Vikan - 14.08.1980, Page 15
Gullkorn
úr erlendum
blöðum og
tilkynningum
hér og þar
Þetta er allt og sumt, sem ég lók t'rá fr.
Cox.
Atburðurinn er talinn hafa átt sér
stað í janúar þetta ár. Fr. Cox sagðist
hafa uppgötvað hvarf þessara hluta,
þegar hún var að leita að áttundu,
níundu og tíundu Mósebók.
Úrskýrslu lögfræðings
á Barbados
Jafnvel flóa-sirkusarnir hafa breyst með
timanum. Ég ræddi við flóaþjálfarann
Alfred Testo og hann sagði: Áður fyrr
fengum við flærnar úr sokkum lyftara-
stjóranna i stálverksmiðjunum i
Hartlepool. En nú orðið, eftir að
öll þessi sótthreinsunarefni komu á
markaðinn, verðum við að auglýsa eftir
þeim i blöðunum.
Evening Standard
Starfsferill séra Charles Brown hefur
verið alveg einstakur. Hann hóf líf sitt
átta ára aðaldri...
Úr blaði í Oxford
Starfsferill séra Charles Brown het’ur
verið alveg einstakur. Hann hóf lif sitt
átta ára aðaldri...
Úr blaði i Oxford
Fr. Bates, þekktur listrænn ljósmyndari,
hefur þegið margvíslega viðurkenningu
fyrir list sína, og árið 1956 var henni
færð rifleg máltíð að launum fyrir störf
sin.
Úr blaði IShanghai
Broken Hill, Ástralíu, fimmtudag. Allan
Charmichael, 49 ára bóndi, var í dag
sektaður hér í bæ fyrir að aka vélknúnu
ökutæki — flugvél — undir áhrifum
áfengis, eftir þjóðveginum.
W. Starchen lögregluþjónn sagði
réttinum að hann hefði séð Charmichael
fljúga Cessna-flugvél sinni svo lágt yfir
Ivanhoebæ, að hann hefði getað séð
hvernig hann var klæddur. Hann ók til
flugvallarins til að yfirheyra flug-
manninn, en á leiðinni mætti hann
Charmichael. sem enn var um borð i
flugvélinni, akandi eftir þjóðveginum.
Hann reyndi að sveigja undan, en þrátt
fyrir það rakst hægri vængbroddurinn i
lögreglubilinn. Charmichael hélt áfram
til Ivanhoe og lagði flugvélinni fyrir
utan lögreglustöðina. Hann sást hrasa
og gripa i flugvélina, þegar hann
klöngraðist út úr henni. Hr.
Charmichael sagði réttinum að hann
hefði rekist á naut þegar hann ók eftir
veginum og hann hefði farið inn i
bæinn til að tilkynna slysið. Hann var
sviptur flugleyfi i 7 daga og hlaut sekt
uppá 50 áströlsk pund.
Fréttastofufregn
Atvinna í boði: Karlkyns þjónustustúlka
óskast. Þeir sem ekki uppfylla skilyrðin
geri svo vel aðsvara ekki auglýsingunni.
A uglýsing i Dallas News
Kæri Póstur.
Þakka ágætan leiðara frá 17. mars,
um pöntun á 10 milljón Bítlaplötum,
búnum til úr karmellum. Hann leiðir
hugann að því að ætar hljómplötur eru
ekkert nýtt. Þegar árið 1903 var
samþykkt einkaleyfi nr. 1992 vegna
þess konar framleiðslu sem reyndar var
sett á markaðinn. Síðar hafa verið búnar
til súkkulaðihljómplötur. Og vissulega
þekki ég til margra hljómplatna sem ég
vildi fremur borða en spila.
Yðareinlægur,
Donald Aldous.
tæknilegur ritstjóri.
A UDIO A ND RECORD RE VIEIV.
B-hótel. Ágætt heimili fyrir gift fólk til
lengri eða skemmri tíma.
Auglýsingí blaði
i Liverpool
20 ÁRA VINÁTTA ENDAR VIÐ
ALTARIÐ I KIRKJU 1 NASHVILLE.
Úr blaði í Nashville.
Maður sem skorinn var upp í
Darlington-sjúkrahúsinu var með eftir-
talda hluti i maganum: Hey. málmbúta.
postulínsbrot, rakvélarblað, steina, nælu,
4 og 1/2 penny, fótbolta, spjald, hár-
spennu, lykil, pennahnif, vasahníf og
dóminó-spil. Maðurinn er á batavegi.
Daily Express
Veggurinn varð að vikja. Þess vegna
brutu Pierre og vinir hans hann niður.
Þeir brutu niður viðarklæðninguna. Að
lokum tókst þeim að brjóta lengsta
brauðhleif veraldar leið. Hann er 8
metrar á lengd og 58 kg.
Sex menn báru þetta ferliki — sem
var bakað vegna veðmáls — út úr kaffi
húsi Pierre Bouchera í St. Aygulf.
Suður-Frakklandi. Pierre stóð á santa
um skemmdirnar. Hann vann veðmálið
og það var allt og sumt sem máli skipti.
Daily Mirror
Gjörið svo vel að gefa Jóni leyfi úr
skólanum i dag. Faðir lians er veikur og
það þarf að fóðra svinið.
L ’r bréji til skólastjóra.
TIL SÖLU hús i Douglas. Skilntálar:
staðgreiðsla. Öllum sanngjörnum
hoðum hafnáð.
Úr hlaði i Michigan
Ég vænti þess að margir hafi áhuga á því
að sjá þessa mynd i annað sinn ef þeir
hafa verið svo óheppnir að missa af
henni í fyrsta skiptið.
Film Weekly
Bit óðra hunda eru sérstaklega hættuleg
ef þau eru í andlitið. hálsinn, hendurnar
eða einhvern annan likamshluta.
New Canaan tConnecticutl
Adverliser
Hvað. eruð þér hér i dag. hr . . . .
Lomax? Alice hnaut um þetta
torkennilega nafn. Mark rétti henni
höndina til að standa upp aftur.
Woman’s World
Charlie Smith. 54 ára gamall, ók hægt
og að þvi er virtist örugglega eftir vegi i
Oklahoma þegar lögreglan stöðvaði
hann vegna þess að hann var með hest i
aftursætinu.
Hann gat skýrt málið: „Vesalings
greyinu virtist leiðast svo þarna uppi i
sveit að mér fannst ég verða að fara með
hann í bæinn."
Ilann var kærður fyrir ölvun við
akstur og hcstaþjófnað.
Weekend
Það sem ég hef sýnt frani á með máli
minu er að það er mjög erfitt að finna
svarið við þessari spurningu. en ef ég
yrði að gefa svar við henni þá myndi ég
segja að að svo miklu leyti sem hægt er að
ræða það mál. með því að taka fyrir
litinn hluta í einu. með því að fylgja þvi
frá degi til dags og með því að taka
meðaltal af vægi þess sem fram hefur
komið i hinum ýmsu deildum. þá er
mögulegt að hvor aðili um sig hafi
nokkuðtil sins máls.
I dálknum: 'l'il umhugsunar.
í erindisbréjiJýrir opinhera slarfsmenn
Grundvallaratriðið. þegar verið cr að
undirbúa pinnamat. er að velja aðeins
þess konar mat sem tollir vel á kokkteil-
pinnum. Á veturna. þégar kalt er í veðri,
getur verið gott að bæta kjötsoði eða
tærri súpu við.
í 'r sunnudagsblaði
Maður sem ég þckki læsir
vekjaraklukkuna inni í sjúkrakassa á
hverju kvöldi (til að heyrist hærra i
henni). Til að ná lyklinum að kassantim
og stöðva klukkuna verður hann að fara
með höndina í stóra könnu meó isvatni
sem hann- fleygir lyklinum i kvóldið
áður. Á þennan hátt einan telur hann
sig öruggan að vakna á morgnana.
Tilvitnun úrSunday Graphic.
sem tekin var upp í dákinn
.. liiis Engtand"i New Statesman
33. tbl. Vikan 15