Vikan - 14.08.1980, Síða 38
Fimm mínútur með Willy Breinholst f/Onöj u .■*«»•»*r lJ 1
m m m m
Voðalegi
vinstrisinninn
Boris var mjög virkur i vinstri-
hreyfingunni. Þegar mótmæla
átti við bandariska sendiráðið
mætti Boris með banana,
skemmda tómata og teygjubyssu í
rassvasanum. Ef mótmæla átti við
rússneska sendiráðið þá var Boris
þar líka ekki verr
vopnaður. í mótmælagöngum
mátti ganga að því sem vísu aö
Boris var þar einhvers staðar í
fremstu röð. i uppþotum i
háskólanum æpti Boris mest og
hæst, þegar safna átti undir-
skriftum var Boris fyrstur til að
skrifa undir og hljóp síðan með
plöggin út og suður og ef mála
átti slagorð á opinberar bygging-
ar þá var Boris ekki seinn á
staðinn með rauða málningardós
og sinn eigin pensil. Boris lét sig
aldrei vanta og gott eitt um það
að segja. En svo gerðist það að
hann varð skotinn i einni stelp-
unni á stúdentagarðinum þar
sem hann hélt til. Eins og gerist
og gengur eignuðust þau lítinn
snáða og þegar hann fór að
hrína of hátt fóru þau að leita
sér að stærri íbúð. Boris þeyttist
á milli opinberra húsamiðlara en
með litlum árangri. Eitthvað
varð að gera. Ef hann átti að
gera sér einhverja von um að fá
húsnæði yröi hann að ganga
hreint til verks. beita öðrurn
aðferðum en hingað til höt’ðu
tíðkast, gera eitthvað nógu
róttækt þannig að eftir yrði
tekið, komast á forsíður
blaðanna nokkra daga í röð —
þá væri von til að augu yfirvalda
opnuðust og þau gerðu sér grein
fyrir hinni hrikalegu húsnæðis-
eklu í borginni. Hann fann
ráðið: 30 daga hungurverkfail
efst upp á flaggstönginni á
Ráðhústorginu!
Næstu nótt læddist Boris í
skjóli myrkurs að flaggstönginni
á torginu. Hann prílaði alla
leið upp og kom sér eins vel fyrir
á endanum og ntögulegt var.
Strax og fólk fór að streyma til
vinnu morguninn eftir varð
umferðarteppa allt í kringum
Ráðhústorgið. Það fór ekki á
milli mála — efst upp á flagg-
stönginni sat síðhærður maður
og hélt á borða sent á stóð:
Húsnœdi er mannréttindi! —
Nidur meö stjórnina!
Ljósmyndarar. blaðamenn og
lögregla höfðu nóg að gera
þennan daginn.
— Eigum við ekki að fella
stöngina? spurði yfirlögreglu-
þjónninn.
— Engan æsing, svaraði
lögreglustjórinn.
— Eigum við ekki að kalla á
slökkviliðið og fá stóra stigann
hjá þeim? hélt yfirlögreglu-
þjónninn áfram.
— Engan æsing.
— Hvað eigum við þá að
gera? Það t'lokkast undir
skemmdarverk að fara svona
með nýmálaða stöngina!
— Látum hann bara sitja
þarna eins lengi og hann vill.
Ætli hann verði ekki aumur í
rassinum nógu snemma og þá
kemur hann niður af sjálfs-
dáðum.
Hanri var látinn sitja áfram óg
næsta morgun var hann þar enn
og eina breytingin sú að hann
var kominn með nýjan borða
sem blakti rólega í morgun-
golunni:
llnilurinn 21.mars 20.;i »ril \;iuli<> 2l. .]iril 2l.ni;ii
l iihumrnir 22.m;ii 2l. juni
hr hhinn 22. júni 2.3. juh
I.jonið 24. júli 24. (
Mfj j;in 24.;i|*lisl 2.Vstpt
Ef þú ert ekki þegar bú-
inn að fara i ærlega ferð
i sumar. þá skaltu tlrifa i
því uni helgina. Ef þú
ferð með opnum huga
og staðráðinn I að
skemmta þér. þá máttu
búast við góðri helgi.
Vandamál, sem hefur
verið að bögglast fyrir
þér leysist óvænt. Láttu
ekki meðfædda bölsýni
villa þér sýn. Nú er
kjörið tækifæri til að
hressa upp á gömul
kynni.
Þetta verður óvenju
rómantisk vika. Ef þú
verður ekki að atast I
allt of mörgu, máttu bú
ast við að þessi vika líði
þér seint úr minni.
Gleymdu samt ekki lof-
orði sem þú gafst
snemrna í sumar.
Verkefnin hlaðast upp.
en gefðu þinum nánustu
santt tíma. Þú ert hress
nútia og alveg aflögufær
um gott skap. Það er
ekki vist aðaðrir í kring-
um þig séu eins hressir.
Nú þarftu sannarlega á
öllum þinum hugmynd-
um að halda. Hikaðu
ekki við að konta þeint
á frantfæri, það má bú
ast við því að eyr.u sem
oft eru dauf, hlusti nú.
Glevmdu samt ekki ást-
inni.
Ef þú færð skilaboð í
þessari viku. skaltu taka
þeim með varúð. Hins
vegar er þér óhætt að
treysta vinum þínuni
og reyndar er líklegt að
einhver vinur geti orðið
þér að liði.
Efnhver spurning hefur
veriðað brjótast i koll
inum á þér. Nú cr rétti
tíminn til að leita svara.
Það getur verið að þú
þurfir að skreppa eitt-
hvað en reyndJ að vera
fljótur, ýmislegf biður
þiri heima fyrir.
Samband þitt við þína
nánustu hefur verið gott
að undanförnu. Það er
mikilvægt að halda þvi
góðu. þvi nú reynir a uð
þú látir ekki und?M
sýni sem á
H<M*ni;iðiirinn 24.nói. 2l.úc\
Ef þér verður boðið eitt-
hvað nýstárlegt. skaltu
ekki hika við að þiggja
það. Hins vegar skaltu
taka öllu með varúð og
t ’.ina ekki að neinu, sem
■fur alvarlegar fjár-
a isskuldbindingar I för
,eð sér.
Slcmijeilin 22.dcs. 20. jan.
Þú verður var við að
einhverjum þykir veru-
lega vænt um þig i þess-
ari viku. Litilsvirtu ekki
þær tilfinningar, þótt þú
getir ekki endurgoldið
þær. Og slepptu ekki
tækifæri til að gleðja
aðra.
Valnshcrinn 2l.jan. I‘).fchr.
Lukkan sem var yfir þér
i seinustu viku er alls
ekki horfin. En mundu
að þú verður að leggja
eitthvað af mörkurn. Þú
getur verið að sigla inn í
skemmtilegt tímabil, ef
þú ert jákvæður.
Fiskarnir 20.fchr. 2().mars
Sólin skin á þig. i
óeiginlegri merkingu
alla vega. Samt sem
áður eru blikur á lofti.
láttu ekki óánægjuna ná
tökum á þér, er nokkur
ástæða til? Þú tekur
mikilvæga ákvörðun!
38 Vlkan 33. tÞ'