Vikan - 14.08.1980, Blaðsíða 18
| Vikan og Heimilisiönaðarfélag Islands
Valgerður Briem gerði uppdráttinn
að þessari veggmynd eftir rekkju-
reffli sem varðveittur er á Þjóðminja-
safninu. Reffillinn er glitsaumaður,
álitinn vera ffrá 17. öld og myndirnar
sýna hin ýmsu æviskeið Jesú Krists.
Að vefa
Hér skapar Jesús himnatungl. Þessi
mynd er númer 2 i sköpunarsögunni.
sköpunar-
söguna
Nú er baðstofulífið gamla horfið og
nýtí sambýlisform ræður rikjum. I
hugum okkar bindum við baðstofulífið
konum við rokka og vefi. börnum að leik.
með leggi og skel og körlum lesa'ndi hús-
lesturinn. Með tilkomu vélmenningar
hvarf þessi ímynd, heimilin hættu að
vera sjálfum sér nóg og fjöldaframleidd-
ar vörur voru keyptar fyrir pappirspen-
inga. Þessi nýjung. vélaraflið. gerði það
að verkum að gömlu handbrögðin hurfu
og þaðá ótrúlega skömmum tíma miðað
við útbreiðslu þeirra. En sem betur fer
hefur Heimilisiðnaðarfélagið unnið
brautryðjendastarf við að endurvekja
þessi fornu handbrögð og þeir sem lagt
hafa leið sina i verslun félagsins hafa ef
laust rekið augun í vandaða. handunna
vefnaðarvöru sem þar er á boðstólum.
Þegar félagið hélt sýningu i tilefni
Listahátíðar nú á dögunum þótti hlýða
að kynna þar sérstaklega þessa vefnaðar
vöru sem er eftir Signe Ehrngren. Eins
og nafnið bendir til er Signe sænskaett-
uð og er Vikan kom að máli við hana nú
fyrir skemmstu var fyrsta spurrtingin á
hvern hátt það atvikáðist að hún lagði
leiðsina til istands.
„í fyrsta skiptið sem ég kom hingað
var ég '26 ára sjúkraþjálfi og var á sunv
arferðalagi með systur minni. Við hrif
umst mjög af islenskri náttúru og einn
daginn. þegar við vorum á gangi í Fljóts-
hliðinni, mættum við fjölskyldu sem þar
var á ferð. Þetta voru hjónin i Háteigi.
þau Ragnheiður Pétursdóttir og Halldór
Þorsteinsson skipstjóri. ásamt dætrum
sínum. Þarna I hliðinni þennan dag
bundumst við mjög sterkum vinabönd
um sem entust alla ævi. Ég fór heim eftir
þetta sumarfri en kom siðan aftur og hef
verið hér nær óslitið síðan. Auðvitað
finn ég að rætur mínar eru í Svíþjóð en
hér hef ég þroskast og allt sem ég hef
reynt og lært er islenskt.
Ég hef búið lengst af hjá hjónunum i
Háteigi og þar sá ég I fyrsta skipti vef-
stól. Þau voru miklir unnendur fallegs
handbragðs og þar voru i heiðri hafðar
hinar upprunalegu vinnuaðferðir. Hjá
þeim lærði ég fyrstu handtökin í þessari
list og einnig að meta íslensku ullina að
verðleikum. Þar var ofið og spunnið og
bandið litað. Við ófum teppi. gardínur.
áklæði. fataefni og svo veggteppi og ann-
an myndvefnað. Þegar svo árin fóru að
færast yfir þá vantaði mig létta vinnu og
þá byrjaði samstarf mitt við Heimilisiðn-
aðarfélagið.”
í hvað sækir þú fvrirmyndir að
verkum þínum?
„Þetta eru allt ævagamlar islenskar
fyrirmyndir. Veggteppin sem ég hef ofið
eru úr Islensku teiknibókinni eftir Björn
Th. Björnsson. Þetta er mjög merkileg
bók og teikningarnar, sem eru yfirleitt
frá um 1500. eru aðgengilegar og ein-
faldar. Ég þarf ekkert að eiga við þær að
öðru leyti en þvi að raða saman þeim
litum sem mér finnst hæfa. Og I litavali
18 Vikan 33. tbl.