú segir já."
Tara vissi að hún gæti ekki gifst
Smith. Hún elskaði hann. Hún treysti
honum. Hann hafði gefið henni eitl
mjög mikilvægt, trúna á sjálfa sig.
En hvað gerðist ef Daníel kænti aftur
einn góðan veðurdag? Þá, jafnvel þó
lögin hefðu álitið hann látinn af
mistökum. vissi hún að hún myndi vilja
vera með honum aftur.
Dapurleikinn iþyngdi henni þegar
hún nálgaðist hægt Ostrustofuna.
Hjarta hennar sló ört. hún andaði djúpt
og ætlaði að opna dyrnar þegar menn
Sniiths, þeir Mort og séra Bowers, flýttu
sér úl.
„Afsakaðu." sagði Bowers. „Við
eigum i vandræðum.” Hann hljóp á
brott með hinum.
Tara gerði sér grein fyrir að |x;ir voru
allir vopnaðir byssum. „Hvað er á
seyði?"spurði hún barþjóninn.
„Vandræði við höfnina,” sagði hann.
„Reid kallaði stjórann út."
Tara hljóp I áttina að ströndinni.
Þegar hún tróð sér gegnum mann-
þröngina sá hún Smith og Reid standa
hvorn andspænis öðrum. Smith miðaði
riffli á Reid, fingur hans hvíldu létt á
gikknum. Reid stóð nokkra metra i
burtu. fingur hans nálægt byssunni.
„Jeff! Ekki!" Tara öskraði um leið og
hún náði andanum. Augu Smiths voru
enn stöðugá Reid.
Mannfjöldinn þagnaði.
Reid tók skref i áttina aðSmith.
„Þcssu er lokið." kallaði hann. „Við
höfum fengið nóg af þér og mönnum
þínum. Þú færð tólf klukkutima til að
koma þér burt."
„Þú ert allt i einu orðinn kjarkmikill.
Frank.” æsti Smith hann.
Það voru aðeins eitt eða tvö skref á
milli mannanna núna, augu þeirra voru
starandi. Síðan, af ásettu ráði. greip Reid
um byssuhlaupið á riffli Smiths með
vinstri hendinni og reyndi að ýta
honum. í hægri hendinni hélt hann á
sexhleypunni sinni.
„Láttu mig ekki drepa þig," aðvaraði
Smith hann og lét sem hann tæki ekki
eftir byssunni sem var rétt við bringu
hans.
Tara, sem var sem lömuð af skelf-
ingu. sá að Reid tók þétt um gikkinn.
Siðan heyrðist klikk, rúllettan snerist en
það kom ekkert skot.
„Þetta var leiöinlegt." sagði Smith
seinmæltur og hann deplaði ekki einu
sinni auga. Hann rykkti byssuhlaupinu
upp á rifflinum sinum og skaut. Reid
riðaði. andlit lians var afmyndað af
kvölum. siðan féll hann.
Smith stóð og horfði niður á Reid.
andlit lians var svipbrigðalaust. Hann
sneri sér frá þegar rödd kallaði:
„Smith!"
Maður stóð fyrir framan mannþröng-
ina og sneri baki í Töru.
„Hvað viltu, herra minn?” hrópaði
Smith og horfði á hann.
„Þig.” Rödd mannsins var lág. Smith
horfði á hann með áhuga. kinkaði siðan
kolli. „Það passar."
Tara starði á andlit Smiths. Hana
langaði til að öskra en röddin brást
henni.
Byssumaðurinn náði i byssuna sína
unr leiðog Smith lyfti Winchester rifflin-
um aftur upp. En byssumaðurinn skaut
fyrst.
Smith skjögraði en gat ýtt á gikkinn.
Byssumaðurinn féll nteð andlitið niður.
Smith féll á hnén og blóðið fossaði úr
bringunni á honum.
Tara öskraði og hljóp til að vefja
Smitli örmum. „Jeff! Jeff!" kveinaði hún
viti sinu fjær.
Menn Smiths tóku hann upp og báru
hann gegnum mannþröngina. Tara náði
þeim og greip um kalda hönd Smiths.
Hver hrinti öðrum til að sjá fölt andlit
hans. Hann andaði mjög ört.
„Þú verður að lifa.” hvislaði Tara á
leiðinni að Ostrustofunni. Læknir var
þegar kominn.
Mort og Bowers lögðu Smith varlega
á bekk i skrifstofu hans. Læknirinn
beygði sig yfir hann og Tara horfði
kvíðafull á. „Hann er lifandi,” tilkynnti
læknirinn. „En hann lifir ekki lengi."
Það heyrðist brothljóð niðri. Dyrnar
opnuðust næstum strax á eftir. bar-
þjónninn kom þjótandi inn og kallaði:
„Skríllinn heyrði að stjórinn væri dáinn.
Við verðum að koma okkur út áður en
þeir hengja okkur öll."
Byssur voru tilbúnar, mennirnir hlupu
út og skildu Töru eina eftir hjá Smith.
Tara féll á hnén við hliðina á Smith og
leitaði að lifsneista i teknu andlitinu.
Augu hans voru gljáandi en hann
horfði ákveðinn á hana og brosti. „Mér
þykir leitt að hafa látið þig þiða,” sagði
hann. „Ég hélt að ég gæti lokið þessum
viðskiptum fyrr. Hvað er klukkan?"
„Það er nægur tími," sagði Tara
vingjarnlega og strauk rakt enni hans.
Hann horfði á hana löngunarfullum
augum. „Þú veist hvað ég vil vita. . . ”
Andlit hans afmyndaðist af kvölum, en
hann beit á jaxlinn.
„Ég elska þig. Jeff," sagði Tara með
kökk i hálsinum og tárin runnu niður
kinnarnar.
„Viltu giftast mér?" hvislaði hann.
„Auðvitað.”
Hann andvarpaði. Það leit út fyrir að
honum het'ði létt mikið. „Ég þráði
ekkert i heiminum eins og þig.”
muldraði hann.
„Tara. þú ert svo falleg. Ég elska þig
svo. . . ”
Hún hélt honum þétt að sér langa
stund. Siðan kyssti hún kaldar og
liflausar varir hans. Dyrnar opnuðust
hljóðlega og Bowers gekk inn. Hann
stóð kyrr augnablik og leit á likama
Smiths.
„Hann sagði að þú værir eina konan
sem hann hefði nokkurn tima borið
virðingu fyrir. nokkurn tima treyst."
Hann lagði hönd á öxl Töru. „Hann lét
mig lofa þvi að ef eitthvað kænii fyrir
hann ætti ég að sjá um að þér liði vel.
Þetta er það minnsta sem ég gct gert
fyrir hann. Núna verður þú að forðast
að vera á götunum. Ég skal bóka ferð
fyrir þig og barnið til Frisco." Tara
kinkaði kolli. „Við munum jarða hann i
kyrrþey. svo það dragi ekki of mikla
athygli að þér. Þeir munu ekki leita að
mér — þar sem ég er klerkur. Ég er
öruggur.”
Þessa nótt var eins og skrattinn væri
laus þegar blóðþyrstir. háværir borgarar
söfnuðust saman vegna morðanna.
Menn Smiths flúðu þegar Ostrustofan
var brennd.
Rugluð og harmi siegin sat Tara i
42 Vikan 7. tbl.