Vikan - 14.02.1980, Page 63
Vel þekktur matarjónas?
Kæra Vika!
Nú hef égfylgst meö gœöaprófun Jónasar Kristjánssonar
á veitingastööum borgarinnar undanfarnar vikur og þótt
ýmislegt sé þar athyglisvert hefur lœðst ad mér sá grunur
aö ekki sé ad öllu leyti ad marka þessa prófun. Erlendis fer
hún oftast fram þannig aö prófdómarar koma óforvarandis
og óþekktir á veitingastaö og þeir fá nákvæmlega sömu
þjónustu og allir aörir. Á reynslu sinni gera þeir skýrslu
sína og gefa stadnum einkunn. Hér á landi er ekki hægt aö
hugsa sér þekktari mann á þessu sviöi en Jónas Kristjáns-
son og veit ég að veitingamenn rjúka upp til handa og fóta
er hann birtist og fœr hann betri þjónustu en flestir aörir.
Sjálfur hef ég mun verri reynslu af mörgum þessara
veitingastaöa og mörgum þessara rétta en Jónas. Hef ég
ekki eitthvaö til míns máls?
Sælkeri S. Sælkerason
Það er þetta með mannfæðina og smæðina. Það kann
auðvitað að vera að veitingamenn hlaupi upp til handa og
fóta þegar þeir sjá Jónas birtast — en það er nú einu sinni svo
að Jónas er okkar hæfasti maður í þessum fræðum og ekki
getur hann fjarstýrt smökkun á réttum þessum.
Það mætti líka hafa í huga að þegar Jónas mætir á staðina,
án þess að gera boð á undan sér, er erfitt fyrir veitingamenn
að fara að gera einhverjar sérstakar ráðstafanir til þess að
tryggja að allt falli honum í geð.
Við verðum bara að treysta því að veitingamenn fari ekki í
manngreinarálH og veiti öllum gestum sínum og þjóni til
borðs eins og þeir væru að stjana við Jónas Kristjánsson.
Ingibjörg Ólafsdóttir, Aðalítötu 8, 580
SÍKlufirði, os Steinunn Marteinsdóttir,
Aðalsötu 9, 580 Siglufirði, óska eftir
pennavinum á aldrinum 14-15 ára
Ibæði strákum og stelpum). Þær eru
sjálfar 14 ára. Áhugamál eru marg-
visleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Art Prusener, 109 Baldwin, VVaukegan
IL, USA 60085, er 26 ára gamall og
hefur áhuga á að komast í bréfasamband
við íslenskt kvenfólk. Áhugamál hans
eru ferðalög, iþróttir. skiði og tónlist.
Jack Van Riper, Box 1365, Meadville,
Pa. 16335 USA; er 23 ára og hefur
áhuga á að eignast íslenska pennavini.
Áhugamál hans eru íþróttir, ferðalög,
diskótónlist og tengsl við fólk af öðrum
þjóðernum.
Helga Jónsdóttir, Hraunbæ 62, 110
Reykjavík, óskar eftir að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 12-14 ára.
Hún er sjálf 12 ára. Mynd fylgi fyrsta
Þréfi ef hægter.
Jóna Rakel Jónsdóttir, Hllðarvejíi 42,
400 Ísafirði, óskar eftir að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 13-15 ára.
Áhugamál hennar eru margvísleg og
hún óskar eftir þvi að mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Brynja Baldursdóttir, Grænukinn 21,
220 Hafnarfirði, óskar eftir að komast i
bréfasamband við stráka og stelpur á
aldrinum 12-14 ára. Hún er 13 ára.
Áhugamái eru tónlist, skiði og margt
fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Alvilda Magnúsdóttir, Arnarholti,
Kjalarnesi, 275 Kléberg, óskar eftir að
komast í bréfasamband við stráka á
aldrinum 16-18 ára. Hún er sjálf 16 ára.
Áhugamál eru fótbolti, tónlist. böll og
margt fleira.
Ingibjörg Linda Kristmundsdóttir,
Hraunbæ 64, 110 Reykjavík, óskareftir
að skrifast á við stelpur á aldrinum 12-13
ára. Hún er sjálf 12 ára. Áhugamál eru
dans, fimleikar og margt fleira. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Þóra S. Gunnarsdóttir, Bröttukinn 16,
220 Hafnarfirði, óskar eftir að skrifast á
við stelpur og stráka á aldrinum 12-14
ára. Hún er sjálf 13 ára. Áhugamál eru
músik. skiði og fleira. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Þetta stendur
sko í spánni
IJæ Póstur!
Ég á við svo stórt vandamál
að stríða að ég er hætt að geta
sofið á næturnar.
Ég er búin að vera með strák
nokkuð lengi og mér finnst við
mjögánœgð, þó að við rífumst
náttúrlega við og við. Það
verður alltaf gott aftur. En um
daginn las ég I stjörnuspá í
erlendu blaði hvernig öll
merkin passa saman innbyrðis.
Og samkvæmt því eigum við
tvö að passa alveg hroðalega
saman. Ég á að vera undanláts-
söm og hann á að troða á mér
og fara á bak við mig og af því
að ég sé það sem ég vil sjá, þá
loka ég augunum fyrir göllum
hans (þetta stendur sko í
spánni). Svo stóð margt feira
sem ég hef aldrei hugsað út í.
Og núna fumst mér þetta alveg
geta verið svona, að hann sé að
fara á bak við mig og allt þaö.
Og mig langar til að halda að
þetta sé bara ímyndun í mér af
því að ég las spána, en samt
get ég ekki verið viss. Mig
langar svo til að spyrja þig,
kæri Póstur, hvort þú vitir
eitthvað um þessar stjörnuspár.
Er þetta bara vitleysa sem
einhver býr til eða er til fólk
sem getur lesið úr stjörnunum
hvernig fólk er?
Með von um svar áður en ég
verð vitlaus.
Ein sem vill ekki trúa.
Það er harla lítið sem Pósturinn
veit um stjörnuspár en hann
telur sér þó óhætt að fullyrða að
stjörnuspár séu ekki neinn Stóri-
dómur og því þýðingarmikið að
trúa þar ekki hverju orði og því
síður að haga lífinu samkvæmt
því sem þar stendur. Stjörnuspár
eru fyrst og fremst skemmtilegur
leikur, ætlaður til dægrastytting-
ar og varhugavert að taka slíkt
alveg bókstaflega. Það er lang-
sennilegast að þessi blaðagrein
hafi haft mjög óæskileg áhrif á
þig andlega og brengli allt mat þitt
á þessum vini þínum. Af því leiðir
að þú ímyndar þér hluti sem alls
ekki eru raunverulegir og telur
sjálfri þér trú um að slæmar hvatir
liggi að baki öllum
athöfnum. ímyndanir þínar geta
haft rnjög slæm og eyðileggjandi
áhrif á samband ykkar og jafn-
vel gengið af því dauðu fljótlega.
Og satt að segja finnst Póstinum
heldur lítið traustið sem þú berð
til drengsins, ef þú trúir betur
einhverju lesefni í erlendu blaði
en þínum eigin augurn og
eyrum.
sA7ö
V.
■^V/ESTI * * * * *
ÚR WATTEFNI **•*»*
LITIR: Rautt — blátt — grænt
STÆRÐIR: Small - medium — large
VERÐ: 9.995
*HERRASKÍÐAGALLAR*
Stæröir 48-50 * VERÐ 29.900
ÚLPUR Í MIKLU ÚRVALI
VERÐ FRÁ KR.: 5.995
POSTSIMI
30980
7- tbl. Vikan 63