Vikan


Vikan - 14.08.1980, Page 22

Vikan - 14.08.1980, Page 22
Fjölskyldumál — Guðfinna Eydal Neysla eiturlyfja Ymiss konar eiturlyf hafa verið notuð sem vímugjafar víðsvegar um heim i aldaraðir. Ópium hefur t.d. verið notað i Egyptalandi fyrir fjögur þúsund árum og í Kina hefur ópium verið notað frá því um 1600. Hass og marihuana (cannabis) hefur verið notað í þúsundir ára í Indlandi og Kina og hefur einnig náð mikilli útbreiðslu I Asíu. Afríku. Suður- og Mið-Ameriku. Mörg vímugefandi efni hafa fyrst í stað verið notuð sem læknislyf. Á Vesturlöndum hefur t.d. verið algengt að nota ýmis eiturlyf i þeim tilgangi að deyfa sársauka, örva eða róa fólk. vinna bug á kvíða og hræðslu og hafa áhrif á svefn. Morfín, sem er unnið úr ópíum, er fiiikið notaðefni innan læknisfræðinnar. Á Islandi eins og I fjöldamörgum öðrum löndum hefuráfengi verið langal gengasti vímugjafinn. Eiturlyf hafa liins l’að er erfitt að fá fiðluleikara nú orðið. Varadekkið? Ég tók það úr til að koma nestinu fyrir. Þetta er Beggi — hann réttir úr bréfklemmum hérna! Hverjir verða eiturlyfja- neytendur? vegar aldrei náð neinni verulegri út- breiðslu á íslandi og er Island nijög t'rá- brugðið nágrannalöndunum I þvi efni. Það er að visu vitað að alltaf er eitthvert fólk sem neytir sterkra eiturlyfja en það er langt frá því að vera nokkuð í likingu við það sem yfirleitt tiðkast með öðrum þjóðum. Það er hins vegar engin ástæða til að ætla að Islendingar „féllu" ekki fyrir eiturlyfjum eins og aðrar þjóðir ef auð- veldara væri að ná í þau. En lega lands- ins hefur eflaust haft það i för með sér að erfitt hefur verið fyrir alræmda eitur- lyfjahringi að vinna sér markaði á ís- landi og einstaklingar. sem kunna að hafa eiturlyf I fórum sinum, þurfa meira og minna að sækja birgðirnar til út- landa. Það getur verið erfitt ef venja á fólk á þessi lyf svo að einhverju nemur. þar sem likaminn verður að fá efnið á stundinni ef hann hefur einu sinni verið vaninn á það. Hverjir verða eiturlyfjaneytendur? Margt fólk prófar eiturlyf einu sinni og síðan ekki söguna meir. Margt ungt fólk, sem býðst eiturlyf, neitar þeim strax og reynir aldrei efnið enda þótt völ liafi verið á því. Fámennur hópur rnanna sem prófar eiturlyf verður þeim hins vegar að bráð og verður eiturlyfja- neytendur. Menn hafa velt því fyrir sér hvers vegna sumir verða eiturlyfjaneyt- endur og aðrir ekki. Þeir sem vinna að eiturlyfjamálum og með eiturlyfjaneyt- endur telja mjög mikilvægt að reyna að komast að orsökunum fyrir því að suntir verða eiturlyfjum að bráð og aðrir ekki. ef liægt er að finna einhverjar af þessum orsökum eru meiri möguleikar á að hægt sé að reyna að varna þvi að fólk verði eiturlyfjaneytendur og það vilja margar þjóðir gera, bæði til þess að konia í veg fyrir mannlegar hörmungar og spara þær geysiháu upphæðir sem fara I að reyna að koma þessu fólki á réttan kjöl aftur, oft með litlum árangri. Yfirvöld félagsmála í Sviþjóð hafa gefið út litla bók sem nefnist Staðreyndir um eiturlyf og misnotkun eiturlyfja. 1 henni er m.a. að finna ýmsar niður- stöður rannsókna á bakgrunni eiturlyfja- nevtenda. Það sem er sameiginlegt fyrir eiturlyfjaneytendur og þá sem hafa til- hneigingu til að falla fyrir eiturlyfjum er að aðstæður þeirra og uppvöxtur hefur verið slæmur áður en þeir falla fyrir eiturlyfjunum. í sænska bæklingnum má finna nokkur atriði sem greina eiturlyfjaneyt- endur frá öðrum. Nokkur þeirra eru: 1) Hjónaband foreldra þeirra hefur ver- ið óhamingjusamt eða foreldrarnir skilið. 2) Margir hafa alist upp hjá öðrum en kynforeldrum. 31 Drykkjusýki, geðveila og sjálfsmorð eru ekki óalgeng hjá systkinum. for- eldrum eða öðrurn ættingjum eitur- lyfjasjúklinga. 4) Margir eiturlyfjaneytendur hafa sjálfir átt við geðræn vandkvæði að striða, verið þunglyndir og reynt að fremja sjálfsmorð. 5) Margir hafa gerst brotlegir við lög og verið i tengslum við barnaverndar- nefnd og lögreglu. 6) Ýmiss konar einkenni geðræns eðlis hafa komið i Ijós þegar i bernsku, eins og árásargirni i rikum mæli. mikið eirðarleysi, stam. börn væta rúm o.fl. o.fl. 71 Margir eiturlyfjaneytendur hafa nijög óreglulega skólagöngu, hætta snemma í skóla. fá slæmar einkunn- ir. Einnig vantar marga starfsmennt- un og þeir hafa verið mjög óstöðugir við vinnu og oft á tíðum ekkert unn- ið. Þessi atriði gefa augljóslega til kynna að eiturlyfjaneytendur hafa erfiðari bak- grunn en gengur og gerist um fólk. Flótta þessa fólks til eiturlyfja er því oft hægt að líta á sem afleiðingu sálrænna og félagslegra érfiðleika sem viðkomandi er að reyna að vinna bugá. Að vinna bug á eiturlyfja- vandamálinu Margar þjóðir veita miklu fé til þess að koma í veg fyrir misnotkun eiturlyfja. í þessu sambandi hefur fræðsla og ýmiss konar upplýsingastarfsemi verið mikið notuð. Upplýsingastarfsemin hefur m.a. miðaðað því: al að auka þekkingu á eiturlyfjavanda- málum. b) að hafa áhrif á almenningsálit gagn- varteiturlyfjum. c) að hafa áhrif á framferði fólks gagn- varteiturlyfjaneyslu. Í þessu sambandi er álitið mikilvægt að sýna fram á að það eru tengsl á milli 22 Vikan 33. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.