Vikan


Vikan - 28.08.1980, Side 42

Vikan - 28.08.1980, Side 42
Framhaldssaga Þannig voru bæklaöir. vangefnir. þroskaheftir. lamaðir og svo framvegis reknir'inn í þessar morð verksmiðjur, klætldir úr hverri spjör, færðir i mussu úr pappir og drepnir með gasi frá út blástursrörum risavaxinna bensínvéla. Þessi gas morð hófust einhvern tima 1938 og héldu áfram um nokkurra ára skeið. Þau fóru ákaflega leynt, en fréttir um þau láku út. Á vissan hátt voru þau æfing fyrir það sem siðar varð hátturinn á við útrýmingugyðinga og annarra fá- einum árum siðar.' Við ranns<)knir mínar komst ég að þvi að þegar slaðfesting fékkst á morðunum á þessu „gagnslausa" fólki og spurðist til Vatikansins voru harðorð mótmæli send til Berlínar. Mótmælendur tóku sömuleiðis undir þau. Fávitar, mongólítar, vanskapningar, voru lika börn Guðs, sögðu klerkarnir. Og þannig hættu þessar „svæfingar” smám saman. En áætlanirnar voru aldrei lagðar alveg á hilluna. Þegar gyðingar voru drepnir meðgasi milljónum saman mótmælti klerka- stéttin engu. Ekki einu orði. Nenia fá- einir hugaðir menn. Það má telja þá á fingrum annarrar handar. Ég finn að ég verð að skrifa um þessi mál jafnkalt og yfirvegað og mér er unnt. Ef til vill er það til að komasl hjá því að gráta ævilangt morðið á ástkærri systur minni. Dagbók Eiríks Dorfs Berlín í nóvember 1940. Ég fékk nafnlaust símtal á skrifstofu mina í gær þar sem sagt var að viss prestur væri að halda ræður sem beindust gegn kynþáttastefnu okkar. Maðurinn heitir Bernard Lichtenberg og hann er prófastur St. Hedwig dóm kirkjunnar. Þetta er ósjálegur grá- hærður naggur. á sjötugsaldri. Ég veit svolitið um baksvið hans en hvernig hann álpaðist út á þessa hálu braut hef ég ekki hugmynd um. Flestar kirkjurnar, bæði kaþólskar og mót- mælendakirkjur, hafa annaðhvort stutt okkur eða sýnt hlutleysi. Svo ég tók mig til og fór til messu i St. Hedwig. (Ég er ekki kaþólikki eða hef yfirleitt hneigst til nokkurrar kristinnar trúardeildar frá þvi ég var barn. For eldrar minir voru lúterskir en faðir minn skeytti lítið um trúarhreyfingar.) Kirkjan var ekki nema þriðjungi full. Ef til vill hafði eitthvað spurst um gagn- rýni Lichtenbergs á rikinu. Er leið á ræðuna á eftir messugjörðinni stóðu að minnsta kosti sex manns á fætur og gengu út. Gamli presturinn var á hálum ís. Ég hef ckkert á móti manninum persónu- lcga cn hvern þann sem grefur undan stjórnarstefnunni verður að stöðva. Það eru fyrirmæli aðofan. „Látum oss biðja í þögn," sagði faðir Lichtenberg. „fyrir börnum Abrahams.” Það var þá sem fjórir eða fimm gengu út. Það var greinilegt að hinir hneigðu ekki höfuðsin eða báðust fyrir. „Hérna fyrir utan,” hélt presturinn á- fram, „brennur sýnagógan og hún er líka hús Guðs. Áróðursblað berst til heimila margra ykkar og varar Þjóðverja við þvi að sýna uppgerðar- tilfinningasemi í garð gyðinga, með því séu þeir sekir um föðurlandssvik. Þessi kirkja og þessi prestur hér munu biðja fyrir gyðingum þvi þeir þjást.” Fleiri stóðu á fætur og fóru. „Látið ekki leiða ykkur á villigötur með þessum ókristilegu kennmgum en breytið eftir boðorðinu sem Kristur gaf: „Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig.” ” Ég beið þar til athöfninni lauk og gekk þá eftir kirkjunni og inn i skrúðhúsið. Ég var borgaralega klæddur því mér fannst hálft i hvoru óviðkunnanlegt að fara einkennis- klæddur til messu. (Þó eru margir manna okkar góðir kaþólikkar eða einlægir mótmælendur og fara alltaf einkennisklæddir í kirkju.) Gamall djákni var að klæða föður Lichtenberg úr messuklæðunum. Ég gekk til hans og sýndi honum skilríki min og merki. „Eiríkur Dorf. kafteinn.” las hann. „Hvernig get ég aðstoðað þig. sonur minn?” „Ég hlustaði af athygli á ræðuna þina.” „Og lærðirðu eitthvað af henni?” „Ég komst að þvi að þú ert góðhjartaður maður en þér skjátlast hrapallega.” Hann leit á mig þreyttum, blíðlegum augum. Ég óskaðiþess með sjálfum mér að ég þyrfti ekki að standa frammi fyr’ir honum. „Ég veit hvað er að gerast með gyðinga. Og það veistu lika, kafteinn.” Fremur en að deila við hann gekk ég umhverfis skrúðhúsborðið og íhugaði orð min. „Faðir. fyrir nokkrum árum gerði Píus páfi sáttmála við Foringjann. Vatíkanið hefur iðulega sagt að það telji Þýskaland síðasta vigi Evrópu gegn bolsévismanum." „Það réttlætir ekki pyntingar og niorð saklausra. kafteinn." „Enginn er pyntaður. Ég veit ekki um nein morð á saklausum.” „Ég hef séð gyðinga barða og vanvirta á götum úti. Ég hef séð þá senda i fangelsi fyrir engar sakir —" „Þeir eru óvinir rikisins. Við eigum í stríði, faðir.” „Við heri? Eða við varnarlausa gyðinga?" „Ég verð að biðja þig um að vanda betur orðaval þitt, faðir. Aðrir kirkjunnar þjónar hafa ekki átt í neinum erfiðleikum með að samræma trú sína og okkar. í siðustu viku var kirkja í Bremen vígð i nafni Foringjans." Hann lét ekki telja sér hughvarf. „Ég hef heyrt sögur hjá hermönnunum okk- ar þegar þeir komu frá Póllandi," sagði hann. „Þar fer meira fram en flutningur svonefndra framandi kynþátta." „Skriftir striðsþreyttra ungra manna? Þú verður að taka þær sögur með svolitlum fyrirvara." „En sem prestur verð ég að hlusta og veita aflausn. Ég breyti samkvæmt sam- visku minni i þessum efnum." Hann var þrjóskur. gamall karl. ágætur sjálfsagt i sjálfu sér en blindur á markmið okkar. takmörk okkar. Ég hneigði mig kurteislega og sagði honum að láta samviskuna nú ekki koma sér i klípu. Hann þakkaði mér fyrir og sneri sér frá. Svo heyrði ég hann segja við djálknann: „Svona greindur og heillandi ungur maður. Gjöf okkar til nýrrar ald- ar.” Ég heyrði kaldhæðnina i rödd hans og lagði það á minnið að láta fylgjast með honum. 42 Vikan 3S. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.