Vikan - 14.08.1980, Page 6
í London árið 1888
JACK
THE
RIPPER
skaut mönnum skelk í bringu
Fimm morð á einu sumri
Fimm smnum rölti hartn út i dimma
L.undtinahorg og jafnoft gaf liann sig á
tal við kontir i hliðarstrætum. Allar létu
þær lífið á sama hátt. handbragðið var
þaö sama. Jack the Ripper hafði komið
sér upp vörumerki.
Fjöldinn allur af leynilögreglu
mönnum. visindamönnum og svo hinn
almenni borgari höfðu skoðanir á þvi
hver þessi voðalegi maður væri en í dag
er rnálið jafnóupplýst og það var dagana
sem morðin voru framin. Siðan eru 92
ár.
Á Viktoriutímanum var austurhiuti
L.undúnarborgar ekki besti bæjarhlutinn
i Englandi. Litil húsin slóðu i röð með-
fram skítugum götunum. Þegar dimma
tók var hvergi Ijós að sjá nema innan
dyra. allar hliðargötur. port og bak-
garðar voru koldimm. Húsnæði var af
skornum skammli. allt of margt fólk
hirðist i of litlum vistarverum þar sem
hver og einn þurfti að berjast fyrir oln
bogarými. Þeir sem ekki héldu sig innan
dyra flæktust um strælin og glæpir voru
daglegt brauð. Margar konur sáu sig
tilneyddar að stunda vændi til að hafa i
sig og á- og helsta huggun ibúanna i
þessu hverfi var i liki ginflösku sem
kaupa mátti fyrir nokkur penny. Vorið
1888 lét Jack the Ripper til sin taka i
þessu borgarhverfi og i kjölfarið fylgdi
óttiogskelfing.
Hann hafði komist
aftan að henni, gripið
fyrir vit hennar og
skorið hana á háls.
Mary Ann Nicholls var komin af
besta skeiði. Hún var ekki lengur eftír
sótt af þeini karlmönnum sem kaupa
blíðu kvenna fyrir aura. Hún var ekki
lengur samkeppnisfær og hafði þvi engin
töká því að hækka verðið fyrir nóttina
sem var þó ekki nema 4 penny en það
skipti ekki öllu máli, því allir peningar
sem benni áskotnuðust fóru beint í
ginið. Þegar menn nálguðust Mary i
dimmum strætunum vakti ekkert annað
fyrir henni en að verða sér úti um nætur
stað og skikkanlegan svefn á betri stað
en síðast. Þegar þessi ókunnugi maður
dró hana inn i hliðarsund fann hún ekki
fyrir neinni hræðslu. Það var fjöldinn
allur af fólki á götunum aðeins i
nokkurra metra fjarlægð.
Þegar henni loks varð Ijóst að ekki
væri allt með felldu var það því miður of
seint. Jack the Ripper hafði komist aftan
að henni. gripið fyrir vit hennar og
skorið hana á háls. Hún fannst hræði-
lega á sig komin föstudagsmorguninn
31. ágúst 1888. Illvirkinn var aftur á
móti á bak og burt.
Hann lét nákvæmlega 7 daga líða og
þá hélt hann áfram leik sinum. Sem fyrr
var fórnarlambið gleðikona, en það voru
þau reyndar öll. Annie C'hapman. 47
ára. fannst i bakgarði, öll sundurskorin.
handbragðið var auðþekkjanlegt.
Nokkrir aurar sem hún hafði verið með
á sér svo og hringir hennar lágu snyrti-
lega uppraðaðir við fætur hennar en
likaminn var hræðilega útleikinn.
Skelfing greip um sig í borginni og
margar sögur voru á kreiki um hver
morðinginn gæti verið. Ein sagan var á
þá leiö að Jack the Ripper bæri hnif sinn
i litilli svartri skjóðu og þannig mætti
þekkja hann og varast. Urðu uppþot þar
sem sást til slikra manna og áttu þeir
fótum sínum fjör að launa. Fólk bast
samtökum gegn þessum vágesti og
lögreglan handtók tugi grunaðra.
En Jack the Ripper skildi ekki eftir sig
neina slóð. Læknar og lögreglumenn
höfðu komist að þeirri sameiginlegu
niAirstóðu að likast til væri maðurinn
örvhentur og hefðí nuniið læknisfræði i
einhverjum mæli. „Morðin eru ákaflega
snyrtilega og fagmannlega framin."
sagði læknir sem með rannsókn málsins
hafði að gera. „þetta er engin
viðvaningur."
Nóttina 30. september drap Jack tvær
konur og lét í leiðinni eftir sig einu vis
bendinguna sem frani kom i máli þessu.
Lis Stride fannst meðan blóðið lak enn
úr hálsi hennar og Kate Eddowes. sem
fékk verstu útreiðina al' öllum finnn
fórnarlömbunum. lá þar örskammt frá i
andarslitrunum. Frá liki hennar mátti
rekja blóðuga slóð heim að húsi einu en
á það hafði verið krotað með krit: —
Ekki er rétt að kenna gyðingum um allt
sem aflaga fer. — Átti að draga þá
ályktun af þessu að Jack the Ripper væri
gyðingur sem væri að hefna harma
þjóðar sinnar? Eöa var þetta brjálaður
dómari sem gerst hafði sinn eigin
böðull? Aldrei fékkst botn i þetta krot
enda lét lögregiustjórinn i hvcrfinu má ,
skriftina af nær samstundis.
Öll London stóð nú á óndinni og
sögurnar flugu á milli manna. Jack the
Ripper átti að vera brjálaður læknir.
óður Pólverji. keisarasinni frá Rússlandi
scm var að gera lögreglunni í London
6 Vtkan 33- tbl.