Vikan - 28.08.1980, Blaðsíða 12
Laxveiöihættir
Ásmundsson bóndi að Svarfhóli var nú
sóttur. Fóru þeir Ólafur síðan saman að
hitta sýslumann, Sigurð Þórðarson.
Engir kærleikar voru með Birni og sýslu-
manni. En Sigurður tók þeim félögum
vel og bauðst til að koma í veg fyrir
gjaldþrot Ólafs: „Ef þér fáið menn, þá
skal ég lána yður fyrir fjósi og hlöðu."
★ ★
Brúin yfir Hvítá var byggð árið 1928
og gekk smíðin vonum framar og vígði
Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra
brúna i nóvember það ár. Áætlað hafði
verið að verja 190 þúsund krónum til
brúarsmíðinnar, en 180 þúsund dugðu.
Fullgerð var Hvitárbrúin stærsta og
myndarlegasta mannvirki, sem sést
hafði í Borgarfirði.
Verkfærin við brúargerðina voru
hestvagnar og handverkfæri, þ.e.a.s.
hakar og skóflur. Til að sprengja úr
klettunum vegna vegagerðarinnar voru
boraðar allt að 3 metra djúpar holur
með handborum. Hannes Ólafsson vann
um haustið við að skerpa borana.
Líklega hefur enginn maður á Íslandi
dregið jafnmarga laxa úr ferskvatni og
Hannes Ólafsson. Hann hefur ekki tekið
saman tölur um þennan fjölda, en giskar
á að 60-70 þúsund laxar hafi farið um
hendur sér.
Versta veiðiárið sem Hannes hefur
upplifað var einmitt árið 1928, þegar
brúarsmiðin stóð sem hæst. Hvílá var
blá og tær allt sumarið frá apríl og fram i
september. Áin var kolllitil, og var
það reyndar ein af ástæðunum fyrir því
hve brúarsmíðin gekk vel.
Árið 1928 var enn við lýði lengri
veiðivika en nú er heimiluð. Samt sem
áður veiddust einungis 302 laxar i net á
Hvítárvöllum og 186 laxar í Ferjukoti
hínum megin við ána. Mesti fjöldi sem
Rafn Ásgeirsson, bóndi að Svarfhóli, leggur inn lax hjá Ásu og Hannesi.
Prammi Rafns er smiflaður úr vatnsþéttum krossviði og er mjög hrað-
skreiður.
lzVikan35.tbl.