Vikan - 13.03.1980, Qupperneq 52
Eldhús Vikunnar og Klúbbur matreiöslumeistara
Það sem til þarf:
1 laukur
1/8 hluti hvítkálshöfuð
(140 g)
1/4 úr seliurót
2 gulrætur
1/4 græn paprika
1 beikonsneið
5 kokkteilpylsur
matarolía
1 púrrulaukur
1/2 rauðrófa
3 msk. tómatmauk
1-2 lárviðarlauf
150 g nautakjöt
1 msk. sykur
sýrður rjómi
salt
4 msk. rauðrófusafi
1 3/4 I vatn eða nauta-
kjötssoð
Eigið þið ekki einhverjar skemmtilegar uppskriftir i fórum ykkar? Félagar í Klúbbi matreiðslumeistara eru
sífeilt á höttunum eftir nýjungum og þvi ekki að senda okkur uppskriftir að uppáhaldsréttum ykkar, sem
þeir munu síðan matreiða og sýna hér i þættinum! Sendið okkur uppskriftirnar i bréfi merktu: Klúbbur
matreiðslumeistara, Vikan, Síðumúla 23, Reykjavik. Og munið að setja nafn ykkar og heimilisfang með
og gaman væri að fá linu um það hvaðan rétturinn er upprunninn. Kær kveðja, ritstj.
52 Vikan II. tbl.
1 Hráefni.
LESENDUR!
2 Laukur, hvítkál, seljurót,
gulrætur, púrrulaukur og
rauðrófur er skorið í strimla.
3 Kraumað í mataroliu i potti.
Tómatmauki, lárviðarlaufi,
papriku, nautakjöti, beikoni,
sykri og salti bætt út í ásamt
vatni eða nautakjötssoðinu. Látið
sjóða uns kjötiö er meyrt.
Matreiðslumeistari:
Vigfús Árnason
Ljósm.:
Jim Smart
RÚSSNESK
KJÚT 0G
GRÆNMETIS
SÚPA
4 Kjötið er tekið upp úr og skorið í
strimla. Látið aftur i súpuna
ásamt pylsunum. Bragðbætt með
rauðrófusafa og borið fram með
sýrðum rjóma.